Leita í fréttum mbl.is

5 mínútnaformaður; ég þakka þér kærlega

Takk kæri fyrrverandi formaður í 5 mínútur, Framsóknarflokks.

90% landsmanna hafa margítrekað sýnt vilja sinn í að breyta Seðlabankanum.

Já og koma skaðræðismanninum, hvað hann nú heitir, algjörlega úr mér stolið, af stól til að lámarka gerðan skaða sem við sitjum uppi með ásamt komandi kynslóðum.

Takk Höskuldur fyrir að sýna almenningi sem von bráðar gengur að kjörborðinu, að Framsókn er enn til hægri.

Ég sé fyrir mér hvað gerist eftir kosningar.

Svo fremi sem Framsókn hverfur ekki af yfirborði jarðar vegna atkvæðaþurrðar þá munu þeir valda íhaldið ef þeir mögulega geta.

Á tímabili hélt ég að Framsókn væri í alvörunni að breyta um vinnulag.

Ég hvet stelpurnar í Framsókn, Helgu Sigrúnu og Eygló að setja niður fót.

Þær virðast vera þær einu sem meina það sem þær segja og segja það sem þær meina.

Mikið skelfing er gott að fá að sjá innrætið í Framsóknarstrákunum áður en það er of seint.

Hélt einhver að vinur Davíðs, Alfreð best buddy, væri hættur að stjórna?


mbl.is Skynsamlegt að bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maðurinn er þingmaður hér í kjördæminu....ennþá. Þetta heitir sjáfstæðismannalappagangur. Ef til vill á að taka þetta með "nýjum vettlingum!"

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 14:37

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Var hann ekki bara formaður í 5 mínútur, en það breytir svo sem ekki málinu. Nú er það bara spurningin, er þetta flokkshollusta, undirlægjuháttur, framtíðarplott, samfæring eða bara eitthvað allt annað.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.2.2009 kl. 14:42

3 identicon

Lúsablesar... þeir vanvitar sem kjósa þennan flokk ruglukolla eru óvinir islands.
Hver sá sem sér Birkir eða annan í framsókn sem bjargvætt.. er fargin nuts

DoctorE (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 14:43

4 Smámynd: corvus corax

Það mátt svo sem alveg búast við því að framsóknarlyddurnar færu enn og aftur á fjóra fætur fyrir Dabba drulluhala í þakklætisskyni fyrir alla bitlingana sem hann hefur átt þátt í að redda þeim. Þarna kemur innræti "nýju" framsóknarbjánanna skýrt í ljós. Hingað til hafa þeir látið sér nægja að ætla að ráða öllu sem ríkisstjórnin gerir með duldum hótunum en skriðdýrseðlið býr þó enn í þeim ...að minnsta kosti í Þórhalli svikula Höskuldssyni sem leggur sitt af mörkum til að verja drulluhalann í Bleðlabankanum.

corvus corax, 23.2.2009 kl. 14:44

5 Smámynd: corvus corax

...verð að leiðrétta, framsóknarbullan sem passa Dabba vin sinn heitir víst Höskuldur Þórhallsson en ekki öfugt eins og ég ritaði hér ofar.

corvus corax, 23.2.2009 kl. 14:46

6 identicon

Þarna er hún lifandi endurkomin "Maddama Framsókn". 

Þarna sjáið þið íslendingar "ykkar sæng útbreidda", og framreidda.   Þarna sjáið þið rétta andlitið á maddömunni.  Ég hef aldrei getað ímyndað mér það að fólk sem er í Framsókn sé heiðarlegt. Ég hélt að nú með Sigmundi Davíð væri eitthvað að "gerjast" hjá Framsókn, en ekki.   Lengi getur vont versnað það sannast á innihaldi Framsóknarflokksins.  Nú verður létt að þurrka þá út í næstu kosningum. .........

J.þ.A. (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 15:14

7 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Það er aldeilis málefnaleg umræðan á þessu bloggi.

Verst að þeir sem gaspra hæst í þessum anda (sbr. t.d. þessa og færsluna á undan á þessu bloggi) með þvílíkum orðum eru svo uppteknir við sínar eigin upphrópanir þar sem heilu flokkarnir eru fordæmdir að þeir sjá ekki það sem skiptir máli.

Raunverulegan vilja til breytinga. Það eru fleiri en Eygló og Helga Sigrún sem er virkilega alvara í Framsókn með stjórnlagaþing og önnur mikilvæg mál til þess að ná fram raunverulegri breytingu á samfélaginu. Það er meginþorri flokksmanna.

Svona umræða og niðurrif mun ekki skila okkur betra Íslandi. Sorglegt að þeir sem tala fyrir betra Íslandi skuli ekki vera málefnalegri en þetta og draga frekar úr þeim sem hafa áhuga í einlægni á góðum verkum.

Mér þykir þetta ekki vera á háu plani.

Kristbjörg Þórisdóttir, 23.2.2009 kl. 15:22

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kristbjörg: Ef maður gagnrýnir flokka þá telja meðlimirnir umræðuna ómálefnalega og á lágu plani.

Fyrirgefðu en við fólkið sem höfum vaknað upp við vondan draum, fengið kreppuna í hausinn, fólk missir hús og vinnu og guð veit hvað, bregst við svona fíflalátum eins og þessu nýjasta "málefnalega" útspili framsóknar, með reiði.

Ertu hissa?

Ef það er ekki á lágu plani að krunka á bak við tjöldin með Alfreð Þorsteinssyni, þá veit ég ekki hvað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.2.2009 kl. 15:36

9 identicon

Kristbjörg segist vera "stolt Framsóknarkona. Gott og vel. Má líka vera að ofan af Framsóknarhæðum sé sumt fólk á blogginu "ómálefnalegt". En það er engin furða! Fólk er reitt og sárt. Blórinn heitir Framsókn að hálfum hluta. Ég kann ekki við þessu "nýju vettlingatök" Framsóknar. Já, meðan ég man: Eini flokkurinn sem ekki skilar inn athugasemdir um siðareglur stjórnmálamanna er...rattaaa: Framsókn. Já..man hann einn á eftir að skila yfirlit um kosningarekstur í síðustu kosningum. Æ, fyrirgefðu Jenný hvað ég get verið "ómálefnalegur"...gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 15:44

10 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Kristbjörg, Gaspur segir þú, kannski það.

Ég er hinsvegar ekki að gaspra þegar ég segist fagna því að Framsókn er að þrýsta á Stjórnlagaþingið. Tek ofan fyrir öllu því framsýna fólki (þar á meðal mér sjálfri) sem vill breyta grunnreglunum.

Framsókn er ekki síst að kjást við gamla drauga sem tengjast þeirri stjórnskipan sem nú er og hefur verið í landinu frá Lýðveldisstofnun.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.2.2009 kl. 15:47

11 identicon

Kristbjörg Þóris.  Ertu nokkuð hissa þótt einhver hafi upphrópanir  og séu búnir að fá nóg.  Það má vel vera að ég sé upptekin af mínum eigin upphrópunum, en þær eru til þess ætlaðar að fólk átti sig á Maddömu Framsókn í framtíðinni.  Þessi meginþorri flokksins er það klíkan með Alfreð, Finni og fleiri sætum strákum.  Eru það þeir sem vilja nýtt Ísland?  Ef þú trúir því Kristbjörg, þá náttúrlega kýst þú Maddömuna.

En heilsteyptur flokkur verður Maddaman aldrei.

J.þ.A. (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985789

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband