Leita í fréttum mbl.is

Ástandið á mér

Þegar ég heyrði að setja ætti upp þjónustumiðstöð sem m.a. myndi bjóða upp á áfallahjálp, varð ég skelfingu lostin og þurfti áfallahjálp.

Þegar stjórnvöld setja upp svoleiðis fyrirkomulag þá er eins gott að fá taugaáfall strax, það verður hvort sem er ekki undan því komist.

Ég er sem sagt í heví taugaáfalli. 

Samt er ég ekki enn farin að skilja hvað það er sem er svona skelfilegt.  En ég skil að það er eitthvað. 

Þetta er svo loðið.  Hjálp!

Áfallahjálp! Einhver?

Fall í gólf.


mbl.is Fjármálaþjónustumiðstöð undirbúin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er ekki lag að virkja núna allar bugður landsins?

Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 18:27

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Setjið bara barnaefniið á í sjónvarpinu - það er það eina með vitai í dag!

Betra en áfallahjálp.

Edda Agnarsdóttir, 6.10.2008 kl. 18:40

3 Smámynd: Landi

Sammála Eddu Agnarsd.

Setja bara barnaefni í tækið,það er allvega í gangi hjá mér núna og er dóttir min mikið ánægð að fá að horfa á það akkúrat á fréttatíma.

Það er orðin þannig hjá mér að þeir sem stjórna þessu siðspillta landi eru ekki það ofarlega á lista hjá mér til að kveikja á fréttum i dag.

Landi, 6.10.2008 kl. 18:49

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Þessi áfallahjálp er einungis ætluð bankastarfsmönnum.

Þröstur Unnar, 6.10.2008 kl. 19:01

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér finnst alveg ofsalega erfitt að festa hönd á hvað nákvæmlega er að gerast! Býst við að það viti það fáir....enda allt einhvern vegin í lausu lofti og það er alveg agalegt finnst mér í þessu máli, að enginn veit neitt hvað morgundagurinn felur í sér eftir að búið er að samþykkja þessi lög og þá sérstaklega hvaða bankar eru verst settir! En ég á bara skuldir hahahaha...ætli ég verði þjóðnýttt á morgun líka !

Sunna Dóra Möller, 6.10.2008 kl. 19:07

6 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég mæli ekki með minni áfallahjálp fyrir þig Jennslan mín... en ég ætla á Bölstofuna í kvöld að sýna samhug og samstöðu...Fyllerí takk og bless ;)

Heiða B. Heiðars, 6.10.2008 kl. 19:10

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ha! ertu í ástandinu, kona?

ég þarf áfallahjálp. allavega hjálp til að fá áfall

Brjánn Guðjónsson, 6.10.2008 kl. 19:18

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hafðu ekki áhyggjur Jenný mín, ég býð fram mína áfallahjálp.  Ég hef verið öreigi lengi......og ég lifi

Sigrún Jónsdóttir, 6.10.2008 kl. 19:20

9 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Vá hvað ég er heppinn.

Ég bara skil ekki ennþá nákvæmlega hvað er í gangi. "Góðir landsmenn" sagði foringinn í þrígang og ér gæslugaurinn settist í réttstöðu........svo bara púff. Ég sat skilningsljór eftir.

Lausafjárkrísa já....einhvernveginn er þetta svo fjarlægt mér, næ ekki tengingu við þetta enn. Það kemur örugglega.

Ég geri eins og jenfo læt mig falla á sófann. Það er allavega á-fall.

Brosi í gegn um (gerfi)tárin

Einar Örn Einarsson, 6.10.2008 kl. 19:40

10 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

já, á madur ad hlægja eda gráta ....

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 6.10.2008 kl. 19:56

11 Smámynd: Gulli litli

Vont bara fyrst svo versnar þad stödugt svo verdur þad djöfullegra en ord fá lýst........Ætli Megas hafi vitad þetta?

Gulli litli, 6.10.2008 kl. 20:08

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð náttúrlega bara skemmtileg og bjargið konu frá því að falla í eymd og volæði.

Ég hreinlega elska ykkur í tætlur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2008 kl. 21:14

13 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég hef alltaf verið í lausafjárkrísu.  Kannski ætti ég að gleðjast því að vera ekki ein í þeim pakka núna - þetta er víst inn í dag.  Sjálfsagt þarf fólk áfallahjálp sem er að komast á sama stað í lífinu og ég hef alltaf verið   Ég vorkenni fyrrum hlutafjárauðkýfingum skelfingar ósköp mikið - not.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 6.10.2008 kl. 23:10

14 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég er ein af 6% íslendinga með myntkörfulán og vil það í lengstu lög (svo ég sé ekki leigjandi í eigin húsnæði i 40 ár með verðtryggingu) og tek þetta alveg til mín!

kær kveðja til þín Jenný

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 6.10.2008 kl. 23:57

15 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Bensín hamstrað víða um land

Mánudagur 6. október 2008 kl 23:47

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Biðraðir hafa myndast við bensínstöðvar víða um land eftir að það spurðist út að bensínlítrinn myndi hækka um eitthvað á bilinu 20 til 30 krónur. DV hafði samband við Hermann Guðmundsson, forstjóra N1, laust fyrir miðnætti en hann treysti sér ekki til þess að segja til um hversu mikil eldsneytishækkunin yrði.

Gríðarlegt fall krónunnar undanfarið mun vitaskuld renna út í olíuverðið og sú saga gengur nú manna í millum að hækkun morgundagsins muni nema um 50 krónum á lítra.

Hugi Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, gat ekki frekar en Hermann spáð fyrir um hversu hækkunin yrði mikil þegar DV hafði samband við hann í kvöld.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 7.10.2008 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985823

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband