Leita í fréttum mbl.is

Íslandi allt - úje

Þegar Íslendingar byrjuðu að flykkjast í sólarferðir voru fjöldafylleríin svakaleg.  Flugvélarnar dúuðu og ölóðar kerlingar og karlar hræddu líftóruna úr starfsfólkinu um borð.

Svo var djammað og djúsað í þessar vikur sem dvalið var á Spáni og það vita allir sem kæra sig um að íslenska þjóðin var sér til skammar á Spánarströndum fyrir að kunna ekki að haga sér í ferðalögum.

Svo má ekki gleyma matnum sem fólk tók með sér, það átti ekki að fara að éta baneitraðan hroðbjóð spánskra villimanna - ónei, hangikjötið, fiskbúðingurinn og saltfiskur var tekinn með.

Sumir voru að selja saltfisk í fríinu.  Jabb, þetta var skrautlegur tími.

En það var þá.

Í Danmörku hér á árum áður var talað um að þekkja mætti Íslendinga og Svía á Strikinu án þess að heyra hvaða mál þeir töluðu.

Svíarnir þekktust af því þeir þvældust á göngugötunni dauðadrukknir.

Íslendingarnir þekktust af því sama plús að þeir voru með milljón innkaupapoka í eftirdragi.

Það eru alltaf einhver alkahólíseruð þjóðarbrot að þvælast út um heimsbyggðina í leit að fjöri.  Svei mér þá ef þetta skiptist ekki reglulega á milli þjóða.

Svíar vilja meina að Finnar séu nánast óalandi og óferjandi með víni.  Þeir fari í flokkum og hafi hátt.  Vilji slást.  Satana perkille.

Og nú er enska þjóðarsálin að gera sig fræga á Spáni vegna fylleríishegðunnar sem oft endar með sjúkrahúsvist.

En hvaða þjóðarbrot göslast hér um á Íslandi eins og bilaðir valtarar? 

Finnar?

Danir?

Fólk frá Balkan?

Englendingar?

Svei mér þá ef nokkur þjóð toppar okkur Íslendingana í fönninu.

Við erum best í öllu.  Ávallt og allsstaðar.

Sjáið handboltaliðið í Peking.

Íslandi allt - úje


mbl.is Breskir ferðamenn hegða sér illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Búkolla: Muhahaha, man það.  Þessir með glansáferðinni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.8.2008 kl. 11:43

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.8.2008 kl. 11:47

3 Smámynd: Hulla Dan

Bara að óska þér góðs dags

Hulla Dan, 13.8.2008 kl. 11:51

4 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Innlitskvitt

Anna Margrét Bragadóttir, 13.8.2008 kl. 11:54

5 identicon

OMG harðfiskur,hangikjöt og grænar frá ora

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 11:57

6 Smámynd: Heimir Tómasson

Hvað með handboltalandsliðið? Missti ég af einhverju hérna erlendis?

Heimir Tómasson, 13.8.2008 kl. 12:13

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Handboltaliðið er best í heimi sko.  Ekkert brennivín á þeim drengjum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.8.2008 kl. 12:24

8 Smámynd: Heimir Tómasson

Ah. Hélt kannski að einhverjir hefðu verið teknir fullir. Hvað veit maður?

Heimir Tómasson, 13.8.2008 kl. 12:34

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Var að pæla í þessu í morgun.  Við höfum nú svo sem orðið að henda út Íslendingum af okkar veitingastað fyrir ólæti, þó erum við ansi þolinmóð hjón svona í eðli okkar. 

 Einu sinni varð ég að gerast dyravörður og stóð eins og kona úr víking og spurði alla hvort þeir ættu pantað borð.  Kvöldið áður hafði komið hópur Íslendinga sem gjörsamlega umturnuðust þarna inni og voru með þvílík ólæti og orðbragð sem myndi aldrei þorna hér á síðunni ef ég hefði það eftir.

Ég beið alltaf eftir stórfrétt í blaði landsmanna:  Íslendingum meinaður aðgangur að Íslenska staðnum Reykjavík í Prag.  OK þetta var nú fyrir nokkrum árum.

Bretar eru bara stórtækir í djamminu þá sérstaklega ef þeir komast í ódýrt öl en verst eru steggjapartyin sem er búið að loka fyrir hér á mörgum stöðum.

Segi eins og þú hvað með alla hina Skandinavisku vini okkar þeir eru sko ekkert betri þegar vín er haft um hönd.  Geta gert hvern mann gráhærðan með góli sínu. 

Ía Jóhannsdóttir, 13.8.2008 kl. 13:18

10 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Hef aldrei skilið Mörlandann og matinn með til útlanda,- með mat á heilanum . Kalla þig góða Jenný mín að muna filleríið

Rosalega stóð handboltaliðið sig vel í nótt, gaman, gaman

Eva Benjamínsdóttir, 13.8.2008 kl. 13:19

11 identicon

Ég verð nú að segja að það er liðin tíð, þegar landar okkar höguðu sér ílla. Skiltið "Íslendingum er bannaður aðgangur" sést ekki lengur.

Smyrill (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.