Leita í fréttum mbl.is

Kristinn H. Gunnarsson farinn úr Frjálslynda

Ég er spákona eða sjáandi, ég sverða.

Fyrir nokkrum dögum bloggaði ég um að nú hlyti Sleggjan að ganga úr Frjálslyndum og yfir í Sjálfstæðis ef mark er takandi á því hvernig hann byggir málflutning sinn á Alþingi.

En rétt í þessu var verið að lesa úrsagnarbréf mannsins úr flokknum á Alþingi.

Ég bíð eftir að hann gangi í Sjálfstæðisflokkinn eins og hinn óþekktaranginn Jón Magnússon.

En kannski þarf ekki spádómsgáfu til að sjá fyrir um hegðan ákveðna manna.

Þeir eru svo fyrirsjáanlegir.


mbl.is Kristinn hættur í þingflokki frjálslyndra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég spyr þig sem sjáanda:  Taka þeir við honum?

Sigurður Þórðarson, 26.2.2009 kl. 12:03

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Að öllu jöfnu myndi ég halda að þeir kærðu sig ekki um hann.

En nú eru allir sótraftar á sjó dregnir.  Bíðum og sjáum.

Fer og fægi kristalskúluna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.2.2009 kl. 12:31

3 Smámynd: Einar Indriðason

Í hádegisfréttum núna, fimmtudag, var sagt:  "Kristinn mun sitja áfram sem óháður þingmaður" (eða hvernig sem það var orðað).

Einar Indriðason, 26.2.2009 kl. 12:40

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það var líka sagt um Jón Magnússon áður en hann gekk í Sjálfstæðisflokkinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.2.2009 kl. 12:45

5 Smámynd: Einar Indriðason

Já, að vísu.  Ég er fyrir löngu hættur að treysta fréttur frá Alþingi úr kristalskúlunni minni.

Við sjáum bara til.

Einar Indriðason, 26.2.2009 kl. 12:47

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Já ég bíð spenntur eftir að hún Jenný fægi kristalkúluna sína.

Ryan er ekki nær að opna kampavínsflösku vegna brotthvars Kristins? 

Sigurður Þórðarson, 26.2.2009 kl. 13:21

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm það var Samfylkinginn sem átti hug hans allann.  Ólína tekur hann til bæna núna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2009 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985762

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband