Leita í fréttum mbl.is

Leyfum það - leyfum það

Hass er dóp, svo mikið veit ég.

En ef það er hægt að hjálpa fólki með sjúkdóma með því að nota jurtina þá á að sjálfsögðu að búa svo um hnútana að það sé hægt.

Eftir hverju er verið að bíða?

Hjálpar jurtin ekki krabbameinssjúklingum, fólki með taugasjúkdóma og svoleiðis?

Leyfa það, leyfa það.

En fjandinn hafi það að það þarf að halda vel utan um þessi mál.

Ég sé enga ástæðu til að bæta aðgengi að dópi fyrir unga fólkið.

(Eða neytendur hugbreytandi efna svona yfir höfuð).

Og hana nú.


mbl.is Kæmi til greina að leyfa kannabislyf á undanþágu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Meinhornið

Ég spyr bara, dytti einhverjum í hug að banna morfín?

Meinhornið, 22.3.2009 kl. 11:45

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ok - þá er það hin hliðin....

Fyllist þá ekki allt af "sjúklingum" sem þurfa að fá þetta lyf? Fólk gerir sér upp veikindi út af minni ástæðu en vímunni!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.3.2009 kl. 12:42

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Skorrdal fyrir þessi fallegu orð. 

Hrönn: Það verður að leggja þá ábyrgð á herðar læknanna að sjá í gegnum þá sem eru að misnota.

Alveg eins og með önnur lyf.

Meinhorn: Varla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.3.2009 kl. 14:05

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jú jú... svona álíka og þá ábyrgð sem ég lagði á herðar stjórnmálamanna um að þeir vissu hvað fram færi í bönkunum fyrir framan nefið á þeim! Nú eða þeim læknum sem í dag skaffa verkjatöflur og róandi hægri vinstri eins og ekkert sé...

Skorrdal! Andaðu með nefinu. Ekki bjóstu í alvöru við því að allir væru sammála lögleiðingu kannabis?

Hrönn Sigurðardóttir, 22.3.2009 kl. 14:47

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vil ekki lögleiða kannabis.  Hreint ekki.

En ef það virkar fyrir veikt fólk, gerir því lífið auðveldara þá finnst mér að vel megi athuga það.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.3.2009 kl. 15:00

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það má líka nefna að verkjalyf sem innihalda codein en það er unnið úr ópíum.

Finnur Bárðarson, 22.3.2009 kl. 16:15

7 Smámynd: halkatla

Jenný og Skorrdal eru best

halkatla, 23.3.2009 kl. 01:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985877

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband