Leita í fréttum mbl.is

Ég sem sú "þjóð" sem ég óneitanlega er

Guðlaugur Þór, Birkir Jón og Eygló Harðardóttir fóru mikinn í ræðustól þingsins í dag.

Þeim finnst það niðurlægjandi fyrir þing og þjóð að stjórnarandstöðunni væri neitað um fund í nefndinni.

(Álfheiður Ingadóttir formaður nefndarinnar neitaði þessu).

Ég veit ekkert um efnisatriði málsins, það má vel vera að það sé verið að niðurlægja Guðlaug og félaga alveg endalaust og botnlaust og það er þá ekki voða gaman, neinei.

En..

varðandi mig sem "þjóð" sem ég er og enginn getur á móti mælt, þá er  núverandi meirihluti á Alþingi nokkur þúsund ljósár í að ná í skottið á íhaldinu með að niðurlægja mig, þeir sem lugu, földu, pretttuðu og þögguðu allt í hel í hruninu í haust og í kjölfar þess.

Þess vegna varð búsáhaldabylting krakkar mínir offkors.

Best að taka fram að ég hef ýmislegt við vinnubrögð Alþingis að athuga og á ég þá við meiri- OG minnihluta svo engin haldi að ég sitji í einhverri andskotans júfóríu vegna þess að sá flokkur sem ég kaus situr nú í ríkisstjórn.

En..

sem sagt, þá á Gulli fyrrverandi heilbrigðisráðherra, styrkþegi og gulldrengur ekki að hætta sér út á þetta svell.

Hann gæti runnið illilega á afturendann.

Mikið rosalega er ég annars hress.

En þið villingarnir ykkar?


mbl.is Niðurlægjandi fyrir þingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þokkaleg hress bara, takk fyrir.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.5.2009 kl. 17:26

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Koma þessum krakkagreyjum í skilning um að MORFIS ræðukeppnin er búin og að alvara lífsins er tekin við....eða bara senda þau í í einhverja fallega vík vestur á fjörðum að moka sand

Sigrún Jónsdóttir, 26.5.2009 kl. 17:37

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þetta er nú alveg drepfyndið,  (þetta er eins og efstibekkur í Grunnskóla)., þau eru svo vön að fylgja forystusauðnum og flokksræðinu að þau kunna ekki, og þekkja ekki skil,  á skilvirkum gagnsæjum vinnubrögðum, greyin.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 26.5.2009 kl. 18:30

4 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Góðan daginn,  er komin með krónísk fráhvarfseinkenni þegar "einhver" sem hefur vafasama (fyrir hrun) fortíð opnar munninn, í því skyni að dissa þá sem standa núna sveittir með kræklóttann kúst að sópa upp ósómann.

Þeir hafa ekki einu sinni vísdóm til að þegja.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 26.5.2009 kl. 20:56

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nefnilega! Morfis hefur runnið sitt skeið á enda hjá þessum "krökkum". Nú er rétti tíminn til að bretta upp ermar og fara að láta verkin tala!!

Hrönn Sigurðardóttir, 26.5.2009 kl. 21:49

6 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Var það ekki önnur tveggja systra úr Tungunum sem rann beint á rassgatið og sneri sig á hæl?

Vissi ekki að þau hefðu verið svona mörg systkinin

Einar Örn Einarsson, 27.5.2009 kl. 00:31

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 alltaf hress hérna megin

María Guðmundsdóttir, 27.5.2009 kl. 07:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband