Leita í fréttum mbl.is

Helvítis fokking fokk

Ég vil ekki halda því fram að íslensk stjórnvöld sem sátu hér þegar allt hrundi séu hálfvitar.

Af því ég er vel upp alin og svo er tilhugsunin um að slík hafi mögulega verið raunin algjörlega óbærileg.

En óneitanlega hvarflar það manni aftur og aftur svona í retrospektívi.

Var það kannski kaldastríðsgenið í Sjálfstæðisflokknum sem fékk þá til að segja Njet við Rússana þegar þeir buðu okkur 4 milljarða evra lán í október s.l.?

Geir Haarde alveg: Njet thank you - við erum í Nató og þið eruð vondir menn í Rússkí?

Eða var það afneitun á alvarleika ástandsins?

Eða það sem mér þykir líklegast að íhaldið hafi trúað því og treyst að hinn vestræni heimur kæmi og bjargaði okkur prontó af því við erum svo mikil krútt og eigum Íslendingasögurnar og næturnar eru svo miklu bjartari hér en annars staðar á sumrin?

Hvað skal halda?

Eða er við svo miklu að búast af manni sem lyfti ekki síma til að spyrja um hvers vegna á okkur voru sett hryðjuverkalög?

Þegar við urðum Osama Bin Laden í fjárhagslegu tilliti?

Maður sem segir "Mayby I should have" aðspurður um hvers vegna hann hringdi ekki og tékkaði á málinu?

Meiri spurningarnar í mér.

Er það nema von - ég skil ekki afturenda í þessu rugli öllu saman.

Hvernig læt ég, AGS reddar okkur.

Alveg eins og hann er búinn að gera frá því hann kom að málinu.

Helvítis fokking fokk.

 


mbl.is „Íslendingar vildu ekki lán frá Rússum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

"Betra að gera ekki neitt", eru eiginlega digurbarkalegustu ummæli fyrrverandi forsætisráðherra sem hann stagaðist á alveg þar til hann bað Guð að blessa Ísland. 

Jenný Stefanía Jensdóttir, 12.8.2009 kl. 15:33

2 identicon

Er víst að Sjálfstæðisflokkurinn hafi einn tekið ákvörðun um að hafna þessu láni???

Sigurður (IP-tala skráð) 12.8.2009 kl. 15:41

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það gætu nú verið einhverjar aðrar ástæður að baki, eins og hugleiðingin hérna fjallar um.

Ætli að það gæti verið að Samfylkingin hefði komið þarna eitthvað nærri?

Axel Jóhann Axelsson, 12.8.2009 kl. 15:43

4 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Ekki kæmi það mér á óvart þó samfylkingarmenn hafi gert það að skömm sinni að hafna þessu láni til þess eins að reka þjóðina út í það horn sem hún er komin í núna.

Það hefði ekki verið neitt að því að þiggja lán frá Rússum. Þeir reyndust okkur ekki illa í viðskiptum þegar þeir hétu Sovétríkin og engin ástæða til að ætla að þessu lánatilboði hefðu fylgt einhverjir skilmálar.

Hverjum svo sem er um að kenna þá kallar þessi frétt á tafarlaus viðbrögð þeirra sem voru hér við völd þegar meint afþökkun átti sér stað. Ég ætla ekki að gefa mér að sendiherrann sé að fara með eitthvert fleipur.

Emil Örn Kristjánsson, 12.8.2009 kl. 15:53

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

AGS? Reddar öllu! Það sér hver maður þótt blindur sé og heyrnarlaus!!

Hrönn Sigurðardóttir, 12.8.2009 kl. 19:13

6 Smámynd: Jóhann Pétur Pétursson

Ég vil trúa því að allir þeir sem að taka að sér trúnaðarstörf fyrir Ísland svo sem þingmennska eða starf ráðherra starfi af fullum heildinum, eftir bestu getu og samvisku. Þeim til varnar það er núverandi sem og fyrrverandi ríkistjórn vil ég segja að þau eru að takast á við aðstæður sem að Íslendingar hafa aldrei áður staðið frammi fyrir. Sjálf heimsbyggðin hefur heldur ekki upplifað aðra eins kreppu í hátt í 100 ár. Þar af leiðandi vil ég halda að Íslensk stjórnvöld á þessum tíma hafi tekið vel ígrundaða ákvörðun þegar þeir höfnuðu láni frá Rússum og ákváðu að leita til AGS, hvort sem að sú ákvörðun sé rétt eða röng í dag.

Orð sendiherra Rússa er í besta falli hægt að túlka sem eftiráspeki. Það er engin leið að vita hvort að hlutirnir hefðu orðið svona og svona ef að þessu láni hefði verið tekið. Ég stórlega efast um það að sendiherra Rússa á Íslandi sé svo innvínklaður inn í málefni Íslenska ríkisins og Seðlabanka að hann geti fullyrt að svo sé.  Hvaða veltandi steinn varð til þess að skriðan féll, það skiptir bara ekki máli, eftir að skriðan hefur fallið.  Nú er það bara verkefni okkar hinn að takast á við afleiðingarnar. Og fólk gerir það með ansi misjöfnum hætti, eins og glöggt má sjá, bæði í samfélaginu en ekki síst hér á bloggheimum.

Jóhann Pétur Pétursson, 12.8.2009 kl. 19:50

7 identicon

Jæja enn og aftur ertu úthella fráfræði þína yfir á veraldarvefinn.

Og enn og aftur er ekki hægt að finna snefil af málefnalegri röksemdarfærslu í blogginu þínu. Af hverju áttu Vesturlöndin "að bjarga" okkar Íslendingum úr þessum vanda sem við komum okkur sjálf í, þegar þau eiga sjálf sárt að binda vegna kreppunnar.

Samkvæmt spám, munu þriðjungur Bandarískra barna þjást að vanæringu á næstum árum. Á sama tíma eru fjöldi heimilislausra í Bretlandi að stóraukast. Og svo eiga þessar þjóðir koma og fleygja peninga í okkur? Sérstaklega í ljósi þeirrar gífurlegu spillingu sem er að koma fram í dags ljósið, varðandi þessa fáránlegru lána sem var veitt til að fjármagna í sjálfum lánveitandanum (með sjálfa fjárfestinguna í tryggingu). Er einhver furða þá að erlendar þjóðir líta á okkur Íslendinga sem einn stóran brandara. Ég ljái þeim það ekki.

Síðan ertu að stinga upp á það að við gerumst undirlægjur Rússa?

Já endilega hópum okkur saman við þjóð sem útdeilir mannréttindabrotum eins og gull og græna skóga.

Auk þess mæli ég með því að þú notir orð eins og "afturhvarf", "afturvirkni" eða "eftiráhyggja" í stað "retrospektívi" og "hið snarasta","von bráðar", "innan skamms" eða "fyrr en varir" í stað "pronto".

Það er nógu slæmt að íslenskir táningar eru að misþyrma móðurmálinu okkar, að fullorðið fólk eins og þú sé ekki að taka þátt í því til að virðast "cool in an obvious way!.

Sveinn Guðbjörgsson (IP-tala skráð) 12.8.2009 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985790

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband