Leita í fréttum mbl.is

Bjarni Ben í afleysingum, bankar og heyrúllur að eilfíu amen

Þjóð sem hefur húmor fyrir heyrúllum getur ekki annað en komið standandi niður úr öllum sínum hörmungum.Ég fékk veinandi krúttkast yfir fegurðarsamkeppni heyrúllna sem sagt er frá í viðtengdri frétt.

Svo íslenskt og dúllulegt.

I friggings love it.

Annars er ég komin með hálfgert ógeð á fréttum, hvort sem þær koma í formi sjónvarps- eða blaða.

Nú eru það bankarnir.

Búið að semja við kröfueigenda.

Nýr Íslandsbanki að verða til innan skammt.

Fyrirgefið hvað þýðir allt þetta tal um bankana?

Á ég að gleðjast yfir þessu?

Verður líf okkar borgaranna í þessu landi marktækt betra út af þessum breytingum eða erum við enn sem fyrr bara leikmunir sem engu skipta?

Eru þessir nýju bankar trygging fyrir því að innistæðueigendur verði ekki rændir einn ganginn enn eins og gerðist s.l.  haust?

Og af hverju eru stjórnendur græðgisbankanna í skilanefndum hinna nýju?

Af hverju er þessi Birna í Íslandsbanka/Glitni enn bankastjóri?

Af hverju, af hverju, af hverju?

Og af því ég er byrjuð að spyrja:

Hvenær verður nýr formaður kosinn í Sjálfstæðisflokknum?

Bjarni Ben er bara afleysingarformaður, það sér hver maður.

Eða hvað?

Bjarni Ben er örugglega ágætis maður en er ekki best að þeir sem stjórna flokknum séu bara formenn flokksins?

Eins og þessi þarna Kjartan sem skammast út í Þorgerði Katrínu og tekur hana á teppið?

Æi ég er hætt að spyrja.

En ég fer ekki ofan að því að Bjarni Ben sé formaður í afleysingum.


mbl.is Vinningsrúllan valin í Kjós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Jenný:

Hann verður allavega að sýna okkur í flokknum að hann hafi töglin og hagldirnar í flokknum.

Ég sammála þér að ég hef það á tilfinningunni að gamla flokksklíkan, LÍU og nokkrir stórbændur stjórni öllu í flokknum! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 19.7.2009 kl. 21:46

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Guðbjörn: Ég hef það sterklega á tilfinningunni að þú hafir rétt fyrir þér í þessu.

Sorglegt.  Enda hef ég þessa tilfinningu af að fylgjast með BB, að hann sé í sumarafleysingum eða lausráðinn þar til annar formaður er fundinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2009 kl. 22:35

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

svona svona.... það er nú ekki mikið eftir af sumrinu!

Hrönn Sigurðardóttir, 19.7.2009 kl. 22:59

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir þitt djúpa innlegg mín kæra kerlingarálft.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2009 kl. 23:44

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Já við bíðum bara eftir því að Árni johnsen springi út..

hilmar jónsson, 19.7.2009 kl. 23:45

6 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Hilmar:

Árni fór nú mikinn í umræðunni um ESB.

En ekki kom nú mikið af viti út úr honum í þeirri umræðu.

Ég veit ekki hvað Evrópubúar hafa gert honum Árna, hann leggur mikla fæð á þá, nema Færeyinga! Síðan heldur hann mikið upp á Grænlendinga, en þeir eru auðvitað ekki búsettir í Evrópu! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.7.2009 kl. 00:30

7 Smámynd: hilmar  jónsson

ha ha ha....

hilmar jónsson, 20.7.2009 kl. 00:35

8 Smámynd: Jens Guð

  Árni hefur mikið dálæti á Færeyingum og Ameríkönum (þ.e. Grænlendingum).  Það er vegna þess að þeir spila lögin hans í sínum útvarpsstöðvum.  Það gera útvarpsstöðvar annarra landa ekki.  Þess vegna vill Árni eðlilega ekkert með það pakk gera.

  Það er rétt að Bjarni Ben er ekta afleysingaformaður.  Og ágætur sem slíkur.  Nú vill hópur harðsnúinna sjálfstæðisflokksmanna binda enda á afleysingartímabil Bjarna og setja Doddsson í formannsembættið aftur.  Engan hef ég heyrt setja fram kröfu um að Geir Haaarde taki að sér formennskuna á ný.  Skrítið.

Jens Guð, 20.7.2009 kl. 04:20

9 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ótrúlegasta fólk -ok ekki fjölmenni- er svo að biðja um að hraðspólað verði alla leið aftur í Þorstein Pálsson. Af því að hann sé svo "fullorðins"...

Með allri virðingu fyrir þeim ágæta manni; Rétt´upp hönd, sem komst einhvern tímann í gegn um heilan leiðara eftir hann... (Eða langlokurnar sem hann fær ennþá að skrifa í Fréttablaðið í sárabætur fyrir ritstjórastólinn).

Sé svo heldur ekki alveg að áhyggjur af því hver sé formaður Sjálfstæðisflokksins þessa dagana séu forgangs...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.7.2009 kl. 04:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985883

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband