Leita í fréttum mbl.is

Söknuđur

 konamađur

Allt í einu greip mig sterkur söknuđur.

Söknuđur eftir tímunum fyrir hrun, ţegar rannsóknir um selvfölgleligheter voru skemmtilegt bloggefni og gátu veriđ hápunktur á venjulegum fréttadegi.

Ţá voru vandamálin í óspennandi kantinum og mađur gat fariđ svo skemmtilega á límingunum út af smámunum.

Svo hefur kreppan orsakađ pjúra minnisleysi hjá mér, ég sverđa.  Ég var t.d. búin ađ gleyma jarđskjálftanum í maí sem í eđlilegu árferđi hefđi veriđ toppur stórviđburđa árs og aldar. 

Ég er sem sagt minnislaus á tilveru mína fyrir hrun.

Borđađi ég, svaf ég, andađi ég?  Svei mér ţá, ţađ hlýtur ađ vera en ég man ţađ ekki.

En ađ rannsóknum um borđleggjandi hluti.

Auđvitađ vinna mömmurnar á mörgum heimilum 40% meira en feđurnir.

Ţađ er misréttiđ gott fólk sem gerir vinnustundir fleiri hjá "hinu" kyninu.

Annars var ţetta ekki svona ţegar börnin mín voru lítil.

Ţađ var í miđri kvenfrelsisbaráttu og allt mćlt međ málbandi.

Ţú eldar, ég vaska upp, ţú ţvćrđ, ég hengi upp, ţú tekur til á lóđinni, ég baka!.

Nei, gargađi ég síđan ţegar ég kom upp til ađ anda, ég baka ekki, ţađ er ekkert aumingjalegra en bakandi kona ef hún hefur ekki atvinnumannspróf á hrćrivél og vinnur fyrir sér međ bakstri.

Svo ég bakađi aldrei. 

Svo eftir međferđina 2006 hef ég bakađ eins og motherfucker.

Ţetta endar međ bás í Koló, ég sverđa.

Ekki samt segja neinum frá ţessu bökunaróeđli í mér.

Ég hef mannorđ ađ verja.


mbl.is Mćđur vinna 40% meira en feđur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Lofa ađ segja engum frá Jenný mín.

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 16.3.2009 kl. 20:50

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já, ţađ liggur viđ ađ mađur sakni fyrir kreppu vandamálanna....og ţó ekki.  En ég sakna hippatímans

Sigrún Jónsdóttir, 16.3.2009 kl. 21:00

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ţessi könnun bendir til ađ karlmenn verđi ađ sinna heimilsstörfum betur og til jafns á viđ konur. Karlremba er algengari en margir halda og mikilvćgt ađ ţeir menn komi sér inn í 21. öldina og gefi konum ekkert eftir í heimilisstörfum.

Hilmar Gunnlaugsson, 16.3.2009 kl. 21:07

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég dauđskammast mín  .. ţađ er misrétti á okkar heimili, karlinn vinnur miklu meiri heimilisstörf, ég vinn ógesslega mikiđ utan heimilis og fć húshjálp einu sinni í mánuđi (mitt framlag) .. ađ vísu fyrir utan ađ elda yfirleitt matinn, sem mér finnst svo skemmtilegt ađ ég tel ţađ ekki til starfa!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.3.2009 kl. 21:37

5 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

......hvernig gastu gleymt jarđskjálftanum?? Ţykir ţér ekkert vćnt um mig?

Annars sakna ég líka ţrćtuepla á borđ viđ ţađ hvar hausmynd af Tómasi Guđmundssyni skuli standa eđa ekki standa.....

Hrönn Sigurđardóttir, 16.3.2009 kl. 23:13

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég ver nú alveg mitt konudýr enda finnzt mér hún mjög dugleg.

Hún til dćmiz sér ađ meztu leiti um ađ fóđra bćđi ţvottavél & ţurrkara & hún getur ekkert gert ađ ţví á međan ég er í alvöru vinnu sé hún bara kennari viđ kennzlu.

Ţađ ţarf líka konu einz & hana & ég er stoltur af henni !

Steingrímur Helgason, 17.3.2009 kl. 00:18

7 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já ég sakna tímans ţegar ég var bara fúl yfir ađ hafa keypt skemmdan lauk

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 17.3.2009 kl. 00:39

8 Smámynd: Hörđur B Hjartarson

Húsmóđirin á ađ standa fyrir innann eldavélina ( G.Á ) .  Enda jafnast ekkert á viđ heimabakkelsi , ef ég baka ţađ ekki .

Hörđur B Hjartarson, 17.3.2009 kl. 02:19

9 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Ég er skelfinu lostin yfir ţessu vinnuálagi á mćđur, kreppa eđa ekki kreppa, og gildir ţá einu ţótt ţađ geti veriđ gaman ađ baka, bóka ţađ ţá bara sem tómstundir til ađ laga tölfrćđina. Úff.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.3.2009 kl. 02:39

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bakarđu.... ?

Jónína Dúadóttir, 17.3.2009 kl. 06:03

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég elska ţig Hrönnsla en er í kreppulegu blakkáti.

Ragna: Sko, stćkkađu myndina og sjáđu textann.  Hehe.

Já ég baka.

Anna: Ég deili ţeim áhyggjum međ ţér.

Takk öll.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.3.2009 kl. 09:16

12 Smámynd: Ellert Júlíusson

Ţetta lítur nú bara girnilega út, ţetta sem konan hefur eldađ á ţessari mynd.

Ellert Júlíusson, 19.3.2009 kl. 08:29

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.