Leita í fréttum mbl.is

Eyrnalokkar úr hvítagulli - GMG

 

Ég læt ekki klukkast.  Bara svo það sé á hreinu.

Tvær góðar vinkonur mínar, þær Jóna og Edda Agnars hafa klukkað mig og ég sinni því ekki afturenda.

Ég er svo lítið fyrir leiki.

Svo verður að vera einhver mýstik yfir persónu manns.  Ekki get ég farið að kjafta því í ykkur að ég hafi verið gagnnjósnari í volga stríðinu - hafi dansað aðalhlutverk hjá Þjóðdansafélaginu, unnið við að fægja kirkjuklukkurnar í Hallgrímskirkju og verið ferjukona við Don.  Þið mynduð einfaldlega líða út af vegna aðdáunaraðsvifs.

En ég á þrjár yndislegar dætur.  Ólíkar en svo frábærar og skemmtilegar.  Svo eru þær góðar við mömmu sína og hafa verið lengi.

Voru að sjálfsögðu fjandanum óþekkari í uppvextinum að því marki að ég lét þær allar á heimavistarskóla.  Nei, nei, ég hef verið heppin með börn.

Um daginn var ég hálfan mánuð í vesturbænum að halda elsta barnabarninu mínu selskap meðan turtildúfurnar Helga Björk og Björn fóru til Ítalíu.

Í dag kom frumburðurinn með hvítagullseyrnalokka handa mömmu sinni ásamt wraparoundi sem mig var búið að langa í lengi.

Ég var orðlaus.

En..

Ég er að flytja.  Fyrir neðan snjólínu.

Hvert og hvenær verður upplýst seinna.

Er það nema von að það sé brjálað að gera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Æði að fá svona fallega gjöf Vissi það þú ert að koma á skagann aldrei snjór

Brynja skordal, 12.9.2008 kl. 23:08

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

wraparound??!!??

Er það belti? Sæng? eða hringur? Nei ég veit!! Það er svona álpappír fyrir langhlaupara......

En hún sæt

Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 23:47

3 Smámynd: Didda

Það er alveg frábært að fá lokka úr hvítagulli......ehhh hvað er þetta wraparound ???? 

Vissulega erum við heppinn með börnin okkar þó manni langi stundum til að.....já nei förum ekki nánar útí það

Didda, 13.9.2008 kl. 01:04

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvaða ólund er þetta að geta ekki leikið sér með öðrum? Ertu svo í alvörunni að flytja? Ég vona að þú sért að koma hingað, það er svo skemmtilegt fólk að setjast hér að um þessar mundir.

Edda Agnarsdóttir, 13.9.2008 kl. 01:36

5 identicon

Til hamingju með að ætla til byggða !

Wraparoundið hljómar vel og eynalokkarnir bara flottir!

Ofurskutlukveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 01:55

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, þetta t.d. er wraparound

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2008 kl. 02:19

7 Smámynd: Tína

Damn hvað ég var orðin spennt að vita hvað þetta wraparound (þurfti að fletta upp til að sjá hvernig þetta orð er skrifað) væri. En svo þegar á hólminn kom þá varstu greinilega búin að setja inn mynd af herlegheitunum og þá virkar það ekki. Viltu vesgú laga þetta elskan því ég get bara ekki á heilli mér setið fyrr en ég veit hvað þetta er.

Takk so mukket.

Vikuskammtur af knúsi á þig Jenný mín.

Tína, 13.9.2008 kl. 06:50

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

spennandi að vita hvert þú ert að flytja

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.9.2008 kl. 08:39

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Kemur mér ekki á óvart er búin að hafa þetta á tilfinningunni lengi, var bara spurning hvenær þú létir verða af því að gubba þessu út úr þér hehe   Til hamingju með þetta Jenný mín.   

Ía Jóhannsdóttir, 13.9.2008 kl. 09:03

10 Smámynd: Linda litla

Bíddu við...... ertu að fara frá okkur í Breiðholtinu ?? Hvert ætlar þú að fara ??

Linda litla, 13.9.2008 kl. 09:06

11 Smámynd: Laufey B Waage

Ég fæ ekki séð að maður opinberi mikið af persónu sinni, með þessu klukki. T.d. gaf ég mér ekki tíma til að muna eftir uppáhalds-bókum og bíómyndum. Nefndi bara einhverjar sem komu fyrst upp í hugann. Starf og búseta segir kannski eitthvað.

Frábært að þú skulir vera að flytja "í bæinn". Kemurðu annars ekki í gamla góða vesturbæinn (lesist; bestabæinn).

Ég á líka yndislegustu börn í heimi - en þurfti töluvert að hafa fyrir þeim þegar þau voru lítil.

Á ekkert að uppfræða mann meira um wraparound? 

Laufey B Waage, 13.9.2008 kl. 09:08

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég spyr nú barasta líka, hvað er wraparound???

Huld S. Ringsted, 13.9.2008 kl. 09:14

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Skoða myndina.

Wraparoundið er hægt að nota á óteljandi vegu með því að setja það í allskyns fyrirkomulag.  Það fylgja eiginlega leiðbeiningar með því á netinu.  Frábær flík.

Laufey: Ég var að djóka með upplýsingarnar.  Ég er lítið fyrir að taka þátt.

Edda mín: Ég er búin að vera nánast í alvörunni flutt síðan við töluðum saman síðast í síma.  Hehe, ég þarf alltaf að draga allt á langinn.

Sko ég heyri í ykkur og segi ykkur seinna hvert ég fer.

Viðhöldum spennunni.  Muhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2008 kl. 09:38

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ohh fékkstu wraparoundið!! til hamingju með með dúlludósin þín. Eyrnarlokkar úr hvítagulli eru náttúrlega bara trít. En ég er viss um að þú áttir þetta allt saman skilið.

Mér finnst samt að þú eigir að sinna klukkinu. Svindlari!

Jóna Á. Gísladóttir, 13.9.2008 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband