Leita í fréttum mbl.is

Hvað næst?

Ég held að mig langi ekkert sérstaklega til að búa hér.

Ég er ekkert rosalega kröfuhörð til umhverfisins og móralsins þar sem ég bý enda sjálf ekki alltaf gefið tilefni til stofnunar aðdáendaklúbba í kringum persónu mína.

Hef alveg átt mína takta í lífinu þó ég sé búin að ná hellings nirvana og raðfullnægingum vegna framfara á þroskabrautinni.  Ókei, smá útúrdúr.

Það er hreinlega orðið þannig á síðustu vikum að allar gáttir eru að opnast, hvert kýlið að springa svo vellur úr.

Mikið djöfulli hafa allar leikreglur verið orðnar ljótar og einskis svifist, leikvöllurinn ormagryfja.

Ég trúði nærri því honum Reyni í dag, gat ekki séð af hverju hann ætti að vera að ljúga upp á þennan unga blaðamann.

En reyndar sá ég enga ástæðu til þess heldur að blaðamaðurinn væri að ljúga upp á Reyni.

Ég snýst eins og fífl í kringum sjálfa mig, hver er að segja satt, hver er að ljúga?

Það er ekki lengur hægt að skipta upp leikmönnum í góða og vonda gæja.

Þeir virðast að stórum hluta allir sökka alveg biggtæm.

Nú eru staðreyndirnar á borðinu.

Átti að taka æru og starfsframa þessa unga manns og eyðileggja frekar en að segja satt?

Ef það er rétt þá skil ég ekki hvernig fólk getur sofnað á kvöldin.

Hvað næst?


mbl.is Upptaka af útskýringum ritstjóra DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ójá! Læfisvonderful!

Hrönn Sigurðardóttir, 15.12.2008 kl. 21:01

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Jenný mín.

Þetta er allt skítt, en lífið er jafndýrmætt og allt þetta kennir mér það að vera enn þakklátari fyrir það sem er í raun og veru ekki sjálfsagt.

Ég geri það meðvitað að passa mig á því að láta þessa kreppu ekki snúa mér á haus. Víst er að margir hafa verið að koma illa fram og margir sökudólgar eru á ferðinni. En allt þetta verður að hafa sinn tíma og hvernig sem við hoppum og skoppum þá breytum við ekki orðnum hlutum.

Njóttu aðventunnar  Það hefur enginn tekið frá okkur að geta það, spurning um að stilla sig inn á það.

Það eru ekki öll kurl komin til grafar enn..... þangað til spara ég mitt púður.´

Alkaknús á þig mín kæra.

Einar Örn Einarsson, 15.12.2008 kl. 21:13

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég er reið, ég er öskureið!!!!!!!!!  Það spryngur allt eftir áramót vertu viss.

Ía Jóhannsdóttir, 15.12.2008 kl. 21:22

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Mér fannst Reynir hljóma eins og "stór götustrákur" í bófaleik.

Sennilega verður ekki hægt að koma hér á lýðræði, fyrr en hreinsað verður til í fjölmiðlabransanum.

Sigrún Jónsdóttir, 15.12.2008 kl. 21:24

5 identicon

Það að auðmennirnir, hvort sem þeir eru einn erða fleiri, komu í veg fyrir að fréttin færi á prent, er staðfesting á því að bankastjórinn fyrrverandi(?) er enn að vinna í bankanum, væntanlega á launaskrá hjá umræddum auðmönnum. Viðskiptaráðuneytið var búið að neita því að svo væri.

Bankinn er rekinn af FME undir stjórn bankamálaráðherra.

sigurvin (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 22:04

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ástæðan fyrir að greinin var ekki birt í dag var einfaldlega sú að hún fékkst ekki staðfest. Þannig var henni ekki beinlínis stungið undir stól heldur látin bíða staðfestingar.

Helga Magnúsdóttir, 15.12.2008 kl. 22:07

7 Smámynd: Himmalingur

Skítalykt í húsi er ekki flótta virði. Ástæðan er yfirfullt klósett af skít! Sturta skal niður svo skíturinn fari sem lengst út á ballarhaf!

Himmalingur, 15.12.2008 kl. 22:28

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Mér hefur alltaf fundist Reynir gruggugur, ekki náungi sem ég myndi treysta frekar en hundaskít.

Þetta er bara toppurinn á ísjakanum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 15.12.2008 kl. 23:17

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jóna Á. Gísladóttir, 15.12.2008 kl. 23:23

10 identicon

Manni fallast hendur. Það er ekkert flóknara en það.

Nína S (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 23:35

11 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sæl Jenný - já, það átti að taka æru þessa unga manns og fórna henni á altari lyginnar.

Ljótt - en satt. Og því miður ekki í fyrsta skipti sem þeir félagar á DV standa fyrir slíku.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 15.12.2008 kl. 23:47

12 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Það kemur ekkert lengur á óvart á þessum síðustu og verstu.... æ fleira á eftir að líta dagsins ljós og það verður lítið um skjól fyrir skítalabba heimsins.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 16.12.2008 kl. 00:12

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Svínarí

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.12.2008 kl. 00:46

14 identicon

Sorrý, Jenný. Ég las ekki nógu vel fyrstu setninguna þína. Hún er sú að þig langaði ekkert sérstaklega að búa á þessu landi. Undanfarna mánuði hefur mér oft verið hugsað til Andrésar Andar og fleiri góðra vina þegar þeir fara til Fjarskastans, Timbuktú, Einskismannslands o.s.frv.      Það virðist bara ágætt að búa þar. Í friði og ró frá öllu saman. Það er bara verst að Andrés leggur yfirleitt af stað til Fjarskastans þegar hann hefur klúðrað öllu. Af hverju ætti OKKUR að langa til þess að fara þangað? Hverju höfum VIÐ klúðrað? Þetta pirrar mig, vegna þess að þegar stjórnvöld bregðast trausti mínu, þá finnst mér ég endilega þurfa að hugsa fyrir þau, vita allt um stjórnsýslu og lögin kringum hana, vita allt um peningamál og flæði þeirra, Nastakk vísitölur og guð má vita hvað. Vera ábyrg og taka þátt, ákvarðanir, ábyrgð o.s.frv. Til hvers að kjósa fólk sem fær laun fyrir þetta allt ef maður þarf allt í einu að vera ÍSLENDINGUR, einhver þjóðernissinni, uppreisnarseggur, lýðræðissinni, vitandi allt um allt ofan á brauðstritið? Komon.... er Fjarskastan virkilega 19. aldar rómantíkin sem Fjölnismenn......meina.... þarf að endurtaka - replay - allt aftur?

Nína S (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 01:11

15 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég elska þetta land g var fædd hér og kom með frumburðinn hingað, eins og fuglarnir, til að öðlast lífskraft Norðursins, en er með B-plan.

B-plan er að skila lyklinum (myntkörfulán) og fara til DK eða Hollands eða Austur Evropu! (Tala 5 tungumál reiprennandi, en hef aldrei verið "verðmæt"...eins og útrásarvíkingar...t.d!)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 16.12.2008 kl. 02:49

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er ótrúleg spilling; enda gat ég aldrei skilið að Ísland var talið með spillingarlausustu löndum heims.  Það kom aldrei heim og saman í mínum huga.  Hverjir ætli hafi gefið upplýsingarnar?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.12.2008 kl. 10:55

17 identicon

Ég er mest hissa yfir því hvað fólk er hissa yfir DV feðgum.Orðið feðgar er orðið eitthvað svo skrítið þessa daganna.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 11:47

18 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sko mín kæra.

ÞAð var nú ekki allt satt sem maður nvíslaði í eyru sumra kvenna í Glumnum, sko, það var sagt in the heat of the night.

Hinnsvegar er lygin sem vellur uppúr svo mörgum hér á landi orðin svo yfirgegnileg, að allir sem nú finna til sviða á sálarkroppi sínum á tilheyrandi stöðum (um þjóin) vita nú, að þeir voru hafðir að fíflum í Fjölmiðlarimmunni.

ISS ef ég væri ekki löngu hættur að reykja, myndi ég bara kveikja í einni ófilteraðri og sjúga undurblítt og halda lengi niðri í lungunum og dæsa svo og segja spekingslega,   ,,Djöfulli er ég á miklum bömmer"

En þar sem ég reyki ekki lengur segi ég bara út í tómið..Þið eruð allir að ríða komandi kynslóðum til helvítis, fokkings idíótarnir ykkar.

STÖÐVIÐ heiminn sagði Bersi Bjarna hér í denn, hér fer ég úr.

Kveðjur með von um, að við getum einhverntíma vaknað af þess trippi, því við bara HLJÓTUM að vera á mega shitty trippi, svona bara gerist ekki í alvörunni............ eða er það nokkuð??????

Mibbó

Bjarni Kjartansson, 16.12.2008 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985763

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.