Leita í fréttum mbl.is

AF MÉR, KEITH OG MOGGANUM

22Hér erum ég, Keith og Moggaritstjórinn að teygja okkur í stjörnurnar.

Vinkonur mínar og eðalbloggararnir Dúa Dásamlega og Ibba Sig. byrjuðu daginn á að leggja líf mitt í rúst með því að tilkynna mér að einn af pistlunum mínum væri í Mogganum í dag.  Ekki misskilja mig ég hef ekkert á móti því að bloggið mitt sé lesið af sem flestum.  Þeir sem halda því fram að þeir bloggi BARA fyrir sig ættu að skrifa dagbók og hafa hana læsta.  Bloggið er þeirrar náttúru að það slysast inn á það fólk til að lesa.  Nú en hvað um það.  Mér var tilkynnt af þessum vinkonum mínum að fíflapistillinn minn um Keith Richards væri í Mogganum í dag.  Ég sem skrifa um allan fjárann, bæði í gamni og alvöru,  um pólitík og kvenfrelsi, fátækt og innflytjendamál og þessi pistill er valinn til birtingar.  Er ekki í lagi heima hjá fólki?  Mogginn prentar ekki broskarla og í pistlinum stendur "Keith var þá hættur í heróíni og "kominn yfir í kókaín og önnur heilbrigðari efniW00t". Skelfingarkarlinn er ekki með í Mogganum.  Hvað ætli vinir mínir hjá SÁÁ haldi ef þeir lesa Moggann sem ég veit náttúrulega ekkert um.  Kona bara á því að Kókaín sé í heilbrigðu deildinni. Hm...

Myndin af mér er víst ekki til að hrópa húrra fyrir.  Konu er ekki sama um útlitið.  Ég þori ekki að kíkja á Moggann.  Ég panta mér tíma hjá listrænum ljósmyndara sem er með meirapróf á "fótósjopp" strax í dag. Nú verður kona að blogga á hástemmdu nótunum alltaf, láta ekki eins og fíbbbl, hætta notkun broskarla og haga sér eins og verðandi Nóbelsverðlaunahafa sæmirCool.  Í dag mun ég ganga með hauspoka.

22


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ibba Sig.

Þessi mynd er mun betri af þér en sú sem birtist í Mogganum. Mæli með þessari múnderingu í hvert skipti sem myndavél er nálæg. 

Muahahahahahah!

Ibba Sig., 12.4.2007 kl. 13:01

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú ert bara svo mega skemmtileg gullið mitt, face it. Við hinar gleðjumst með og bíðum eftir því að okkar gáfulegu greinar komist á forsíðu .

Ásdís Sigurðardóttir, 12.4.2007 kl. 13:19

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe ég er sko farin til ljósmyndara, í klippingu (hárið komið vel niður fyrir axlir og er alltaf í hnút) og strípur, kaupi mér dragt og sef með rúllur í framtíðinni.  Af því maður er búinn að meikaða.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.4.2007 kl. 13:57

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta eru aldeilis frábærar fréttir.  Ég sé ekki Moggann, en ég skil vel að kona vilji vita hvenær bloggið birtist í honum, svo hún geti vandað sig og málað og svona hehehehehe......

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.4.2007 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985877

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband