Leita í fréttum mbl.is

Komist yfir þetta

Stundum finnst mér að íslenskir fjölmiðlamenn ættu að vera í Sálarrannsóknarfélaginu.

Þeir lesa út úr orðum fólks alls kyns meiningar, virðast sjá og vita meira en sá sem talar.

Svo myndu sumir þeirra smellpassa sem túlkar hjá hinum Sameinuðu Þjóðum.

Nei, ég er að grínast með túlkadjobbið. 

Það myndi bresta á með styrjöldum út um allt ef túlkunin yrði eitthvað í líkingu við það sem við erum að sjá þessa dagana.

En samt er ég nokkuð ánægð með íslenska fjölmiðlunga, þeir eru ekki slæmir, en eiga þessa dulrænu hæfileika sameiginlega á stundum.

Fyrir mér var Steingrímur að gagnrýna einhliða málflutning.

Það geggjaða við þetta er að fjölmiðlamennirnir eru ekki í tiltakanlegri fýlu.

Það eru þeir sem telja sig til elítunnar sem eru alveg ferlega sárir.

Ef þið voruð í vafa um hverjir það eru sem tilheyra elítunni að eigin mati lesið þá bloggin þeirra.

Þau eru öll einhvern veginn svona:

"Ég er elítan og veit ekkert."

"Munur að teljast til elítuuuuunnnar!"

eða..

"Ó, ég vissi ekki að ég væri í elítunni þó ég hafi vit á Evrópusambandinu, sooorrrí."

Get over it!

Rosalega er mikið af misskildum snillingum á sjálfshátíð á þessu litla landi.

Grátið mér stórfljót fyrir hádegi og þegið svo.


mbl.is Elítan vill í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ekki elítan, en til hamingju með kosningarnar.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 11:57

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Sumir fjölmiðlamenn kunna að lesa milli línanna, einkum þeir sem hafa lengi verið þingfréttamenn, samanber Jóhanna Vigdís, hún er alveg rosalega góður fréttamaður sem veit lengra en nef hennar nær.

En ég hef ekki alveg getað greint þessa "elítu" hjá formanni VG, nema ef vera skildi þeir sem voru hjá Agli, bæði á kosningavöku, og í gær. Og svo stjórnmálafræðingar eins og t.d. Ólafur Harðar.

Ég held nú bara að "sumir" hafi verið of þreyttir og svefnvana, það sé aðal skýringin á þessum pirring, sem fram kom í gær.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 27.4.2009 kl. 12:08

3 identicon

Til hamingju með kosningarnar.

Langar bara benda þér á að þessi spámennska fjölmiðla og talsmáti bloggara er búinn að tröllríða öllu alveg frá því í haust.  Bara beinst í aðrar áttir hingað til. 

En ég vona að VG taki þetta á hornin og standi við orð sín og sannfæringu.  Þeim kemur ekki til með að verða kennt um neitt sem miður sem minni flokkur í ríkisstjórnarsamstarfi skv. reynslunni unanfarin ár.

Og gera eitthvað NÚNA.  Þjóðinni er að blæða út.

Sigrún G. (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 12:23

4 identicon

Talandi um fjölmiðlafólk og kosningar, þá fannst mér hún Agnes Braga koma verst allra út í umræðum Sjónvarpsstöðvanna eftir að kosningaúrslit lágu fyrir. Hún gat engan veginn leynt gífurlegum vonbrigðum sínum með afhroð Sjálfstæðisflokksins og tók að kalla Steingrím skallagrím, sem er náttúrulega dónalegt og heimskulegt af jafn reyndri fjölmiðlakonu og hún er. En burt frá geðillu stuðningsfólki Sjálfstæðisflokksins ( sem kann ekki að taka ósigri ), þá vil ég óska konum til hamningjum með jafnréttið sem verður á Alþingi næsta vetur. Það er bara Sjálfstæðisflokkurinn sem sannar að þar fer karlrembuflokkur af verstu gerð.

Stefán (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 13:15

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.4.2009 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.