Leita í fréttum mbl.is

Jú, jú, jú - nei, nei, nei

Í bankahruninu beið álit mitt á fjármálabatteríinu stóran hnekki.

Eða hefði gert hefði ég einhvern tímann séð lágmarks glóru í græðginni.

Ég missti auk þess trú á þeim sem áttu að gæta hagsmuna þjóðarinnar, hvar sem þeir í stól voru settir.

Látum það nú eiga sig, en það er ekki allt búið enn.

Það versta mögulega er að finnast maður ekki getað trúað neinu sem sagt er.

Það sannast nefnilega aftur og aftur að það er logið að okkur úr öllum áttum.

Ekki lagast málið þegar fólk heldur áfram að hanga á lyginni og heldur því blákalt fram að það hafi sagt satt allan tímann.

Ég er að tala um allar fullyrðingarnar og mótfullyrðingarnar sem dunið hafa yfir okkur frá því í haust.

Hér er enn ein lygafléttan komin af stað.

Í DV í dag má lesa þetta: "Mánudaginn 6. október sagði Tryggvi Þór Herbertsson, þáverandi efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde forsætisráðherra, honum frá samskiptum þá um nóttina við Landsbankamenn vegna möguleika á flýtimeðferð Icesave-reikninganna inn í breska lögsögu. Geir hefur aftur á móti neitað því afdráttarlaust að hafa vitað nokkuð um málið. Breska fjármálaeftirlitið hefur nú staðfest að viðræður um flýtimeðferð vegna Icesave-reikninganna fóru fram með þátttöku forstjóra eftirlitsins."

Davíð kannast ekki við málið!

Geir segir nei, nei, nei.

Tryggvi Þór Herbertsson segir jú, jú, jú.

Björgúlfur Thor segir víst, víst, víst.

Látum vera að sukkbaróninn af Banka láti sannleikann ekki þvælast of mikið fyrir sér.

Nú eða þá fyrrverandi Seðlabankastjóra sem hefur lifað í sínum sérhannaða heimi.

En fyrrverandi forsetisráðherra, þá æðsti maður þjóðarinnar og fyrrverandi aðstoðarmaður hans?

Ljúga þeir eins og sprúttsalar enn einn ganginn?

Ó fyrirgefið, ég var búin að gleyma því að það er svo 2007 að ljúga, bara í góðu lagi, tilgangur helgar meðal og allt það kjaftæði.

Sumir eru greinilega enn þar staddir.

DV-fréttin í heild sinni.

Annars er ég farin út í garð og ætla að láta gula fíflið kveikja í mér vorið.

Hagið ykkur rétt á meðan villingarnir ykkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Þessi mál eru öll með ólíkindum.  Hins vegar hefur lengi verið vitað að peningar eru fallvaltir.

Fullar grindur
sá eg fyr Fitjungs sonum.
Nú bera þeir vonar völ.
Svo er auður
sem augabragð:
hann er valtastur vina.

Þorsteinn Sverrisson, 5.3.2009 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985755

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband