Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

AÐHYGLASÍNUM.IS

Þetta hefur verið töff dagur.  Mikið af erfiðum og leiðinlegum fréttum eins og sjá má á bloggsíðunni minni.  Kirkjuþingið sem hljópst undan merkjum varðandi samkynhneigða borgara þessa lands og hefur af þeim sjálfsögð mannréttindi. 

Lýsingarnar á aðförum mannsins sem dæmdur var í dag í Hæstarétti fyrir misþyrmingar á tveimur konum og er í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegra árása bæði á þriðju sambýliskonunni. 

 Svo komu nýjustu hugglegheitin frá Framsókn (ekki að ég gráti það þótt þeir hverfi af kortinu).  Að tengdadóttur Jónínu Bjartmarz hafi fengið ríkisborgararétt eftir 15 mánaða dvöl í landinu þrátt fyrir tímabundið dvalarleyfi.  Þetta mun ekki eiga sér fordæmi töldu Kastljóssmenn.  Ég ætla ekki að væna neinn um að fara með ósannindi en ég á erfitt með að trúa því að þingheimur sé svo illa tengdur að nefndarmenn sem fjölluðu um málið hafi ekki vitað um tengsl Jónínu og umsækjandans.  Vó, vó því ef svo er þá eru viðkomandi í mergjuðum fílabeinsturni og með verulega samskiptaörðugleika.  Halló!!  Eru þingmenn og konur ekki 63 að tölu?  Það er svo sannarlega kominn tími á að leysa Framsókn úr viðjum plussófanna þar sem þeir geta ekki lengur gúffað í sig og sína eftir hliðarleiðum.

 Hafi ég haft óbeit á þessum flokki í sauðalitunum áður þá tók steininn úr þegar ég sá auglýsinguna frá þeim þar sem þeir hafa látið teikna afskræmda mynd af Steingrími J. Sigfússyni svo þeir í andaslitrunum geti nú mögulega náð til sín einhverju fylgi í komandi kosningum.  Aðferðarfræðin er hreint dásamlega vitlaus.  Þekkja þeir ekkert venjulegt fólk?  Kona spyr sig?


mbl.is Nefndarmenn hafi tekið fram að þeim hafi verið ókunnugt um tengsl Jónínu og umsækjandans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVAR Á MIÐNÆTTI - HVER ER MAÐURINN??

22

Sko!  Vegna leiðinlegs dags ætla ég nú að bregða á leik og herma eftir vinkonu minni henni Dúu www.duasembloggarekki.blog.is en hún var með skemmtilega getraun í gangi þar sem við áttum að þekkja bloggvinkonu okkar á vægast sagt hroðalegri mynd.  Nú spyr ég hver er maðurinn á myndinni?  Myndin er frekar slæm en flestir munu sjálfsagt átta sig ef þeir ná að hugleiða á manninn (strákar ekki glápa á konuna hún heitir Vera og er ritari mannsins).  Þessi maður er nokkuð nokkuð þekktur af störfum sínum.  Meira fáið þið ekki að vita ljósin mín.  Ég upplýsi hver maðurinn er á miðnætti.  MuhahahahahaDevil


"THREE FOR THE PRICE OF ONE"

22

Nú í dag dæmdi Hæstaréttur karlmann í 5 ára fangelsi fyrir líkamsárásir á fyrrverandi sambýliskonu sína og húsbrot.  Hann var líka sakfelldur fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi unnustu sinni.    Sami maður hefur  frá því í desember setið í gæsluvarðhaldi grunaður um stórfellt kynferðisbrot gagnvart þriðju konunni sem einnig var sambýliskona hans.

Ég hef áður sagt að ég er yfirleitt ekki mjög refsiglöð manneskja.  Hér er hins vegar einbeittur brotavilji og mikil grimmd á ferðinni.  Þrjár konur amk., eru fórnarlömb þessa manns.  Ég myndi sætta mig við fimm ára fangelsi.  Fimm ár fyrir hverja konu.


mbl.is Dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir líkamsárásir á fyrrum sambýliskonur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KÁRAHNJÚKAHEILKENNIÐ

22

Hver ætlar að taka á sig ábyrgðina á framkomu Impregilo á Íslandi?  Þorsteinn Njálsson, yfirlæknir á heilsugæslustöðinni á Kárahnjúkum segir að listi með nöfnum 180 starfsmanna Impregilo sem veikst hafa á síðustu vikum, hafi verið tekinn af skrifborði hans af starfsmanni heilsugæslunnar (á launaskrá hjá Impregilo)sem hafi svo afhennt hana sínum yfirmönnum.  Ómar R. Valdimarsson, talsmaður fyrirtækisins segir ekkert óeðlilegt við þetta.  Það þarf sérstaka manngerð til að tala fyrir fyrirtæki eins og Impregilo.

Hvað varð um trúnaðinn milli læknis og sjúklings?  Þorsteinn segir réttilega að sjúkdómsupplýsingar og kennitölur hafi ekkert að gera í hendurnar á fyrirtækjum. 

Það er ekki mikið manngildið þarna austur að Kárahnjúkum.


mbl.is Starfsmaður heilsugæslu afhenti Impregilo lista yfir veika starfsmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GÆSAHÚÐ DAGSINS..

22

..gefur afródans Búss sem Mbl. segir að geti orðið efnilegur dansari!!!  Sjáið myndband með frétt.  Maðurinn hefur svo þokkafullar hreyfingar, limamýktin og rythminn er með ólíkindum.  Bússi fer beint í ballettinn eftir forsetakosningarnar.

Án gríns.  Það sem fólk þarf að leggja á sig í listaheiminum til að vekja athygli á góðum málefnum.  Úff barasta.

 


mbl.is Bush sýndi afrískan dans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG ER FRJÁLS!!

22

Ég er búin að segja mig úr þjóðkirkjunni.  Ég geri það vegna þess að þar á bæ er munur á Jóni og sr. Jóni.  Samkynhneigðir eru Guði ekki næganlega þóknanlegir samkvæmt yfirgnæfandi meirihluta þessarar samkundu og fóstbræðralags hinna trúuðu.  Ég geri það vegna þess að ég vil lýsa yfir stuðningi við málstað samkynhneigðra og líka vegna þess að ég á vini og vinkonur í þessum hópi. Síðast en ekki síst geri ég það af því að mér er meinilla við mannréttindabrot hvaða nafni sem þau annars nefnast.  Ég er sandkorn í eyðimörkinni og breyti ekki gangi mála svona ein og sér en þessi aðgerð er í mínu valdi og eins og með kosningaréttinn og því eina atkvæði sem ég hef til ráðstöfunar, nýti ég mér hann að sjálfsögðu.

Fyrir þá sem vilja ekki lengur vera í kirkjupartíinu þá er farið inn á thjodskra.is og í eyðublöð.  Það er prentað út og útfyllt, sent eða faxað til Hagstofunnar.

Í dag geng ég í Ásatrúarfélagið (segi sonna).  Nebb ætla að vera utan trúflokka.  Minn Guð rekst illa í flokkum.

SíjúgæsHeart


BULLANDI SIGLING HJÁ VG

22

Það er gleðilegt fyrir okkur vinstri-græn að sjá niðurstöður könnunarinnar sem Stöð 2 birti í gær úr Reykjavík suður.  VG tvöfaldar fylgi sitt samkvæmt henni og tekur mann af Framsókn.  Þennan eina sem þeir hafa.  Sjálfstæðisflokkur dalar og eini flokkurinn sem er á uppleið er VG. 

Kannanir eru ekki úrslit en ef svo heldur fram sem horfir þá stefnir í sigur okkar VG þ. 12. maí.  Þá verður nú gaman að lifa.

19


SUBBUATHUGASEMDIR

Ég ákvað þegar ég fór að fatta hvernig bloggið virkaði að ég myndi hafa opið hjá mér fyrir allar athugasemdir þangað til eitthvað það kæmi í ljós sem fengi mig til að endurskoða þá ákvörðun.  Ég hef bloggað í rúma tvo mánuði og aldrei þurft að hugsa um að loka á einhvern eða taka út eina einustu athugasemd þó oft hafi það komið fyrir að fólk hafi orðið kjarnyrt nokkuð þegar það hefur ekki verið sammála.

Ég hef hins vegar tekið eftir því hjá sumum bloggurum að þeir hafa fengið yfir sig fádæma sóðaskap og þurft að loka bæði á óskráða notendur og einstaklinga.  Sérstaklega eru það konur sem í þessu hafa lent.  Konur sem hafa skrifað um pólitík og feminisma.  Ég skil þær skelfilega vel.

Í dag hef ég lokað á tvo einstaklinga.  Annar var svo sem ekki með neinar alvarlegar meiningar.  Var mynd- og nafnlaus og var að skamma mig fyrir hvernig ég flokka í undirflokka og var að tuða eins og reglugerðarlögregla þannig að ég nennti ekki að standa í þessu við einhvern þykjustupersónuleika sem ég veit engin deili á.  Ég tók þó tillit til þess sem viðkomandi sagði um flokkunina.  Ég vinka skrifaranum héðan.

Hinn síðari skrifaði ískyggilega meiðandi og orðljóta athugsemd undir pistilinn minn um ákvörðun kirkjuþings í dag að gefa ekki samkynhneigða saman í hjónaband.  Ég veit að þetta er viðkvæmt efni og allir ekki sammála.  Það er bara í góðu lagi.  En annan eins viðbjóð eins og þessa athugasemd hef ég ekki séð á blogginu.  Áhrifin voru þau að fyrst langaði mig að hætta að blogga.  Drímon gamli jálkur auðvitað geri ég það ekki.  En mér varð óglatt og fannst eins og það væri vegið að mér úr launsátri.  Ég ætla ekki að skrifa nafn þessa manns hér og gefa honum ókeypis auglýsingu en hann var óskráður. 

Úff það verður að taka slæmt með góðu og hér með lýsi ég því yfir að allir sem fara yfir velsæmismörk í orðavali í mínu athugasemdakerfi verða bannaðir og fjarlægðir med det samma.  Það geri ég af mikilli gleði.  Og nei það er ekki skortur á virðingu fyrir málfrelsi.  Klám er bannað með lögum.


Á MORGUN SEGI ÉG MIG ÚR ÞJÓÐKIRKJUNNI

22

Núna er ég svo bullandi reið að konan á myndinni hjá mér er háheilög madonna í samanburði við þá vonsku sem ólgar í mér.  Ég segi mig úr þjóðkirkjunni á morgun og húsbandið sagði að það lægi við að hann skrifaði sig inn í þessa aumu stofnun bara til að geta gengið úr henni samstundis aftur. 

Ég vonaði svo innilega að þessir sjálfskipuðu umboðsmenn Guðs á jörðinni myndu nú sýna alvöru kristilegt hugafar og ákveða að kirkjan myndi viðurkenna og framkvæma hjónavígslu á samkynhneigðum.  Ó nei ekki. Eftir að hafa horft á Þingvallageir í Kastljósinu áðan þar sem hrokinn skvettist af honum og skinheilagleikinn líka þá ákvað ég að mig langaði ekki lengur til að tilheyra þessum vafasama félagsskap sem þjóðkirkjan greinilega er. ´

Það misbýður réttlætiskennd minni að allir menn skuli ekki vera jafnréttháir innan kirkjunnar.  Ég hélt að við værum öll jöfn fyrir Guði.  Ég stórefast um að það sé mikið af Guði í þessum félagsskap presta og preláta.  Minn Guð er kærleikur og gerir sér ekki mannamun.

Arg..


AÐ KOMAST Á TOPPINN Á MOGGABLOGGI

22

Ég er svo gamaldags að ég átti í verulegu basli með að sættast við að setja þessa klúru mynd í færsluna mína en lét slag standa.  Nú ég las á blogginu hans Tomma bloggvinar míns að nú væri Ellý Ármanns komin á topp 1 á vinsældalista Moggabloggs.  Ég fór nottla og tók þetta út því þetta eru svei mér fréttir.  Sigmar, bráðskemmtilegur sem hann er, hefur lotið í lægra haldi fyrir sjónvarpsþulunni sem á þann undarlegasta vinkvennahóp sem um getur.  Þær fá flatlús, eru með giftum mönnum í hádeginu, eru kynlífsfíklar og finnst röddin í Bjögga Halldórs ógisla sexý ofl. ofl.  Ég les stundum pistlana hennar og get hlegið mig máttlausa.  Ellý ætti að opna stofu og taka fólk í meðferð.  Vinkonur hennar eru upptættar á sálinni það veit trúa mín.

Nú Sigmar er ekki nándar nærri eins lostafullur í bloggi sínu.  Hann skrifar um hversdagslega hluti.  Sú staðreynd að hann er snilldarpenni og með launfyndnari mönnum er auðvitað hvergi nærri nóg.

Hm.. ég verð að panta tíma hjá Ellý og reyna komast yfir það að tilheyra ekki hinni frjálslegu kynslóð titrara og eggjanotenda sem á lostafulla dótakassa sem mér er sagt að séu bráðnauðsynlegir á hvert heimili. Aðeins þannig á ég von um að komast einhvern tímann á top 10.

P.s. Ég gúgglaði á kynlíf.  Á síðu 2 kom upp mynd af Ellý! Nema hvað!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2985778

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband