Leita í fréttum mbl.is

Andúðin á forsetanum

Ég er búin að sitja stóreyg og lesa dagbækur Matthíasar, ekki litið upp.  Það er auðvitað sjaldan sem manni gefst færi á að vera fluga á vegg og fylgjast með sögunni eins og hún var ekki sögð, hvað get ég sagt?  Mannveran er forvitin skepna, ég þar engin undantekning.

Bræðrabönd heimsins snæðið hjarta!  Þarna er valdabatteríið í þessu landi í beinni, að vísu tíu árum síðar, þið skiljið hvað ég meina.

Það er margt skemmtilegt í dagbókarfærslunum, skemmtilegar heimildir um menn og málefni, krúttlegar litlar sögur og falleg ljóð.  Ekta Matthías.  Svo eru það miður skemmtilegri færslur eins og gengur.

Matthías virðist hafa skrifað nákvæmlega niður eftir mönnum, spurning hvort þeim grunaði það.

En það er rauður þráður í gegnum allar færslurnar sem ég er búin að lesa og það fór um mig hrollur þegar ég áttaði mig á því.

Matthías, Davíð, Styrmir og fleiri hafa megnustu andúð á Ólafi Ragnari Grímssyni. 

Mönnum er það frjálst en andúðin er sterk, svo sterk að mér finnst það vægast sagt óhugnanlegt.

Af hverju er Matthías að birta þetta aðeins tíu árum eftir að hann skrifaði það?

Ég er viss um að það er hárbeittur tilgangur með þessu.

Meira að segja þegar forsetafrúin deyr situr Matthías ekki á strák sínum.  Hann skrifar:

"Kista forsetafrúarinnar kom heim í dag. Viðhöfn með eindæmum, án fordæmis. Lúðrasveit verkalýðsins lék sorgarlög. Tekið fram í kynningu að eitt þeirra hafi einnig verið leikið, þegar kista Jóns Sigurðssonar kom til landsins frá Höfn.
Allt fór vel og skipulega fram. Þjóðhöfðingjar Norðurlanda væntanlegir við útförina.
Konungsríkið Ísland í burðarliðnum.
Morgunblaðið laufblað í þungum straumi tíðarandans.
Og dansandi fánar í haustgolunni
."

Við vissar aðstæður hlýtur að vera hægt að henda kaldhæðninni fyrir róða, eða hvað?

En hann er ljóðrænn karlinn.

Það verður ekki af honum tekið.

Úff og dæs.

DAGBÓKARFÆRSLUR MATTHÍASAR


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Svakalegt - eiginlega virðingarleysi við eftirlifendur og þjóðina.

Edda Agnarsdóttir, 18.8.2008 kl. 23:54

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er að velta því fyrir mér hvort þessar birtingar núna séu til að draga athyglina frá einhverju öðru.

Svona lagað gera menn ekki nema að vel hugsuðu máli.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.8.2008 kl. 23:56

3 Smámynd: Ragnheiður

Andúð þeirra á ÓRG skín í gegn en samt er gaman að fá að sjá þennan glugga inn í tíðarandann, ég bendi á að hægt er að skoða færslur Matthíasar enn lengra aftur.

Merkileg heimild.

Ragnheiður , 18.8.2008 kl. 23:59

4 Smámynd: Heidi Strand

Mér fannst þetta ósmekklegt sem fram kom í sjónvarpsfréttum.

Jenný þetta er örugglega rétt hjá þér. Er þetta ekki smjörklípuaðferðin?

Heidi Strand, 19.8.2008 kl. 00:05

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Nýr flötur á Matthiasi.... og ótrúlega lágkúrulegur og sóðalegur.... ég lít þennan mann ekki sömu augum og áður.

ER að nota þetta til að draga athygli frá vandræðum Sjálfstæðisflokksins en bætir sennilega í þau frekar en hitt með þessu

Jón Ingi Cæsarsson, 19.8.2008 kl. 00:05

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sennilega gengur hann sjálfur með forsetaembætti undir belti. Skyldi hann bjóða sig fram næst?

Annars afar smekklaust og fullt biturðar, öfundar og illvilja. Ólafur er tækifærissinni og ansi umdeilanlegur í ljósi fortíðarsannfæringar hans, en hann er forseti í dag og ágætur sem slíkur.  Mattías fyrir mér er ekkert annað en menningargrúppía, sem hefur upphefð sína af því að míga utan í þá sem hæst er hampað á sviði listsköpunnar hverju sinni. Hvaðan honum kemur þessi persónulega biturð, er mér algerlega hulið. Ólafur hefur ekki gert honum nokkurn skapaðan hlut.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.8.2008 kl. 00:08

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þarna fannst mér maðurinn skíta algjörlega í nitina sína, fuss og svei og skömm sé að svona málatilbúningi.  Setja svona fram, vitandi að helmingurinn eða meira er bull, þol þetta bara ekki  arg og garg.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.8.2008 kl. 00:13

8 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég segi eins og Jón Ingi...lágkúrulegt.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 19.8.2008 kl. 00:33

9 identicon

Er aldrei skáldað í dagbækur? :-)

(Það sem Matti skrifar eftir öðrum)

Margrét (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 00:58

10 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ég verð að segja að ég er alveg sammála þér. Ég hef líka tekið eftir þessu, það er nánast eins og hann haldi að hann upphefji sjálfan sig með þessum skrifum um Ólaf..... ekki það að ég sé sérstakur aðdáandi Ólafs heldur. En þetta er ótrúlega lúalegt og eina nýja sýnin sem ég fæ á menn og málefni eftir að lesa þessar færslur, er hve Matthías sjálfur og hans fylgilið eru ótrúlega miklir skíthælar og rotnir karakterar..... bara mín skoðun!

Lilja G. Bolladóttir, 19.8.2008 kl. 02:40

11 identicon

Kannski hefur Ólafur haft rétt fyrir sér þegar hann sagði að Davíð hefði skítlegt eðli, nei ég segi nú bara svona því Davíð og Matthías eru skoðanabræður og líkur sækir líkan heim.

Valsól (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 09:41

12 identicon

ótruleg lákúra þetta með fyrrverandi forsetafrú. Finn til með börnum þeirra í þessu skítkasti.

rut sumarliðadóttir (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 12:35

13 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég hugsaði það sama Jenný

Edda Agnarsdóttir, 19.8.2008 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband