Leita í fréttum mbl.is

Jói á hjólinu

jói 

Forsetar Bandaríkjanna mega ekki skrifa innkaupalista öðru vísi en að vera tilnefndir til bókmenntaverðlauna - og svo fá þeir þau og það er eins víst og að Sjálfstæðismenn eru með heví málþóf niður á þingi!

En hvað um það.

Ég kalla eftir skoðanakönnun!

Hvað eru margir sem horfa á Ísland í dag á Stöð 2 eftir að Nína og Geiri tóku við taumunum?

Ég sver það að ég held að áhorfstalan hljóti að vera á pari með tölunni sem Sjálfstæðisflokkurinn fær í skoðanakönnunum.  Ca. 30%.

Eins og mér finnst það óskiljanlegt að 30 prósentukvikindi vilji kjósa íhaldið þá gæti ég trúað að þessir sömu Einsteinar horfi á nærmyndir af hverjum slordóna sem mígið hefur utan í tré á fylleríi og náð að selja ömmu sína hæstbjóðenda.

Meira að segja fréttirnar eru í sama stíl á Stöð 2, svona drífum þetta af, segjum frá því allra nauðsynlegasta og förum svo í auglýsingar.

Annars er þetta ágætt fyrir RÚV, ég er farin að komast í tilbeiðslukennt ástand þegar ég horfi á fréttir og Kastljós, ég sverða og lýg því ekki.

Tárast af þakklæti yfir hverri einustu frétt og atriði.

Alveg: Takk fyrir að segja mér þetta og láta mig trúa að þið meinið það.  Snökt.

En á þessum tímum breytinga, umróts, spillingarmála og komandi kosninga við undarlegustu aðstæður sem ég hef upplifað, þá málar Stöð 2 nærmyndir af einhverju liði í pastellitum, fótóshoppuðum og alveg ógeðslega 2007.

En..

svo var ég að heyra að þeir ætluðu ekki að vera með kosningasjónvarp.

Þá var mér allri lokið.  Ekkert kosningasjónvarp?  Er þetta skólasjónvarp eða æfingabúðir fyrir hálfvita og væntanlega kaupendur vídeóleiga?

Sko, gott fólk, af hverju í andskotanum eruð þið að borga fyrir þetta rugl dýrum dómum?

Vídeóleigan er úti á næsta horni.

Eða eins og í mínu tilfelli inni í friggings sjónvarpinu.

Fjarstýringin bjargar lífi mínu hvern dag.

Á morgun vonast ég eftir að fá nærmynd af Jóa á hjólinu.


mbl.is Obama hlýtur tilnefningar til bókmenntaverðlauna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég get tekið þátt í þessarri könnun og staðfest að ég horfi ekki á Ísland í dag, ég er Kastljóskona.

Jói á hjólinu er áhugaverðari en margir aðrir sem dregnir eru fram í dagsljósið.

Ragnheiður , 10.3.2009 kl. 20:42

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Það er alveg klárt að þegar Ísland í dag tekur nærmynd af Jóa á hjólinu þá mun ég vera límd við imbann og læt ekki Kastljós eða RUV fréttir trufla mig. Jói rokkar!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 10.3.2009 kl. 21:42

3 Smámynd:

Þótt ríkissjónvarpið hafi stöðvartvövæðst þegar Páll og hans lið gekk þangað yfir þá má það nú eiga það að úr því hefur ræst og þar sér maður oft fréttir sem eru fréttir. Hins vegar er botninn algerlega dottinn úr stöð2 og alls óskiljanlegt að nokkurri viti borinni manneskju detti í hug að borga fyrir það sem þar er í boði.

, 10.3.2009 kl. 21:50

4 identicon

Horfi ekki á Ísland í dag og er bráðum búin að vera laus við Stöð 2 í ár.  Tek ekki þátt í svona vitleysu, enda hef ég aldrei og mun aldrei kjósa Sjálfstæðisflokkinn, verð líka seint auðkona, hef reyndar stefnt að því að verða ríkur kennari en fólk hlær bara að mér.

Erna Kristín (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 23:05

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Held að ég hafi aldrei horft á Ísland í dag.  Og er búin að segja stöð2 upp fyrir ári síðan.  Sakna enskis þar á bæ. 

Ég er líka alveg bit á fólkinu sem kallar sig Sjálfstæðismenn, þau eru ein og hópur af gargandi villigæsum þar sem minkur hefur komist inn til.  Þau fremja hvert asnastrikið af öðru, og svo situr sendinginn frá okkur í miðjum vefnum og hælist um.  Mikið er ég feginn að hann fór.  Megi bersa sem mest á honum fram til kosninga. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2009 kl. 09:24

6 identicon

Iss er löngu hætt að horfa á ísland í dag.Jói á hjólinu já ,ég man eftir honum.Annars hitti ég Tryggva á hjólinu síðasta sunnudagskvöld.Hann var hress

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 09:45

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, þið eruð ágæt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.3.2009 kl. 09:53

8 identicon

Já verð nú bara að segja, að ég er mjög duglegur hérna í útlöndunum að horfa á ýmislegt Íslenskt, en hef ekki einu sinni reynt að horfa á Íslandi í Dag.

Eini frétta þátturinn sem varið var í á StöðTVÖ var Kompás og þar sem það fittaði ekki lengur inn í Séð&Heyrtvæðinguna þá var sá þáttur auðvitað tekinn af dagskrá.  Gott að vita að þátturinn sem hefur unnið til flestra verðlauna á stöðTVÖ fyrir utan Sjálfstættfólk, er það fyrsta sem fær að fjúka í kreppunni.

Unnsteinn J (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 10:28

9 identicon

Langar líka að bæta við, ég vil sjá Kompás aftur, á annari stöð og ég vil að Lára Hanna verði með í teyminu!

Myndi gera góðann þátt MIKLU BETRI

Yfir og út

Unnsteinn J (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.