Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Spaugilegt

Nú fékk ég á kjamman - áts

woman_laughing 

Og þeir halda áfram að rannsaka.  Og núna er það ekkert selvfölgelighet sem er útkoman, heldur gefur niðurstaðan manni einn á kjammann og það svo syngur í.

Hvað hef ég ekki lesið margar bækur um lækningamátt jákvæðs hugarfars?  Óteljandi og ég er ekki að ýkja.  Því er haldið fram um víðan völl að jákvæðar hugsanir séu svo máttugar að þær geti læknað flest mein.  Gott ef ekki gert það að verkum að maður lifi nánast forever.  

En óekkí samkvæmt þessari rannsókn frá Kalforníuháskóla.

Ég t.a.m sem er afskaplega geðgóð manneskja að öllu jöfnu er líklegri til að hverfa á vit forfeðra minna mun fyrr en fýlupúkinn!  Hafið þið heyrt annað eins?

Skapvonskupúkarnir geta lifað út í það óendanlega á meðan við þessi glöðu blómabörn föllum eins og flugur í vígða jörð, fyrir aldur fram.

Ég spyr, hvaða bölvaða réttlæti er nú fólgið í þessu?

Ég er alveg að verða dedd sjúr á því að guð er hreinlega ekki til.  Það getur ekki verið að hann sé svona snúinn og fullur af absúrd hugmyndum um réttlæti.

Eða kannski að klisjan sem kemur mér til að æla reglulega þegar mér verður á að lesa minningargreinar: "Þeir sem guðirnir elska deyja ungir" sé ekki bara plástur á sárin heldur beinharður sannleikurinn.

Kannski er þetta karmískt dæmi, maður er rekinn heim þegar það fer að verða skemmtilegt á Hótel Jörð?

Ég sverða, nú er ég hætt að brosa, hætt að hlægja og allt verður dauðans alvara frá og með núna.

Engan fíflagang börnin góð ef þið ætlið að lafa hérna eitthvað lengur.

Fyrirgefið á meðan ég hendi mér fyrir björg.


mbl.is Glaðlyndir fara sér fremur að voða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirfram fullnæging

Ég get haft gaman af handbolta, dálítið mikið gaman meira að segja.

Og þess vegna varð ég smá fúl yfir að við komumst ekki á HM.

Ég meina Óli Stef. og hinir strákarnir eru ekkert annað en hetjur. 

En það fylgir böggull skammrifi. 

Ég hef sagt ykkur að þegar ég les bækur sem hafa spennu og rafmagnaðan endi, þ.e. þar sem tilgangurinn með bókinni lýtur þeim lögmálum að hún nær hámarki á síðustu blaðsíðunum, þá hef ég það fyrir vana að lesa endirinn um leið og ég veit hver er hvað í sögunni.  Þetta á fólk rosalega erfitt með að skilja.

Ég segi hins vegar að það sé hálf glatað að vera í rusli yfir sögupersónum að óþörfu, þá tékkar maður á því hver drepur hvern, hver elskar hvern, hver er vondur og hver góður og nýtur svo bókarinnar án hjartsláttartruflana.  En sem betur fer les ég sjaldan spennubókmenntir.

Sama lögmál er í gangi varðandi mig og handboltann.  Ég get ekki horft í beinni og slakað á þegar ég veit ekkert hver vinnur leikinn.  Þess vegna loka ég mig frammi í eldhúsi eða fer út að labba, til að fara ekki á límingunum. 

Svo er það ofmatiðDevilá sjálfri mér.  Ég held að ef ég horfi á handboltann í beinni þá komi ég prívat og persónulega í veg fyrir íslenskan sigur.

Þess vegna horfi ég á endursýningar af leikjunum, það er þá leiki þar sem við höfum farið með sigur af hólmi.  Þá nýt ég mín.  Hlæ illgirnislega þegar andstæðingurinn fer yfir, vitandi að það er skammgóður vermir.

Þetta er eins og maðurinn sem hætti að gera það vegna þess að hann var svo hræddur um að fá ekki fullnægingu.  Hann hætti öllum hvílubrögðum og lifði því afslappaður upp frá því.

Hann tók út lostann fyrirfram, eða gerði hann það ekki?  Ha?? Nei, ók, en þið vitið hvað ég meina.

Já ég veit að ég er stórkostlega biluð en hver segir að maður þurfi að vera hefðbundinn íþróttaálfur?

Ekki ég.

En núna slepp ég við allt þetta vesen.

Við sitjum heima.Wizard


mbl.is Ísland kemst ekki á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimm þúsund kvikindi

Á maður að hlægja eða gráta?

Jón Gnarr er ekki par hress með húmorslausu kaþólikkana sem ætla að segja upp áskriftinni að Símanum, vegna margendurtekinna guðlasta hans.

Úpps.  Ekki djóka með Jesú, ekki pabba hans, fósturpabba (eða má fokka í Jósep?), mömmu hans eða öðrum ættingjum og vinum.

Ég er að mörgu leyti sammála Jóni um að kaþólsku leikmennirnir viti ekkert hvað trúaðir geri. Almennt gengur fólk um með sína barnatrú í hjartanu og ég held að smá grín um guðdóminn kryddi tilveruna og sé í raun bráðnauðsynlegt.

Ég er smá trúuð (uss), ekki fer þetta fyrir brjóstið á mér, en það er kannski ekki að marka, ér er forstokkuð í mínum einkatrúarbrögðum.

Hins vegar þá er það auðvitað mál ef fimm þúsund kvikindi segja upp áskrift af Símanum og þá er ég að tala um krónur og aura gott fólk.  Ekki biblískar afleiðingar.

Ef rétt reynist þá er ég hrædd um að Síminn endurtaki ekki leikinn með Jóni Gnarr.

Ergó: Vont fyrir Jón Gnarr og fyrir Símann sem missir stöðugt viðskiptavinina yfir til annarra fyrirtækja.

En miðað við verðskrá Símans og flótta okkar almennings frá fyrirtækinu, þá er eiginlega spurning hvort einhver verður eftir þegar fimm þúsund fara.

Ómægodd! Gaman að sjá hvort einhver hefur húmor fyrir því.

Lalalalala, góðan daginn, ég er í stuði. 

Farin að biðja morgunbænir. 


mbl.is Lengi tekist á við húmorsleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látnir upprisnir - GMG

 bag-over-head

Ég get ekki látið hjá líða að blogga um þessa frétt.  Sko plastpokafréttina úr Þvagleggnum.  Ég sver það að stundum er mánudagurinn í manni svo öflugur, heilinn þjófstartar ekki og það tekur heljarinnar tíma að kveikja á perunni.

Ég er búin að lesa þessa fyrirsögn oft í dag og hef hugsað í hvert sinn;

Einhverjir eru upprisnir á Selfossi!

Þeir lifa!

Kraftaverkin gerast enn!

Er það nema von þegar fyrirsögnin er lesin?

Hvaða brandarakarl er mættur á Moggann?  Ekki þó sami sumarstarfsmaður og í fyrra?

Ég er í kasti.


mbl.is Látnir tína upp plastpoka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í sönnum jólaanda

 

Maður á Selfossi vaknaði við að allir jólapakkarnir til ástvinanna voru horfnir úr húsinu og ekkert merki var um innbrot.  Síðar kom í ljós að einhver nákominn húsráðandanum hafði tekið pakkana til að kenna honum lexíu, en hann hafði ekki læst húsinu.

Fólk eins og þessi maður þarf enga óvini.  Þessir "nákomni" sér alveg um þá deild og vel það.

Dásamlegt að fá svona hugmyndir fyrir jólin, svona til að kæta fólkið sitt.  Sannur jólaandi.

Vó hvað þetta yrði gert aðeins einu sinni við hana mig.

Ég skildi Möggu hans Þórbergs sem skammaði hann fyrir að koma lifandi heim, þegar hann gleymdi að láta vita af sér og lenti á kjaftatörn og hún var búin að láta auglýsa eftir þessu stórkrútti, sem alltaf var á dottinu annars.  Konunni var orðið heitt í hamsi...En

..ekki að Þórbergur og Magga eigi endilega heima hér í þessu samhengi en samt kom mér þetta í hug þegar ég las viðtengda frétt af vesalings manninum þarna í Þvagleggnum.  Hvernig sem nú stendur á því.

Borgararnir í Árborg láta verkin tala, engar innantómar hótanir - ónei! 

Falalalalala

Jólagjafir eru þó í húsi.

P.s. Ég gæti tekið Gretchinn (rándýra rarítetsgítar húsbands), falið hann fram að jólum, gert hann miður sín, látið hann tilkynna hvarf til löggu og gefið honum hann svo á aðfangadagskvöld.  Tammtarara!  Hann á nefnilega til að leggja hann full kæruleysislega frá sér, þessi elska.  Hann myndi þá passa hann betur, eða hvað?

Ég yrði elskuð, elskuð ofar öllu.

Farin í málið.

 


mbl.is Jólapakkarnir hurfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að giftast fyrrverandi á bak við núverandi

 

Ég á varla orð yfir að þessi smá misskilningur með brúðkaupsmyndirnar hafi valdið því að fjölmiðlar á Norðurlöndum velta sér nú upp úr þessum skelfilega atburði.  Að brúðkaupsmyndir Geirs og Tönju Engely hafi lent hjá fyrrverandi kærustu Geira.

Maður miðar auðvitað út frá eigin reynslu.  Ég hef, eins og flestir vita, átt fjöldann allan af eiginmönnum (W00t) og er því sérfræðingur í eftirhjónabandssamskiptum.  Ég hef verið svo heppin með eiginmenn, að ekki einasta hefði ég bara skoðað myndirnar og dáðst að þáverandi með sinni nýju, ég hefði boðist til að vera svaramaður eða leiða hina nýju brúði upp að altarinu líka, hefði ég átt þess kost.  Reyndar hef ég aldrei verið beðin, hvernig ætli að standi á því?Whistling  Það getur varla verið svona mikil hamingja í gangi að vera laus við mig.  Nei, nei, getur ekki verið.

Ég hélt að á upplýstum tímum með hárri skilnaðartíðni (hm) þá þætti svona ruglingur ekki að vera eitthvað á Richter.  Ég hefði skilið fréttina ef núverandi hefði fengið myndir af eiginmanni að giftast fyrrverandi.  Það hefði þó verið bragð að því.

En því er ekki að heilsa. (Hugmynd einhver?)

Bætmí.

Úje.

 


mbl.is Fyrrum kærasta fékk brúðkaupsmyndirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.