Leita í fréttum mbl.is

Sjá ekki fullan klæðaskápinn fyrir jakkafötunum

 v

Það er bara frábært þegar kvarnast úr flokkum og nýjir koma inn.

Endurnýjun, endurnýjun, börnin góð.

En að öðru og ekki eins gleðilegu fyrir mína parta.

Þegar minnihlutastjórnin var stofnuð svall hjarta mitt af stolti yfir jöfnu kynjahlutfalli í ríkisstjórn.

Loksins, hugsaði ég, loksins voru verkin látin tala.

Stutt sæla það.

Ég er fúl út í nýja ríkisstjórn fyrir að hafa ekki haldið kynjahlutfallinu jöfnu.

Báðir þingflokkar eru stútfullir af klárum og reynslumiklum konum og engu síðri en karlarnir.

En það er eins og það sé orðið að náttúrulögmáli í höfðinu á karlkyns ráðamönnum í þessu landi að sjá ekki kjaftfullan klæðaskápinn fyrir jakkafötunum.

Falleinkunn hér.


mbl.is Enn einn kjörinn borgarfulltrúi mun hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Garún

Mig grunar að jakkaföt séu að fara úr tísku.  Alla veganna er ég farin að tengja jakkaföt við eitthvað leiðinlegt.  T.d maður í jakkafötum er annað hvort á leiðinni inná þing, í fermingaveislu, í jarðaför (sína eigin eða annarra), að selja tryggingar, votta jehóvi, að koma með stefnu, á ráðstefnu, eða bara plain leiðinlegur og nennti ekki að fara í önnur föt.  Fyrir mér er að velja sér jakkaföt fyrir daginn eins og að nenna ekki að greiða sér.  Hef orðið þess vör síðustu viku að hann Sigmar formaður Framsóknar er búin að vera í jakkafötum á leikriti, að kaupa sér ís og að kaupa sér önnur næstum alveg eins jakkaföt.  ok ok ég viðurkenni ég er stalkerinn hans og fylgi honum eins og skugginn, en það er heldur ekki erfitt!  Maður eltir bara jakkaföt og þá er 50/50 líkur á að það sé hann hvorteðer.

Garún, 12.5.2009 kl. 10:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband