Leita í fréttum mbl.is

Eldhúsguðir, drekar og fíflar (fífl)

Björn myndi flytja þúsund ræður til að "verja heiður Alþingis"!

Hvaða heiður?

Þið eruð búnir að troða þeim heiðri í svaðið kallinn, ef nokkur var eftir þegar allt fór til andskotans.

Þúsund ræður!

Rosalega hljómar það eins og eitthvað úr kínversku ljóði.

Ó þú fjólubláa nótt hinna þúsund eldhúsguða, fimmtánþúsund dreka og hlaupandi fífils.

Jón Baldvin kenndi mér íslensku í Hagaskóla sællar minningar.

Hann sagði að það sem maður gæti ekki sett í x margar setningar, væri ekki þess virði að það væri yfir höfuð sagt.

Eða var það Finnur Torfi kollegi hans?

Æi, man það ekki, annar hvor.

Enda fóru þeir báðir til Ísafjarðar og opnuðu menntaskóla.

Engar fokkings málalengingar þar.

Jabb.


mbl.is Myndi fagna þúsund ræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Björn Bjarnason yfirgefur Alþingi algjörlega ærulaus maður og rúinn öllu trausti almennings. Það gerir hann sem einn fremsti fulltrúi aumasta stjórnmálaafls Evrópu í dag, Sjálfstæðisflokksins. Þúsundir eða tugþúsundir fyrrum stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins yfirgefur nú þetta sökkvandi skip ( skrýmsli ), sem kom þjóðinni nánast í gjaldþrot. Sjálfstæðisflokkurinn reyndist álíka traustur og Titanic. vera. Björn Bjarnason stóð fram í stafni veifandi höndum þegar flokkur hans rakst hér og þar utan í og sökkti þjóðinni í skuldafen, en hann kann ekki að skammast sín fyrir það frekar en Davíð og Geir. Farið hefur fé betra en sá þríhaus.

Stefán (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 15:27

2 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 thú ert alveg ágæt sko.

hafdu góda helgina, knús hédan

María Guðmundsdóttir, 17.4.2009 kl. 15:32

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nei það var Finnur Torfi

Finnur Bárðarson, 17.4.2009 kl. 16:10

4 identicon

men in black/skrýmsladeildin yfirgefur alþingi með skömm...

zappa (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985744

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband