Leita í fréttum mbl.is

Óli algjör sveppur

 egg

Ég er að pakka niður hérna á milli hverfa.

Margt sem þarf að taka með.

Við vitum ekki með Bördí, hann er svo viðkvæmur og undarlegur fuglinn sá,  held að hann færi yfir um við flutningana.  Þannig að ég kem til með að vera hérna heima hluta úr degi og þá get ég auðvitað bloggað sem aldrei fyrr.Devil (Ég verð selskapsdama fugls.  Það er rétt ég á ekkert líf).

En.. Svo er það forsetinn.  Hér varði ég manninn þar til ég var að niðurlotum komin, og svo fær maður heldur betur að kyngja því hráu.

Mér fannst og finnst reyndar enn að Dorrit og hann megi eiga alla þá vini sem þau kjósa í heiminum, þar með talda Mörtu Stewart.  Mér finnst það algjörlega þeirra einkamál hverjum þau fara með út að borða.  En nú er Ólafur að setja niður sína síðustu kartöflu í mínum garði ef þetta er satt, sem ég efast reyndar ekki um.

Hin ástæðan fyrir brottrekstur úr mínum kartöflugarði er að Óli er að fara á Ólympíuleikana að snobbast og derra sig með morðingjunum í Kína.

Reyndar fær enginn íslenskur stjórnmálamaður að athafna sig í mínum matjurtagarði sem þangað fer og sendir mannréttindabaráttu í heiminum fokkmerki.  Étið þið úldna skötu bjánarnir ykkar.

Og svo eru það húsráðin.

Ég veit hvernig maður fær páskagul egg upp úr pottinum.  Bara skella ystu lögunum af gulum lauk með í pottinn.  Ég stóð á öndinni í mörg ár út af þessu undri sem finnsk vinkona mín kenndi mér.

Já og að setja brauðsneið í púðursykurspokann þegar sykurinn er orðinn glerharður.  Voila og daginn eftir er sykur sem nýr (en þið verðið að henda brauðinu, það verður allt undarlegt eitthvað.  Dem).

En hvernig hef ég farið að án þess að fatta þann vinnusparnað sem felst í því að skera sveppi og jarðaber í eggjaskerara?  Vá, veit umheimurinn þetta og ég bara svíf um í ingnoransínunni?

Farin á Leif.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góðan daginn ! Sammála þér með Ólaf.....en þetta síðasta að skera jarðaber og sveppi eggjaskera , ég hef aldrei heyrt þetta og mér finnst þetta tær snilld.....ætla aldeilis að prófa !

Góða ferð á Leifsgötuna !

Sunna Dóra Möller, 24.7.2008 kl. 09:51

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Æ Óli ...  búinn að missa sig tótallí ...  .. Takk fyrir holl húsráð!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.7.2008 kl. 09:55

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég leitaði hér dyrum og dyngjum að mínum eggjaskera um daginn! Fann hann ekki - hefur líklega gengið í vegg í skelfingu í jarðskjálfta! Ég varð að nota gamla móðinn og draga fram beittan hníf....

Hrönn Sigurðardóttir, 24.7.2008 kl. 10:13

4 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Þegar ég var barn notaði ég eggjaskera heimilisins sem hljóðfæri.  Spilaði ódauðleg nútímaverk með undarlegum og tilviljanakenndum tónum.  Ég hafði ekki hugsað út í að það væri hægt að skera með þeim. góð hugmynd

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 24.7.2008 kl. 10:44

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Finnst þér ekki yndislegt að geta leikið Mörthu S. á íslensku bloggi!

Verð alltaf jafn spæld yfir því að ég skuli ekki hafa fundið upp þessi guðdómlegu húsráð, vissi allt nema með jarðaberin sem er algjör snilld!

Knús á þig ljúflingur.

Edda Agnarsdóttir, 24.7.2008 kl. 11:05

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Mér finnst Ólafi og Dorrit algerlega frjálst að bjóða heim til sín þeim sem þeim þóknast. Svo finnst mér að það eigi ekki að blanda pólitík saman við Ólympíuleikana, þetta á að vera ópólitískur vettvangur fyrir þjóðir heims að koma saman og keppa í íþróttum.

Helga Magnúsdóttir, 24.7.2008 kl. 12:07

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Er það ekki líka spurning hvort að þessar veislur séu á kostnað embættisins eða úr hans eigin vasa.....mér finnst það þurfa að koma fram !

Sunna Dóra Möller, 24.7.2008 kl. 12:13

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sunna: Þeim var boðið til Bessastaða þessu fólki.  Mér finnst það út úr kú.

Helga: Lífið er pólitík, það er ekki hægt að horfa fram hjá mannréttindabrotum Kínverja af því það hentar okkur vegna íþrótta.  Ég hef ekkert á móti Ólafi og frú en þau eru að fara yfir strikið þarna.

Edda: Algjör Martha.  Meila þér á eftir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.7.2008 kl. 12:51

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hallgerður: Ég legg mig fram um að vera ekki gagnrýnislaust með eða á móti ráðamönnum.  Þannig er nú það.  Nú fær eggjaskerarinn nýtt hlutverk á íslenskum heimilum.

Matta: Helvíti ertu listræn.

Hrönn: Láttu tryggingarnar borga nýjan.  Muhahaha.

Jóhanna: Yess.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.7.2008 kl. 12:53

10 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er algjörlega sammála þér Jenný, þetta er algjörlega út úr kú og úr takti við allan íslenskan raunveruleika þetta skref hjá forseta vorum! Mig langar bara að vita hvort að þjóðin borgaði þessa ríkra manna veislu !

Sunna Dóra Möller, 24.7.2008 kl. 12:55

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vil gjarnan fá að vita það líka, þ.e. hver borgar brúsann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.7.2008 kl. 13:19

12 identicon

Þetta með eggjaskerarann er eitthvað sem ég mun nýta mér. Ætla ekki að tjá mig um hitt ;) Ég hefði viljað hitta Mörtu og láta hana kenna mér að framleiða mat eins og hún gerir nam,nam. Svo er hún er frábær að gera upp gamla hluti sem ég gæti nýtt mér líka ;) Býð henni heim næst og þér með

Kossar til þín

Brynja Nordquist (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 13:26

13 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

frábært húsráð þetta með eggjaskerann......ég er pínu spæld með Ólaf og Doritt....það eru einhvernveginn allir að bregðast í dag....ég verð fyrir vonbrigðum með hvern stjórnmálamanninn á fætur öðrum og núna forsetann.....það er fokið í flest skjól.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 24.7.2008 kl. 14:05

14 Smámynd: Kolgrima

Bíddu nú við, varst þú á Bessastöðum með Mörtu? Þetta eru frábær húsráð, skil ekkert í mér að hafa ekki fattað upp á þessu sjálf!

Kolgrima, 24.7.2008 kl. 14:13

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kolgríma: Var að fatta að ég brá mér í Mörtulíki þarna.  Hafði ekki áttað mig á því.  Frábært.

Krumma: Satt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.7.2008 kl. 14:51

16 Smámynd: Marta B Helgadóttir

..hmm takk fyrir húsráðin.

Hann Ólafur er ættaður úr minni sveit og var góður drengur lengi framanaf ævinni :)

Marta B Helgadóttir, 24.7.2008 kl. 16:38

17 identicon

Óli Grís að snobba eru gamlar fréttir. Húsráðin sum kunni ég.Takk fyrir

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 18:43

18 identicon

Hef stutt forsetann hingað til, er ekki viss hvort ég held því áfram.Að mínu mati eigum við ekki að senda íþróttamenn á þessa ólimpíuleika og stjórnmálamenn eiga halda sig heima.

Sveitakona (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 20:48

19 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

hmm, eggjaskeri eyðileggst á stuttum tíma á sveppum, en jarðarber, það er sniðugt :)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 25.7.2008 kl. 08:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985877

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband