Leita í fréttum mbl.is

Smá sætt

 jennsloliver

Ef ekki væri fyrir fullkomnar (Halo) dætur mínar og barnabörn væri ég komin í kreppukör.

(Eins gott að hafa stelpurnar góðar, hver veit nema ég þurfi á þeim að halda fljótlega, jájá).

Jenný Una Eriksdóttir var hér í gistingu í nótt að ósk meðlima kærleiks.

Í morgun:

Amma, dóttir þín (mamma hennar) var stundum óþekkt baddn!

Amman: Ha, var mamma þín óþekk þegar hún var lítil?  Hver sagði það?

Jenný Una: Ég veita.  Ég manða alveg.  Dóttir þín var oft að stríða systrunum sínum!

Og..

Amma þegar ég er há ykkur þá má ég fá fullt af ís.

Amman: Nei Jenný mín og það er enginn ís á virkum dögum.  Mamma þín segir það.

Jenný Una: Dóttir þín ræðir engu hér!

Svona orðaskipti bjarga deginum mínum, jafnvel þó horfur hafi verið svona og svona.

Líka þótt svefninn hafi verið af skornum sammti en þessi unga stúlka lætur sér ekki nægja sitt eigið rúm sem hún á hér á kærleiks til að hvíla í á nóttunni, heldur kemur hún með sæng, kodda, dúkkur og bangsa í þremur ferðum og yfirtekur rúm þeirra sem fyrir liggja.

Og breiðir úr sér.

Mér væri sama þó þau kæmu öll fjögur "baddnaböddnin" og legðust í rúmið mitt.

Er nokkurt fallegra að horfa á en sofandi ungviði?

Í gærkvöldi sá Jenný Una afa hans Olivers í sjónvarpinu um það leyti sem hún var að fara inn að sofa.

Ég get ekki farið að sofa amma, ég verður að horfa á sjónvartið.  Ég ætla að horfa á Afa-Tóta!

Og þegar ég féll ekki fyrir þörf barns fyrir sjónvarpsgláp, tók hana í fangið og bar hana inn í rúm til bókalesturs, veinaði hún brostinni röddu: Afi Tóti, afi Tóti!

Hvaðan hefur barnið þessa dramatík?

Ekki frá ömmunni, sem alltaf er róleg og haarderuð.  Alltaf.

Kreppa?

Hvað er það?

P.s. Ekki svo voðalega gömul mynd af Jenný Unu og Oliver mínum sem býr í London.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Já hvernig væri heimurinn ef maður hefði ekki þessi blessuð börn til að lífga upp á tilveruna

, 12.2.2009 kl. 12:01

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

þau eru yndisleg þessar elskur og ef það er eitthvað sem lætur mann gleyma kreppunni þá er það ungviðið

Sigrún Jónsdóttir, 12.2.2009 kl. 12:04

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndislegt alveg mikið kannast ég við svona orðaskipti takk elsku Jenný þetta er frábært að fá beint í æð.  Og myndin flott.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2009 kl. 12:07

4 Smámynd: M

Ahhh gott að fá svona skemmtilega færslu af þínum yndislegu inná milli. Bjargar deginum

M, 12.2.2009 kl. 12:31

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 12.2.2009 kl. 12:58

6 identicon

Krúttið.... Hún verður að fara að koma í heimsókn til Afa- Tóta ;)

Brynja Nordquist (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 14:48

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brynja: Hehe, hún heldur auðvitað að hún eigi líka afa Tóta.  Oliver á ömmuna með henni.

Krúsindúllur þessi börn.

Takk öll.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.2.2009 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband