Leita í fréttum mbl.is

Er enginn með snert af eðlilegri siðferðiskennd?

Ég hef setið sem lömuð í allt kvöld.

Enginn smáskammtur sem okkur hefur verið gefinn af upplýsingum á einum og sama deginum.

Fyrst var það heilbrigðisráðherrann, sem sat órólegur undir harðri sókn Sigmars í Kastljósinu. (Upplýsti reyndar ekkert en það fór ekki á milli mála að hann boðar ekkert gott).

Fyrir utan allar tilraunirnar til að blaðra sig frá kjarna málsins þá hjó ég sérstaklega eftir einu.

Er ekki einn einast ráðamaður í þessu landi sem getur játað ábyrgð án þess að hnýta aftan í játninguna einhverjum bölvuðum hroka?

Guðlaugur viðurkenndi að Sjálfstæðisflokkurinn bæri ábyrgð EN ef flokkurinn ætti að bera hana einn þá ætti hann jafnfram allan heiðurinn af því sem vel hefur verið gert.

Þetta getur gert mig óða.  Hrokinn og fyrirlitningin á fólkinu í þessu landi er yfirgengilegur í þessu liði sem Íslendingar hafa kosið til forystu.

Alveg: Ég játa að ég kveikti í húsi nágrannans EN ég bauð honum slökkvitæki sem sárabætur!

Svo var komið að Wade í Kastljósinu.  Ég trúi Wade og ég tek mark á öllu sem hann segir, enda hefur maðurinn sýnt sig vita nákvæmlega um hvað hann er að tala.

Framtíðarspá hans er ekki björguleg fyrir Ísland, ég tala nú ekki um ef allt heldur áfram að hjakka í sama guðsvolaða farinu.

Ég bíð spennt eftir viðbrögðum heilbrigðisráðherrans yfir orðum Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur sem lét hótanir hans sem vind um eyru þjóta og sagði frá einu og öðru í framsöguerindi sínu þrátt fyrir símtalið frá Guðlaugi í dag.

Einhver sagði við mig í októberbyrjun þegar við vinkonurnar vorum að hneykslast yfir öllu því sem komið væri upp á yfirborðið varðandi spillinguna, aðgerðarleysi og fleira eftir bankahrunið, að við skyldum spara kraftana.  Ástandið ætti eftir að verða mun verra og ósvinnan rétt að byrja að koma í ljós.

Einhver blessaður hafði rétt fyrir sér.

Hvernig hefur allur þessi loddaraleikur getað átt sér stað og enginn - ekki kjaftur - séð ástæðu til að reyna að stöðva það?

Er enginn í ríkisstjórninni með þá eðlilegu siðferðiskennd að stinga niður fæti og segja nei, ég tek ekki þátt í þessu.  Öxlum alvöru ábyrgð?  Er ekki einum einasta ráðherra nóg boðið og vill ekki halda skrefi lengra?

Ég reyni að fara að sofa, telja niður.  Ég er með bullandi flensu eða eitthvað og það hjálpar ekki til.

Later.

 


mbl.is Fullur salur í Háskólabíó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Stjórnarflokkarnir eru samviskulausir.  Þeir eru saklaus fórnarlömb kreppunnar sem enginn hafði talað um eða varað við.  þegar hún skall á okkur alveg óvænt   AAAARRRRRGGGGG

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.1.2009 kl. 01:49

2 Smámynd: Beturvitringur

Tekurðu eftir því Jenný hve "sumir" taka það skýrt fram að hugmyndir og verkefnavinna sé af þeirra frumkvæði; "ÉG stóð fyrir" - ÉG var í upphafi í þessu verkefni. - ÉG hafði frumkvæði að.

Heilbrigðisráðherra þurfti líka að nota einmitt svona (man ekki af hverju hann var að  gotta sig.

Beturvitringur, 13.1.2009 kl. 01:53

3 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Þú talar um siðferðiskennd í ríkisstjórninni!    En hvað með siðferðiskennd alþingismanna?    Það eru 63 þingmenn og ekki einn einasti hefur skorast undan að taka ábyrgð á ríkisstjórninni og hennar gjörðum!     Með setu sinni á þingi taka jafnt stjórnarandstöðu- sem stjórnarþingmenn ábyrgð á því sem fram fer.    Hefði ég setið á þingi væri ég fyrir löngu búinn að segja af mér og jafnvel ganga út og hengja mig.    Skinhelgin og hræsnin skín út úr andlitum þingmanna - allra!   Líka Steingríms, Ögmundar, Guðjóns og hvað þau öll heita nú (ég man ekki eftir neinni konu í augnablikinu!).     Það er ekki nóg að vera óánægður og mótmæla - þeir hafa þann lýðræðislega rétt að segja af sér en gera það ekki og þora ekki einusinni að mæta á mótmælafundi gegn ríkisstjórninni!     Þetta eru aumingjar og hananú!

Vona að þér batni flensan - þú þyrftir að fara að taka inn lúpínuseyðið hans Ævars - það er "vont en venst" og eykur mótstöðuaflið!

Kveðja,

Ragnar

Ragnar Eiríksson, 13.1.2009 kl. 02:26

4 identicon

jú þeir hafa góð laun og fína bíla

gisli hjalmarsson (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 08:51

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er spurning hvert þetta allt saman ber okkur.  Komumst við til lands eða hrekjumst við upp á sker þar sem brýtur á, á alla kanta.  Ætli það sé ekki dálítið undir okkur komið að brjótast út úr þessu.  Virkilega taka á og mynda breiðfylkingu fólks sem vill breytingar.  Auðvitað eru fullt af fólki sem situr og dæmir bæði aðferðirnar okkar og það sem við gerum.  En látum það eins og vind um eyrun þjóta.  Það verða alltaf til liðleskjur sem vilja bara sitja og gagnrýna en ekki lyfta hendi til að mótmæla, en nenna að gagnrýna endalaust.

Áfram Nýtt Ísland! Látum drauminn rætast. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.1.2009 kl. 09:40

6 Smámynd: Laufey B Waage

Vona að þú hristir flensuna af þér fljótt og vel.

Laufey B Waage, 13.1.2009 kl. 10:54

7 Smámynd: Hulla Dan

Góðan bata

Hulla Dan, 13.1.2009 kl. 11:28

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er orðlaus!

Hrönn Sigurðardóttir, 13.1.2009 kl. 13:38

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

....og ég er kjaftstopp!

Sigrún Jónsdóttir, 13.1.2009 kl. 13:51

10 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Mér líst vel á það að við, þjóðin öll, tökum til okkar ráðs og búum til hugmyndabanka um hvernig hægt væri að koma þjóðarskútunni á rétt ról án þess að þurfa að fara í ESB.  Wade hefur hugmyndir og margir fleiri hafa komið með góðar hugmyndir um uppbyggingu Alþingis og stýringu landsins til hins betra, t.d að ekki senda útbrunna þingmenn í seðlabankann.  Það allra fyrsta. Við þurfum að nýta þá fagmenn sem við eigum í þessu landi til að styðja við stjórnarhætti landsins.  VIÐ ÍSLENDINGAR ráðum því hvort við kjósum eða ekki. Þannig getum við haft áhrif á það hvernig landinu er stýrt eða ekki stýrt.

Njörður P. kom með góða hugmynd sem mér líst vel á, kannski eru aðrir með betri hugmyndir???

Það er allavega þannig, að á meðan þingmenn geta setið í stjórnum og ráðum út um allt land, eru hagsmunir þjóðarinnar í hættu.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 13.1.2009 kl. 14:05

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

See you later Alligator!

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.1.2009 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband