Leita í fréttum mbl.is

Sigmundarmálið ekki Sigmundarmál þegar upp er staðið?

Ég vona að þessi óheppilega uppákoma varðandi Sigmund Erni fái nú skjóta greftrun.

Nóg komið.

En af því að allt hefur logað vegna málsins og allir haft á því skoðun, ég líka og þær fleiri en eina, þá er best að taka það fram að ég er búin að sjá enn einn vinkil á málinu.

Sigmundarmálið hefur nefnilega mest lítið með Sigmund sjálfan að gera svona eftir á að hyggja.

Það er vont og skammarlegt að mæta fullur í vinnuna. 

Það er þó hægt að bæta skaðann með því að láta það ekki gerast aftur og gera svo hreint fyrir sínum dyrum.

Það sem upp úr stendur í þessu Sigmundarmáli er því ekki Sigmundur sjálfur heldur vinnufélagarnir.

Sem kölluðu frammí fimmtíuogátta sinnum, sagt og skrifað á meðan þingmaðurinn hélt ræðuna sína.

Svo hlógu þessir mannvinir að ástandi þingmannsins og drógu hann sundur og saman í háði.

Og í staðinn fyrir að láta þar staðar numið fóru þessir fordómalausu og alltumvefjandi vinnufélagar í andsvör út í það endalausa.

Til að fá þingmanninn til að gera sig að enn meiri kjána.

Ég hef unnið á mörgum vinnustöðum í gegnum tíðina.

Ég man aldrei eftir svona óþverraskap varðandi samstarfsfólk sem missteig sig á einhvern máta.

Varaþingforsetinn Ragnheiður Ríkharðsdóttir fer svo með málið inn á forsetanefndarfund og tíundar þá ætlun sína í Mogganum.

Ekki koma og halda því fram að ég sé meðvirk með SER.

Það er ekki þannig.

Get alveg viðurkennt það sjónarmið sem rökrétt að fyllerí í vinnunni kalli á afsögn.

En Alþingi Íslendinga er ekki staður sem ég vildi vinna á ætti ég í erfiðleikum.

Nebb, þá vildi ég heldur vinna í ormagryfju hálfvitahrepps.


mbl.is Sigmundur Ernir baðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Auðvitað átti að stoppa manninn, siðmenntað fólk hefði gert það, en þingmenn eru ekki sérlega siðmenntaðir, ekki nema voða fáir, aðrir nota ástandið til að troða menn niður.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.8.2009 kl. 11:34

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er með því ljótara sem ég hef orðið vitni að.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir ætti að taka samkenndarskort og kvikindishátt frammíkallaranna fyrir á fundi forsætisnefndar í leiðinni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2009 kl. 11:38

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sammála, Ragnheiður fer offari, fer henni illa.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.8.2009 kl. 11:42

4 Smámynd: 365

Einnig það að hún glotti allan tímann sjálfur verkstórinn í salnum sem stjórnaði fundi, samflokksmaður SER.

365, 27.8.2009 kl. 11:46

5 identicon

Sigmundur Ernir var undir áhrifum og ekki allsgáður en hinir voru langtífrá allsgáðir! Segir meira um þá heldur en hann...

Guðný (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 11:51

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sammála þeim sem segja að ræðan hefði hitt betur í mark ef hann hefði farið með hana ódrukkinn.  Það er synd að svona góð ræða skuli hafa farið forgörðum en Sigmundur Ernir getur bara átt það við sjálfan sig.  Ef hann hefði verið betur fyrirkallaður og bláedrú hefði þetta sennilega verið sú þingræða sem hefði staðið upp úr frá upphafi. 

Það má því segja að þar hafi góður biti farið fyrir lítið í hundskjaft.  

Eftir stendur svo að hann skyldi skrökva því að hann hefði ekki smakkað vín, og orðið að viðurkenna "eftir á" að hafa drukkið örfá glös, þegar vitni segja annað.  Og að lokum biðjast afsökunnar þegar ekki var möguleiki á að gera það ekki.  Leim að mínu mati. 

Og nú er péerrið alveg á fullu að réttlæta þetta og láta það líta betur út og gera hann að fornarlambi.  Auðvitað höguðu hinir sér alveg eins og svín, þeirra afsökun er engin heldur.  En það batar ekki uppákomu Sigmundar Ernis að mínu mati. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2009 kl. 12:03

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur: Ég er ekki að gera lítið úr því að SER bæði drakk í vinnu OG laug líka.  Það er alvarlegt mál.

Hitt stendur eftir að móralinn í þinghúsinu og ömurlegt samansafn illkvittna karaktera er staðreynd.

Ekki allir að sjálfsögðu en of margir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2009 kl. 12:15

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hihihihi hvar er hálfvitahreppur? Úti á landi?

Ég er mest hrædd um að alþingi eigi lögheimili þar........

Hrönn Sigurðardóttir, 27.8.2009 kl. 12:25

9 identicon

Svo skal böl bæta að benda á annað verra!

Soffía (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 12:38

10 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Hlægilegt hvernig þið komið nú fram, stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar, og reynið að verja blindfullan lygarann, sem nú hefur komið í ljós að laug að þjóðinni - eins og venjulega.

Svo reynir þú að klína óþverraskapnum á samstarsmennina ?  Var ekki Sigmundur að halda þarna ræðu - sem þingmönnum ber skylda til að fá nánari skýringar á ?

Hverskonar sjónarhorni lítur þú lýðræðið Jenný ?  Það er greinilega ekkert mark takandi á þér eða þeim sem reyna að verja Sigmundarræfilinn.

Auðvitað á hann að segja af sér þingmennsku, hann hvort eð er fær stóra skellinn í næstu kosningum - eins og Samspillingin öll.

Sigurður Sigurðsson, 27.8.2009 kl. 12:38

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur: Ég er ekki að gera lítið úr því að SER bæði drakk í vinnu OG laug líka.  Það er alvarlegt mál.

Hitt stendur eftir að móralinn í þinghúsinu og ömurlegt samansafn illkvittna karaktera er staðreynd.

Ekki allir að sjálfsögðu en of margir.

Já Jenný mín víst höguðu hinir sér eins og svín. Maður þekkir svo sem móralinn.  En einmitt þess vegna eiga menn ekki að gefa svona skotfæri á sér og stinga sér beint ofan í drullupollinn.  Og fyrst hann var að biðjast "góðfúslega " afsökunar, hefði verið ágætt að hann hefði útskýrt í leiðinni hvað hann var að gera á þessum stað á þessum tíma, sem er mjög krítiskt svo ekki sé meira sagt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2009 kl. 12:43

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

SISI: Villtu vanda orð þín.  Þú hlýtur að geta komið skoðun þinni á framfæri án þessara gífyrða um persónu þingmannsins.

Ég er ekki stuðningsmaður Samfó, síður en svo en ég sé þó enga samsetningu stjórnarmeirihluta sem er skárri.

Svo er eins gott að taka fram að ég er ENGIN aðdáandi þessa þingmanns en ég tel það lámarks tillitsemi við hann og alla sem missa niðurumsig að leika sér ekki með ástand hans.

Svo má böl bæta hvað?

Lesið, ég tel þetta alvarlegt mál.

En ég tel það ekki síður alvarlegt hvernig fólkið út í sal hagar sér.

EKki bara í þessu tilfelli heldur nánast á hverjum einasta þingfundi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2009 kl. 12:44

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur: Sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2009 kl. 12:45

14 Smámynd: hilmar  jónsson

Það eru skussar í öllum flokkum.

Þetta er að verða algerlega óþolandi og ömurlegt til þess að vita að meðan allt hangir hér á bláþræði skuli ákveðnir þingmenn haga sér eins og fífl.

Bara út á götu með þá , takk fyrir

Frammíköll stælar og aulahúmor virðist vera að festast sem norm á þinginu.

Nei Ragnheiður má alveg spóla aðeins til baka og líta í eigin rann.

hilmar jónsson, 27.8.2009 kl. 12:52

15 Smámynd: hilmar  jónsson

Bara aðeins: "Óheppileg uppákoma" finnst mér ansi léttvæg lýsing á hálvitaganginum í Sigmundi.

hilmar jónsson, 27.8.2009 kl. 13:08

16 identicon

Ég á kanski að sleppa því að "kommenta" á þetta blogg þannig að ég verði ekki tekinn fyrir! En ég held að það yrði tekið öðruvísi á málum ef þingmaður í minnihluta. SKAMM það á ekki að vera fullur í vinnuni og það er engin afsökun fyrir því, það er sennilegt að ef einhvert okkar mætti fullt í vinnuna þá værum við rekin, sama á að gera við SER, SKAMM og skammastu þín.

Sveinn (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 13:11

17 Smámynd: Guðni Þór Björnsson

Auðvitað á að stíga inní aðstæður og taka manninn úr pontu. Það sýnir bara vitleysuna sem er í gangi á þingi þegar hlakkar nánast í fólki ófarir annarra.

Nú er ég nýr hérna á Moggabloggi og finnst merkilegt hvað fólk hagar jafn illa hér og það gerir í lifandi lífi. Er öll þessi illkvittni nauðsyn eða er ég bara eitthvað soft?

Hafið það got!!

Guðni Þór Björnsson, 27.8.2009 kl. 13:43

18 identicon

Þessi Ragnheiður er hin sama og ók á mig fyrir framan Græðgishöllina í Skipholti þar voru Frétta menn sem sáu ekki ástæðu til að segja rétt frá.Er óvirkur og skamast mín fyrir hvernig jafn vel Fyllibittur ráðas á þennan fjandvin minn.Árni Hó (Jón og Gunna)

ps. Svo var nú ekki úr háum söðli að detta á Alþingi

Árni H Kristjánsson (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 13:49

19 Smámynd: Guðni Þór Björnsson

Ekki taka þetta til þín Skorrdal, ég meina bara almennt hér á blogginu. Það virðist bara mjög auðvelt að missa sig í bræði hér á athugasemdarkerfinu.

Guðni Þór Björnsson, 27.8.2009 kl. 14:24

20 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Svei mér ef ég dytti ekki bara í það líka ef ég inni á Alþingi í dag. Reyndar drakk hann ekki "í vinnunni" heldur fyrir vinnutíma - en það gildir kannski engu. Kallgreyið fann ekki á sér en hinir sáu á honum. Hefðu kannski átt að benda honum á það. Annars finnst mér margur þingmaðurinn gera sig að fífli á degi hverjum þarna í Alþingi - og alveg ófullir.

Núna er ég t.d. að horfa á seinasta vers í Icesave hroðanum. Allir edrú - fullt af fíflum.......

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 27.8.2009 kl. 15:26

21 identicon

Það er nú fleira en áfengisneyslan sem slík sem fer fyrir brjóstið á mér.

Það er náttúrlega til háborinnar skammar fyrir manninn að mæta drukkinn til starfa á þingi, menn eru taldir ófærir um að stjórna ökutækjum eftir að hafa drukkið og ég tel þá síst færari um að stjórna landinu í slíku ástandi!

Það er líka Sigmundi Erni til skammar að ljúga til um ástand sitt allt til enda, fyrst sagðist hann ekkert hafa drukkið, svona bara lítið. Maðurinn er uppvís að því að ljúga að alþjóð!

En það er kórónar þetta nú  í mínum augum er að hann eyddi deginum sem boðsgestur MP banka í golfi og gleðskap!! Er maðurinn fífl? Hvernig dettur honum í hug að við, almennir kjósendur, sættum okkur við það svona lagað? Er ekki nóg komið af vildarferðum og veislum fjármálafyrirtækja fyrir valda aðila - hvers vegna heldur Sigmundur eiginlega að MP banki hafi boðið honum? Það voru ekki allir viðskiptavinir boðnir (frekar en fyrri daginn) heldur þeir einstaklingar sem bankinn taldi sér hag í að "halda góðum". Bankar eru ekki góðgerðastofnanir og þeir henda ekki pening í svona lagað nema þeir telji það borga sig. Það hefði verið betra ef Sigmundur hefði haft það í huga að æ á sér gjöf til gjalda...

Guðrún (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 15:54

22 Smámynd: Kama Sutra

Guðrún kemur hér að kjarna málsins (kl. 15:54).

Mér finnst aðalhneykslið í Sigmundarmálinu vera það að hann skuli hafa, sem þingmaður, eytt deginum í boði fjármálafyrirtækis.  Það er eittthvað svo 2007.  Eitthvað sem stjórnmálamenn gerðu hver um annan þveran fyrir hrun, en ætti að vera liðin tíð núna.

Maður var að vona að sá hugsunarháttur væri ekki lengur við lýði hjá pólitíkusum - að láta sér detta í hug að þiggja svona boð frá fjármálafyrirtækjum.

Halló!  Var þetta ekki ein aðalástæðan fyrir hruninu?!  Slefan sem slitnaði ekki á milli viðskiptalífsins og stjórnmálamanna.

Þvílíkur dómgreindarskortur í manninum að láta sér detta í hug að þiggja þetta.

Kama Sutra, 27.8.2009 kl. 20:04

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég verð að játa það líka að sú staðreynda að þingmaðurinn var í boði banka í mat og drykk og hverju sem er reyndar fer mest fyrir brjóstið á mér.

Og þess vegna fýsir mig að vita hvort þetta sé einangrað tilfelli eða hvort þetta sé enn til siðs.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2009 kl. 21:25

24 identicon

Það er alrangur vinkill að tengja þetta við vinnustaðaeinelti og auðvitað áttu aðrir alþingismenn að taka brandarann álofti sem Sigmundur henti upp.

Maðurinn mætir fullur í vinnuna og lýgur að fréttamanni á sama tíma og eitt mikilvægasta mál íslendssögunnar er í umræðu.

Skömmin er líka þeirra sem verja svona háttalag og alvöru alki eins og þú Jenní hefðir frekar getað veitt samúð þinni farveg í gegnum hugsanlega afvörnun þingmannsins  

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 03:44

25 identicon

Afvötnun átti það að vera

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 03:44

26 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gylfi: Ég er óvirkur alki en ég er ekki í þeirri deild að "greina" fólk sem fyllibyttur eða meðferðarkanditata.  Tel mig ekki til þess bæra enda ekki læknir.

Svo þarf það ekki að vera að fólk sem missir sig í drykkju séu alkar, það hlýtur þú að vita.

Hef megna skömm á óvirkum ölkum sem fara hamförum við að greina fólk sem alkahólista.

Finnst að þeir eigi að vinna í eigin bata og láta aðra um sig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.8.2009 kl. 09:08

27 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst það vera að drepa ábyrgð hins ölvaðaá dreif með því að vera að hneykslast svona mikið á þeim sem brugðust við ölæði hans. Ábyrgðin á að liggja fyrst og fremst hjá hinum ölvaða en ekki öðrum. Alveg eins og ábyrgð geranda í ofbeldismálum á að liggja hjá gerandanum en ekki þolandanum.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.8.2009 kl. 10:24

28 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sigurður Þór: Þú hefur all mikið fyrir þér í þessu.

En hér er það pólitíkin sem er til umfjöllunar.
Sigmundur Ernir varð sér til háborinnar skammar og sýnir þinginu vanvirðingu.

Það gera líka margir til viðbótar.

Ekkert að því að minnast á það.

Það er bullandi vanvirðing í gangi á þessum vinnustað.

Hysknir og latir starfsmenn ríða þar röftum.

Ekki allir en margir.

Og það er ekki líðandi að fólk sé fullt í vinnunni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.8.2009 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.