Leita í fréttum mbl.is

Dokjúmentasjón um ekki neitt

Svei mér þá ef öll íslenska pressan hangir ekki í raðfullnægingum yfir Fáfni, þarna plebbafélaginu.

Þeir eru búnir að standa og fylgjast með hvort vítisenglar séu með þessari og hinni flugvélinni síðan á fimmtudag, ég legg ekki meira á ykkur.

Ekki að þeir séu sunnudagaskóladrengir í Hell´s angels, en fyrr má nú vera áhuginn.

Sjaldan hefur verið jafn mikið skrifað á stuttum tíma um partígesti sem ekki eru í partíinu.

Nú hangir blaðamaður Moggans með ljósmyndara fyrir utan Fáfnisfélagsheimilið og dokjúmenterar einhverja mótórhjólanörda í sígópásu fyrir utan hús.

Vá, spennandi.

Stundum læt ég mér detta sú fásinna í hug að pressan bíði spennt eftir að allt fari í bál og brand.

Að minnsta kosti tel ég að henni væri það ekki á móti skapi.

Cry me a river.


mbl.is Fáfnismenn fagna í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Mér fannst gott að þeir komu ekki.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 7.3.2009 kl. 22:58

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Óskylt málinu, en ég stóðst ekki mátið að benda feministum á þetta blogg: http://tomasallansigmundsson.blog.is/blog/tomasallansigmundsson/#entry-822576

Jón Steinar Ragnarsson, 7.3.2009 kl. 23:22

3 Smámynd: Tómas

www.lifsvernd.com

Tómas, 7.3.2009 kl. 23:36

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú og þín forneskja Tómas er afþökkuð hér á landi og árás ykkar á heilbrigðisþjónustuna og almannaheill varðar sennilega við lög. 500.000 börn deyja úr Aids á ári vegna ykkar, svo ekki sé talað um aðrar milljónir manna.  30.000 börn deyja á dag úr hungri og vosbúð vegna ykkar.  Þið berjist gegn því að 9 ára stúlka, sem er þunguð af tvíburum eftir nauðgun fósturföður síns, fái fóstureyðingu og dæmið alla, sem aðstoðuðu hana til helvítisvistar og útskúfunnar úr kirkjunni.

Þið rekið hér nýjar galdraofsóknir og nagið ykkur vafalaust í handarbökin að fá ekki að brenna fólk.  Nú er komið nóg af ykkur!

Jón Steinar Ragnarsson, 7.3.2009 kl. 23:44

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Tómas, halltu þér frá þessari bloggsíðu með linka inn á klikkunina sem þú stendur fyrir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.3.2009 kl. 23:49

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég kæri mig lítt um þessa glæpamenn til landsins en mér er til efs að þetta sé rétt að farið.

Ég meina að varna fólki ferðafrelsis til landsins ÁÐUR en það hefur brotið af sér.

En aufúsugestir væru þeir ekki, það er nokkuð ljóst.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.3.2009 kl. 23:50

7 Smámynd: Anna Heiða Stefánsdóttir

Eitt er víst, ef við vitum ekki hvað er íllt/slæmt (Hell´s angels og tómas) þá vitum við ekki hvað gott er. (þú Jenný t.d.)

Anna Heiða Stefánsdóttir, 8.3.2009 kl. 01:35

8 Smámynd: Guðmundur Zebitz

Ja... eitt er víst... að kalla Hells Angel góða gaura er líka eitt almesta oxymoron sem ég hef heyrt

Guðmundur Zebitz, 8.3.2009 kl. 09:50

9 Smámynd: Óskar Steinn Gestsson

Hells Angels= 2.300.000 meðlimir, 9.335 á sakaskrá.

Frímúrarareglan= 2.350.000 meðlimir, 19.937 á sakaskrá.

Hvað viljiði svo ræða?

Óskar Steinn Gestsson, 8.3.2009 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985793

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband