Leita í fréttum mbl.is

Þú skallt trúa einhverju manneskja!

kertasnikir_386646 

Mér hefur alltaf fundist Guðmundur Steingrímsson krútt og svo held ég að hann sé ærlegur maður.

Töff hjá honum að fara formlega úr Samfylkingunni á sama degi og síðasti jólasveinninn fer til fjalla.

En það sem hrífur mig hins vegar ekki er þessi flokkahugsun fólks í pólitík.

Ef flokkurinn minn er ekki að mínu skapi, hugsar fólk, þá verð ég að finna mér annan.

Svona svipað og í denn þegar ég var hippi, ég vildi ekki vera í þjóðkirkjunni þá varð ég að fara í annað trúfélag.

Möguleikinn á að vera utan trúflokka var ekki fyrir hendi.

Þú skalt fjandinn hafi það trúa einhverju manneskja!

Og Guðmundur fór í Framsókn.  Heim í heiðardalinn.

Mig langar til að benda Guðmundi á að það er að verða bylting í hugsunarhætti fólks varðandi flokkafyrirkomulagið.

Inntakið er; Vertu á eigin vegum, taktu málefnalega afstöðu með verkum hvers og eins og láttu flokkamaskínuna lönd og leið.

Það er hægt að ganga úr flokki út í bölvaða óvissuna.  Engin stefnuskrá til að segja þér hvað þér á að finnast um hvað eina - bæði stórt og smátt.

Alveg satt, þetta er hægt. 

En..

Síðasti jólasveinninn er á hraðleið til fjalla. 

En eftir sitja heilsársjólasveinarnir með lögheimili í ýmsum löndum meira að segja og fara hvergi.

Hvorki af þingi, af stólum í fyrirtækjum né á annan máta.

Sumir hanga í dyragættinni og þar mun finnast að minnsta kosti einn sem þegar hefur keypt sér aðgöngumiða inn á lokabrennuútsöluna.

Suma er bara ekki hægt að losna við.

Eða hvað?

Við munum halda áfram að reyna.


mbl.is Guðmundur í Framsóknarflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já það heitir að taka Kristinn á þetta........

Hrönn Sigurðardóttir, 6.1.2009 kl. 12:00

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.1.2009 kl. 12:05

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Málið er Jenný mín að ef hann ætlar sér frama í pólitíkinni verður hann að vera flokksbundinn eins og staðan er í dag.  Ef til vill tekst okkur að laga það til með hægðinni.  En hann ætlar sér örugglega frama í Framsókn.  Þess vegna verður hann að yfirgefa Samfó og fara í Framfó.  Svo er að sjá hvaða titil hann sækist eftir, eins og er er allt á lausu, formaður, varaformaður og allt heila klabbið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.1.2009 kl. 12:22

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Var það ekki klárinn sem leitaði þangað sem hann er kvaldastur? Eða var það Hvalurinn sem leitar þangað þar sem hann er klárastur Benni?

Jón Steinar Ragnarsson, 6.1.2009 kl. 12:27

5 Smámynd:

Kannski hann hafi á tilfinningunni að Samfylkingin sé að sundrast - verða Sundurfylkingin  - og sé því að yfirgefa skipið áður en það liðast í sundur.

, 6.1.2009 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985787

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband