Leita í fréttum mbl.is

Ætlarðu að giftast´onum?

jennysara

Varð að setja inn eitthvað sætt fyrir svefninn.

Hér eru Jenný Una og mamma hennar svo kjút.

Jenný var að byrja á Laufásborg sem heyrir undir Hjallastefnuna hennar Möggu Pálu vinkonu minnar og ég er svo glöð yfir því og barnið er yfir sig hamingjusamt með nýja skólann.

Ekki að hún hafi verið neitt óhamingjusöm með gamla leikskólann, hún hefur bara orðið enn hamingjusamari eða hamsingjusamari eins og hún segir sjálf.

Svo á hún tvær vinkonur sem eru rúmum tveimur árum eldri og hún leikur mikið með heima og hún er svolítið að herma talsmátann frá þeim.  Svo hryllilega dúllulegt.

Dæmi:

Mamman (þegar snjóaði um daginn): Jenný sjáðu hvað snjórinn er dásamlegur, svo hvítur og ferskur.

Jenný: Ésérðaalveg, en ertu skotin í snjónum mamma? (Hér fygldi á eftir tryllingslegt stelpufliss).

Mamman: Skotin í snjónum, hvað meinarðu?

Jenný ( enn á flissinu): Já ertu kannski skotin íonum, ætlarðu að giftast´onum?

Þetta er hin svo kallaða forgelgja.

Og í gær við ömmuna:

Jenný: Amma, það þarf að passa smáböddn mjög vel svo þau meiði sig ekki.

Amman: Já alveg rétt, lítil börn geta meitt sig ef maður lítur ekki stöðugt eftir þeim.

Jenný: Já og ef þau borða kannski nammi frá stóru systur sín þá geta þau kyrkst og deyjið ef ÉG missi nammið á gólfið.

Það var þá sem ég áttaði mig á því að varnaðarorð móður og föður um að henda engu á gólfið þar sem Hrafn Óli athafnar sig helst, hafa komist vel til skila.

Aðeins of vel kannski, ekki þar fyrir að líflegt ímyndunarrafl Jennýjar Unu bætir í þar sem dramatíkina skortir.

Svolítið lík ömmu sinni stúlkan.

En þessi litla gólfsuga kemur í fyrramálið og ætlar að halda ömmu sinni selskap.

hrafnoli

Þessi ungi maður er alltaf í góðu skapi, svei mér þá.

Lífið er bærilegt finnst mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

 þessi aldur er svo skemmtilegur svo miklar pælingar og alltaf að upplifa eitthvað nýtt yndisleg hún nafna þín litla og hugsar vel um litla bróðir Góða skemmtun með litlu gólfsugunni í fyrramálið góða nótt mín kæra

Brynja skordal, 11.11.2008 kl. 21:42

2 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

En ædisleg barnabørn thú átt. Lífid getur ekki annad en verid gott, thegar madur á fjølskyldu sem madur elskar. Svo eru audvitad adrir hlutir sem gera thad minna bærilegt. Hafdu thad gott. kk. frá dk.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 11.11.2008 kl. 21:46

3 Smámynd: Tína

Lífið er æðislegt Jenný................ þrátt fyrir allt. En úfffff hvað mig er nú farið að langa að hitta hana nöfnu þína. Mér finnst svo endalaust skemmtilegt sem dettur upp úr henni.

Knús á þig yndisleg og til hamingju með að eiga svona fallega fjölskyldu.

Tína, 11.11.2008 kl. 21:59

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

"Forgelgjualdurinn" enn eitt nýyrðið úr orðaforða Jennýjar Önnu.

Jenný Una er krútt

Sigrún Jónsdóttir, 11.11.2008 kl. 22:15

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þessi stelpa er vitanlega gargandi snilld eins og "ammasín". Þetta eru ekkert smásæt systkini.

Helga Magnúsdóttir, 11.11.2008 kl. 22:19

6 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Þarna liggur mesti fjársjóðurinn okkar í fjölskilduni okkar.

Krúttukrakkarsem þú átt.

Eyrún Gísladóttir, 11.11.2008 kl. 22:26

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þessi daman hún Jenný er óborganleg.  Knús á þig og þína og njóttu barnanna á morgun

Ásdís Sigurðardóttir, 11.11.2008 kl. 23:24

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ohohohoho nú hló ég. Já það er eins gott að enginn kyrkst og deyið. Svo er þetta líka svo góð ástæða til að halda fast og vel utan um nammið sitt.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.11.2008 kl. 23:31

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hún er yndisleg eins og amma hennar góða nótt Jenný  mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.11.2008 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband