Leita í fréttum mbl.is

Í vondum lungnamálum

Á læknavakt fyrir einhverjum klukkutímum.

Læknir: Þetta er skelfilegur hósti sem þú ert með.

Ég: Já finnst þér það? Það var sko þess vegna sem ég er komin hingað.  Er með hita og hósta.

Læknir: Þú reykir (ekki spurning, fullyrðing).

Ég: Jább.

L: Hvað lengi?

Ég: 34 pakkaár (ekki gamall læknaritari fyrir ekki neitt).

L: Það er rosalegt.

Ég: Jább.

L: Þú verður að hætta þessu, þú ert með fast í lungum og með bullandi bronkítis. 

Ég: Jább.

L: Hvenær?

Ég: Bráðum en ég reyki mikið minna núna, bara örfáar.

L: Hvað margar (hann frussar þessu út úr sér)?

Ég: Svona tólf á sólarhring.

L: Þetta er náttúrulega ekki hægt.

Ég: Jú og ég fer létt með það.  Fyrir tveimur mánuðum reykti ég tvo pakka.  Ég er öll að koma til.

L: Þetta gengur ekki, þú verður að hætta að reykja.  Taktu þetta lyf hérna sem ég skrifa upp á og farðu nú að hugsa þinn gang, hugsaðu um lungun kona (hér var hann alveg intú itt).

Ég algjörlega í rusli yfir að gera manninum þetta: Fyrirgefðu.

L: Hrmphf....

Svo lufsaðist ég heim með hausinn undir hendinni og ég skammaðist mín fyrir að vera á lífi með þennan einbeitta brotavilja til margra ára og ekki enn lát á.

Farin í smók.

Úje

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Vildi óska ad thad væri hægt ad segja eitthvad sem passadi.

Eina sem mér dettur í hug ad segja, er ad ég hætti ad reykja fyrir rúmi ári sídan. Uppgøtvadi ad ég var ólétt, .... gód ástæda. Var miklu léttara en ég hélt. Hef sjaldan saknad thess. En ég veit ad madur verdur ad finna thad hjá sjálfum sér, og allir sem hafa reykt/reykja vita ad madur verdur ad finna sinn eigin tíma til thess.

Gangi thér vel.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 8.11.2008 kl. 19:04

2 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Jenný. þú verður að hætta að reykja. !!!!!!

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 8.11.2008 kl. 19:06

3 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

Hættu að reykja !!!!!! það er hægt.

Gunnar Gunnarsson, 8.11.2008 kl. 19:34

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hehehe hvað getur mar sagt? Bara fegin að þú ert lifandi. Vinkona okkar hefur tvívegis verið lögð inn á Reykjalund vegna lungnana og læknirinn sagði bara: þið systurnar eru óstjórnlegir fíklar!

Edda Agnarsdóttir, 8.11.2008 kl. 19:40

5 Smámynd: Hugarfluga

Þú virkar/lætur eins og þér sé alveg sama. Mig langaði bara að vita hvort það væri í raun málið. Ég ætla sko ekki að segja þér að hætta; ástæður og afleiðingar og jarí jarí ... þú veist þetta allt sjálf. Enda virkuðu predikanir mínar ekki ekki á mömmu heldur gerðu hana bara leiða, reiða og öfugsnúna.

Hugarfluga, 8.11.2008 kl. 19:43

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hvað ertu að hlusta á þennan lækni, djös afskiptasemi í honum! Er þetta ekki bara lopaofnæmi, áttu ekki lopapeysu sem þú þolir illa? (hehehhehe) Hvað þýðir 34 pakkaár? Eru það 34 pakkar á dag í eitt ár ... eða pakki á dag í 34 ár? Gúdd lökk, beibí!

Guðríður Haraldsdóttir, 8.11.2008 kl. 19:57

7 Smámynd: Karl Tómasson

Mín kæra Jenný Anna samferða vinkona mín í bloggheimum.

Allt frá því að ég fór að lesa þinn texta og þínar hugrenningar sá ég og las að þarna fór góð manneskja. Fyrst og síðast las ég úr skrifum þínum einlægni, hreinskiptni og heiðarleika. Gagnvart þér og þínu samferðafólki. Sönn alþýðumanneskja, eldklár, skemmtileg og gefandi.

Ég held þú getir allt og ég held satt að segja að bloggið, svo slæmt sem það getur nú verið hjá einstaka apaköttum sem setja á það leiðinda skugga hafi jafnvel sýnt þér að mörgu leiti meira en margt annað hversu megnug þú ert. Öll þau hrós og alla þá aðdáun sem þú hefur fengið úr bloggheimum átt þú sannarlega skilið.

Í mörg ár vann ég með konu sem fékk sér eina síkó á dag. Það var fyllterslaus Camel að loknum kvöldverði. Hún sagði alltaf að hana hafi  hlakkað óskaplega til þess að kveikja í henni.

Taktu eina camel á dag eftir kvöldmat í tvö ár og svo er mál að linni. Ég held að það verði lítið mál fyrir þig eins og allt annað.

Bestu kveðjur úr Mosó frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 8.11.2008 kl. 20:14

8 identicon

Þetta er nottlega bilun ...

... ég þarf að hætta líka ..

Maddý (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 20:21

9 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Storm P. sagði þegar hann varð áttræður að ef hann hefði vitað að hann yrði svona hundgamall hefði hann drukkið og reykt helmingi meira en hann hefði gert um ævina.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 8.11.2008 kl. 20:39

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Í þetta skipti segi ég ekki orð

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.11.2008 kl. 20:55

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hefurðu heyrt söguna um konuna sem dragnast um með kútinn á bakinu.......?

Hrönn Sigurðardóttir, 8.11.2008 kl. 21:15

12 Smámynd: Júlíus Valsson

Það má spara heilmikið á ári með því að reykja pípu

Júlíus Valsson, 8.11.2008 kl. 21:23

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er í alvörunni að hætta en bara af því ég vil það sjálf.

Sko fíklar hætta ekki af því þeim er sagt að það sé hættulegt, þeir hætta þegar þeir eru komnir í þrot.

Ég er að komast í reykingarþrot.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2008 kl. 21:49

14 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sko mín,  -- æ--þú veist.

ég var einn dyggasti stuðningsmaður fátækra bænda í S-Ameríku.

Sko, ég byrjaði að reykja ungur,----altso, ég meina frelaega ungur.

Svo komu unglingsárin og þá var ekkert töff, að reykja ekki.  Svo komu Menntaskóla og Hí árin og þa´bara var það algerlega skylda, að reykja , bæði pípu, með spekingssvip og svo Palla Langa með Veltsmerts.

Kynntist því, að verða leiður á tóbakinu og fatta, að það voru líklega ekki BÆNDURNIR sem græddu, heldur Ofurfrjálshyggjuliðið, sem e´g er alltaf að berjast við í mínum elskaða Flokki.

Ákvað, að fara í alsherjar myndatöku og ef einhverju var við bjargandi,-----hætta  brr brrr hætta brr brrr

Fékk dóp sem maður tekurog ákveður hvenær maður drepur í, sko sltso ööööödreeeepur í.

Gerði það 10 des síðastliðinn og var ekkert mál.

Hef fengið eittt og eitt svona móment, t.d. aftureldingu í Hljóms´kó með gott vín og góðan fílíng. EN

Bara falli ð einusinni í Sumarbústaðar svæðinu okkar, var á fylleríi og var að hlusta á gamalt og gott Rock.  p´+inu Blues og svo Clapton.

fékk 3 hvítar.

Ekki aftur.

Kanske sinna

Fáðu dóp

það hjálpar.

Love from the other side

MiðbæjarÍHALDIÐ

Bjarni Kjartansson, 8.11.2008 kl. 22:04

15 Smámynd: Sigrún Óskars

Lestu bókina "Létta leiðin til að hætta að reykja"  hún klikkar ekki - trúðu mér.

Sigrún Óskars, 8.11.2008 kl. 22:10

16 identicon

Mig langar í svona pillur eins og Bjarni Miðbæjaríhald notaði

Maddý (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 22:50

17 Smámynd: halkatla

ég reyki ekki

halkatla, 8.11.2008 kl. 23:03

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er að hugsa um að strengja áramótaheit í fyrsta skipti á ævinni

ertu memm?

Jóna Á. Gísladóttir, 8.11.2008 kl. 23:56

19 identicon

Öhhhhh, Jenný ætlarðu að bíða eftir því að löngunin til að hætta að reykja komi yfir þig........! Þú veist betur kona, þetta hefst á ákvörðun og svo........umhmmm veit ég hljóma leiðinlega, en ég hætti fyrir 11 árum ekki af því að mig langaði það frekar en að hætta öðru sem ég hef þurft að hætta, ég tók bara ákvörðun af því að ég var komin út í horn og engar afsakanir lengur sem virkuðu. Þú kannast við þetta er það ekki ?

En það er eins og þú segir, þú þarft að taka ákvörðunina!

kær kveðja og óskir um góðan bata frá fíkninni :)

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 10:21

20 Smámynd: Rebekka

Jæja hér kemur messan.

Hættið þessu helvítis reykingabulli, afglaparnir ykkar!  Skiljið þið ekki að það mikilvægasta sem að maður á er ekki börnin, ekki eiginmaðurinn, og síst af öllu nýji flatskjárinn, HELDUR HEILSAN.

Heilsulaus er erfiðara að njóta samvista við fjölskylduna (að maður tali ekki um áhyggjurnar sem maður leggur á greyin með því að vera sjúkur), kallinn/konan verður hundfúl/l og leið/ur (fer eftir skaplyndi) yfir þessu bölvaða heilsuleysi á manni og maður missir af sápuóperunum út af sífelldum spítalaheimsóknum.

Samt keppist fólk beinlínis við að drepa sig eins hratt og mögulegt er.  Ég bara skilettekki!  

Drepið í, druslurnar ykkar, og það strax.  Það hefur heldur enginn efni á að reykja í dag (pakki á dag, 17 þús kall á mánuði).  Ég vorkenni engum sem að reykir og kvartar svo yfir að eiga ekki efni á mat.

Afsakið reiðikastið, það er bara svo hressandi.

Rebekka, 10.11.2008 kl. 07:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985793

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31