Leita í fréttum mbl.is

Játningar kanasleikju

ritarinn 

Eins og mér var illa við veru setuliðsins hér á landi þá var ég samt tvöföld í roðinu langt fram eftir aldri.

Jú það kom kanasjónvarp á heimilið þegar ég var 10 ára.

Eina í hverfinu fyrir utan sjónvarp nágrannans sem vann á vellinum.

Vinsældir mínar, sem voru ærnar fyrir (Halo) jukust um 400% og ég lýg því ekki.

Biðraðir barna mynduðust við Hringbraut 84 á þriðjudagskvöldum því þá var Combat í sjónkanum.

Á mánudögum var Lawrence Welk sem amma mín elskaði.

Lucille Ball, Þriðji maðurinn, Kötturinn Felix og fleira og fleira.

Svo hlustaði ég á Kanann.

Útvarpið sko.

Til að bíta svo höfuðið af skömminni vann ég nokkur ár sem einkaritari forstjóra Ísl. Aðalverktaka og var í leiðinni flokksbundin í Alþýðubandalaginu.

Ég velti mér upp úr unaðsemdum vallarlífsins.

Fór í Officeraklúbbinn í hádeginu og að djamma með vinnufélögunum eða "klúbbast" eins og það hét, á fimmtudagskvöldum.

Algjörlega siðlaus í tvöfeldninni og í hróplegu ósamræmi við skoðanir mínar.

Og af því ég er farin að velta mér upp úr þessum æskusyndum þá fór ég að velta því fyrir mér að með þetta siðlausa hugarfar þá hefði ég auðvitað átt að stefna hátt í pólitík.

Svona ómerkingar eins og ég hefðu náð langt.

En ég hafði ekki vit á því sem betur fer.

Löngu, löngu síðar, en það skal taka fram að ég var afskaplega seinþroska á siðferðissvellinu, fór ég að samræma orð og gjörðir.

En mikið rosalega tók það langan tíma.

Í guðanna bænum ekki segja neinum frá þessu.

Það gæti einhver farið að skvetta málningu á húsið mitt.

En umboðsmaður Íslands Mr. Bárðarson mun þroskast seint og illa.

Og hver í fjandanum er þessi Gulli Helga?

Ekki svara því, hingað til hef ég lifað ágætis lífi án vitneskjunnar.

Skelli hér inn sönnunargangi "exibit A" hvar ég sit í einkaritaradjobbinu "on the base"

Over and out.

 


mbl.is Gulli Helga gengur Kananum á hönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Ég vann líka á vellinum í eitt ár eftir stúdentsprófið. Vann á launadeild hersins fyrir óbreytta "civilian personell". Ekki skemmtilegt starf en staðsetningin frábær. Fórum oft í "messann" að borða og þar kynntist maður alvöru hamborgurum og mexíkanskri eldamennsku sem ég féll strax fyrir. Þannig að ég fékk snemma matarást á kananum. Og svo hlustaði ég á kanaútvarpið frá unga aldri og fram undir þrítugt. Og ég skammast mín nú ekkert fyrir það því íslenska útvarpið var alveg skelfilega leiðinlegt á þessum árum (og er enn).

, 16.8.2009 kl. 12:39

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mig grunar 'fóthózjoppun' & rökztyð það með því að litmyndir voru ekki enn til þegar þú varzt á zama aldri & þezzi bráðhuggulega telpa á myndinni.

Steingrímur Helgason, 16.8.2009 kl. 12:43

3 identicon

Gaf mönnum  "power " að hafa eða þykjast hafa sambönd upp á velli.Kanasjónvarpið kom á endanum því það þarf ekki annað en að skoða dagskrána ,  yfirgnæfandi amerískt sjónvarpsefni.

Hörður Halldórsson (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 12:49

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þessi "telpa" er 27 ára gömul Zteini minn.

Hörður: Segðu.

Dagný: Frussssssss messinn?  Officeraklúbburinn rúlaði í matseðli.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2009 kl. 12:57

5 Smámynd: Jens Guð

  Hehehe!

Jens Guð, 16.8.2009 kl. 14:19

6 Smámynd: hilmar  jónsson

Er þessi pistill ekki gott start í opinskátt viðtal í Mannlífi ?

hilmar jónsson, 16.8.2009 kl. 14:31

7 Smámynd: Laufey B Waage

Ég hefði viljað vera í biðröðinni við Hringbraut 84. Fékk því miður aldrei að horfa á Kanasjónvarpið og bíð þess aldrei bætur.

Mér finnst það bara þroskamerki hjá konum á okkar aldri að viðurkenna "tvöfeldni". Ég átti t.d. mjög erfitt með að kjósa í flugvallarmálinu fyrir nokkrum árum, - vildi bæði láta flugvöllinn fara og hafa hann áfram.

Laufey B Waage, 16.8.2009 kl. 16:35

8 Smámynd: Sigrún Óskars

Dásamleg mynd; svartur sími, ritvél og öskubakki við hendina !!

Sigrún Óskars, 16.8.2009 kl. 18:54

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Djöfull ertu sæt á myndinni! Ég heyrði Elvis koma fram í kanaútvarpinu 1956. Kanaúutvarpið og kanasjónvarpið var með mestu menningarstofnunum á Íslandi meðan þau voru og hétu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.8.2009 kl. 18:59

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jenný! Svona ung og falleg.

Hrönn Sigurðardóttir, 16.8.2009 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985768

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband