Leita í fréttum mbl.is

Í annað skiptið Arnaldur

 myrká

Ég bloggaði um þá stórsnjöllu hugmynd mína um daginn að lesa sig út úr kreppunni.

Það gengur ágætlega hjá mér þakka ykkur kærlega fyrir.

Í gær gleypti ég Arnald Indriðason í einum ljúfum bita.

Ég er ekki ein af þeim sem upptendrast yfir krimmum, en ég skrifa upp á að þeir eru fín dægrastytting og þar kemur Arnaldur sterkur inn.

Ég hef gert mig seka um skammarlegan glæp (úje) en þetta er önnur bókin eftir Arnald sem ég les. (Skömm að þessu, þetta er eins og að hafa fyrst farið í bíó á miðjum aldri eða eitthvað).

Hin var Harðskafi - mér fannst hún fín, hvorki meira né minna.

Myrká hélt mér hins vegar fanginni.  Hún er svo skrambi trúverðug. 

Mér er sagt af fólki sem veit að Myrká sé besta bók Arnaldar til þessa og ég trúi þeim.

Þessi er fín í pakkann.  Spenna, glæpir og flott plott sem ganga upp klikka ekki á jólunum.

Í bók sko, svo er raunveruleikinn allt önnur Ella sem enginn skyldi sitja uppi með á jólunum.

Lesa svo - ein á dag við kreppu, óáran, vondum stjórnvöldum og öðrum óþverra.

Arnaldur þú ert búinn að skrifa þig inn á mig.

Takk fyrir það.

Sjá nánar.


mbl.is Myrká er efst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Góðan daginn Jenný.  Er búin að panta bókina frá Jóla. Hlakka til að eyða einum degi með honum milli jóla og nýárs, ekkert svona,  ég meina Arnaldi en ekki Jóla.

Ía Jóhannsdóttir, 3.12.2008 kl. 09:03

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég skora á þig að leisa einhverjar af eldri bókunum hans og ég hugsa að þú myndir fíla twistið í Bettý, hún er spes.  Eigðu ljúfan dag elskan.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.12.2008 kl. 10:47

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Bækur hann eru allar góðar, en ég vona að fá þessa í jólagjöf.

Kær kveðja.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.12.2008 kl. 10:53

4 Smámynd: Berglind Inga

Sammála Ásdísi Sig., þú verður að lesa fleiri eftir Arnald. Bettý eins og hún nefnir er góð og svo eru Synir duftsins ein af mínum uppáhalds.

EN maður má ekki lesa auglýsingar frá forlögum án þess að sjá ummæli frá þér. Ég ætla að vona að þú fáir afslátt af bókum

Berglind Inga, 3.12.2008 kl. 12:04

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég les mikið.  Ég blogga  BARA um bækur sem ég hef ánægju af en sleppi hinum.  Það er vegna þess að ég er almennur lesendi en ekki gagnrýnandi.

Ég fæ stundum ágætis afslátt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.12.2008 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985867

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.