Leita í fréttum mbl.is

Og vitið þið hvað?

talk-to-the-hand 

Ég var að velta því fyrir mér fyrr í kvöld hvort það væri ekkert líf, ekkert bloggefni, ekkert stuð, fyrir utan pólitík, hústökur og bankahrun.

Jú, víst er það.  Það má blogga um ýmislegt.

En þá vandast málið.

Ég get ekki bloggað um drauma, þú treður ekki heilaflippi næturinnar, sem sjaldnar meikar sens, upp á fólk sem rekst inn á bloggsíðuna þína.

Ég get ekki bloggað um veikindi.  Ég veit ekkert leiðinlegra en veikindi, þó það megi geta þess hér að ég er raddlaus á sjöunda, með sprungna hljóðhimnu og skapvonsku í sögulegu hámarki.

Ég get hins vegar bloggað um allt og ekkert, skrifað heilu færslunar um eitthvað vísindafokk, en ég er ekki stemmd fyrir fíflagang á meðan ég bíð eftir kosningum.

Sko, þetta með veikindin (gat verið ég er komin á fullt), það er ekkert leiðinlegra en fólk sem lifir í veikindum.

Bloggar um þau.

Talar um þau.

Veltir þeim fyrir sér.

Les um þau.

Er þau.

Hm..

Hef ég sagt ykkur að ég er með sprungna hljóðhimnu?

Var ég búin að segja ykkur að ég get ekki talað?

Gleymdi ég að geta þess að mig verkjar í báðar hnéskeljar eftir bænahald morgunsins?

Örugglega ekki.

Og vitið þið hvað?

Í nótt dreymdi mig draum.

Hann innihélt Bjarna Ben, bókhald Guðlaugs Þórs, John Lennon, hlaðið kökuborð en ekkert kaffi.  Leit að fjársjóði, dollara í búntum og týnda skó.

Það má geta þess að Bjarni Ben er vita laglaus samkvæmt draumi.

En ég ætla ekkert að blogga um það neitt.

Þið mynduð ekki skilja upp né niður.

Segi svona.

Góða nótt aularnir ykkar.

"Talk to the hand"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Kæra Jenný;  Nýverið dreymdi mig köflóttan borðdúk, sveittan garðálf, Hannes Hólmstein, Derrick heitinn og sex skoska fjárhunda -alla með skotthúfur að æfa ræl með Þjóðdansafélagi Reykjavíkur.

Hef eiginlega ekki á heilli mér tekið síðan.   Treysti þér kvenna best til að ráða þessi ósköp fyrir mig...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.4.2009 kl. 01:57

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jæja góðan daginn bara

Jónína Dúadóttir, 17.4.2009 kl. 06:09

3 identicon

Mig dreymdi Davíð Oddsson í doppóttum fötum  borðandi brauð með malakoffi og viti menn.....það snjóaði daginn eftir

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 07:22

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jenný hvaða bók ertu að lesa núna?  Hér á að vera broskall! 

Ía Jóhannsdóttir, 17.4.2009 kl. 08:25

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mig langar í kaffi......... hey og kökur! Bezt ég skondrist út til Guðna bakara.

Hrönn Sigurðardóttir, 17.4.2009 kl. 09:02

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrönn: Gott að geta orðið að kökuliði.

Ía: Dali Lama og Sjöunda skotmarkið.  En ég er að drekka berserkjasveppate.  Heldurðu að það sé málið?  Hahaha.

Ragna: Þú meinar að þú hafir fengið martröð? Múha.

Jónína: Sömuleiðis.

HH: Sko, þetta er djúpur draumur, við verðum að setjast niður með sérfræðingum til að fá botn í þennan.  Ég gæti trúað að þarna lægi svarið við endurlausn Íslands ásamt framtíða samskiptum okkar við IMF.

Ójá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.4.2009 kl. 09:09

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehe Jenný mín, nú ertu farin að flippa aðeins.  Nú er bara rúm vika eftir til kosninga, svo þú ættir að hafa þetta af   En vonandi batnar þér fljótt og vel bestust mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2009 kl. 09:11

8 identicon

Það kíktu við fulltrúar frá Sjálfstæðisflokknum í vinnuna hjá mér í gær. Það var hlegið að bullinu í þeim út í eitt og þeir fóru út snippir og snauðir ( af atkvæðum ). Við hverju bjóst þetta aumingjalið eiginlega ? Loksins eru íslendingar að vakna upp af sínum þyrnirósarsvefni, nema auðvitað 20 % hjörðin sem vill leyfa Sjálfstæðisflokknum að leiða þjóðina áfram til slátrunar. Það lið vakir sofandi og dreymir vonandi illa.

Stefán (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.