Leita í fréttum mbl.is

Plebbalisti Jennýjar Önnu - varúð - ekki fyrir viðkvæma!

 duran11

Ég hef haft nógan tíma í dag til að hugsa.  Já, ég verð stundum lostin sterkri löngun til að nota heilabúið, þess á milli liggur það í algjörum dvala.

Og ég var að pæla í plebbisma.  Hvað mér finnst plebbalegt og að öðrum finnist ekki það sama og mér um málið.  Sumum finnst kannski eitthvað sem mér finnst hipp og kúl, algjörlega glatað.

Og hvað er plebbi, art.plebius(Devil), plebbaskapur?

Ég get nefnt dæmi um rakinn plebbisma.

Ef þú færð raðfullnægingar yfir lágu verði á grænum baunum og keyrir bæinn á enda til að nálgast baunadósina ertu sennilega plebbi.

Ef þú hrósar kjólnum vinkonunnar og hún segir; "takk bara 2000 kall í Hagkaup" eða þú dáist að garðsláttuvél nágrannans og hann svarar sömuleiðis; "takk bara 3000 karl í Ellingsen" þá ertu að tala við verðlagsplebba sem geta aldrei látið hjá líða að romsa upp úr sér góðum dílum.  Þeir setja merkimiða á lífið og þeir leita jafnvel  tilboða í útfarir þegar þeir missa náinn ástvin og deila útkomunni glaðir með erfisdrykkjusyrgendunum.

Og ef þú ferð á Þorrablót, þá ertu kannski í plebbahættu, þ.e. ef þú úðar í þig hákarli og sviðnum augum og heldur því fram að hvorutveggja kitli bragðlaukana og þig langi sífellt í meira.

Ef þú ert fyrstur í röðinni á öll svona endurkomusjó.  Ef þinn æðsti draumur er að Herman Hermit´s komi saman aftur og ef þú neitar að trúa að Presley sé dáinn eða þá Jim Morrison, þá erum við sennilega að tala um tónlistarplebba.

Ef þú ert karlmaður með líkhvíta loðna leggi í svörtum dralonsokkum, og þér finnst ekkert að því að ganga um á nærbuxunum og sokkunum fyrir framan elskuna þína, þá ertu vonlaus og veikur plebbi á lokastigi sjúkdómsins.

og að lokum, amk. að þessu sinni, ef þú grætur af söknuði eftir eitístískunni, bæði herðapúðum og hárgreiðslu, þá ertu sennilega staðnaður plebbi og mættir alveg fara að henda úr fataskápnum og sonna.

Meira seinna.

Bara góð sko.

Lögst í rannsóknir á snobbhæsnum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég hélt að plebbismi væri fyrst og fremst eitthvað í átt við merkjaföt og að þekkja rétta fólkið.

Eða eru þetta ekki plebbar..

Jakob frímann

Einar Bárðarson

Geir Ólafsson

Sigurður Kári kristjánsson

Guðlaugur Þ Þórðarson. 

Brynjar Jóhannsson, 13.7.2008 kl. 21:24

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brylli minn, þú ert úti að keyra með plebbismann.

Allir þessir menn gætu verið plebbar, plebism is in the eye of the beholder

En mitt mat er að þú ert nokkuð nálægt þessu með þessa karla, en það hefur ekkert með fataskápinn þeirra að gera.

Úje.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2008 kl. 21:27

3 identicon

LOL

Guðrún B. (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 21:38

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Dónaskapur!! What???

Sko... hámark plebbismans fyrir mér þessa dagana er liðið sem lullar áfram um vegi landsins á húsbílum!!! Ojjjjjjj
Eru virkilega til konur sem raka ekki á sér leggina?

Heiða B. Heiðars, 13.7.2008 kl. 21:41

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

HAHAHA.....loðnir í dralon...þú drepur mig.....annars tek ég undir með Heiðu plebbarnir eru í húsbílum landsins þar sem annar hver bílstjóri er í köflóttri skyrtu sem í óformlegri rannsókn minni virðist vera einkennisklæðnaður þeirra...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 13.7.2008 kl. 22:28

6 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Arg! Já Hrafnhildur!! Og með "comb-over" eða yfirvaraskegg....eða jafnvel bæði!!

Heiða B. Heiðars, 13.7.2008 kl. 22:32

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða og Krumma: GARG.

Hallgerður: Hvaða dónaskap ertu að tala um?  Og ég minnist ekki orði á órakaða kvenmannsleggi.  Ekki orði. Hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2008 kl. 23:08

8 identicon

líkhvítir loðnir leggir i dralon sokkum... á alveg að ganga frá manni hérna kona...

múhahahahahhahahahahahahahahha

þú ERT ALGJÖLEGA SVAKALEGA FYNDIN.. og átt þvílíkan orðaforða... sem vantar í málfar okkar í dag... djö það sem ég hló... woman

Valdí (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 23:50

9 Smámynd: Margrét Hrönn Þrastardóttir

Þorramatur, nammi,namm... 

en takk fyrir að koma plebbanum mér í gott skap

Margrét Hrönn Þrastardóttir, 13.7.2008 kl. 23:58

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég var þegar viðbúinn að móðgast yfir því að vera ekki á listanum fyrir 'plebbizmann', eða ná ekki að samsvarast einhverstaðar, en þú bjargaðir þér með þorrablótsblætið þitt, við erum dúz.

Steingrímur Helgason, 14.7.2008 kl. 00:09

11 identicon

Mér fannst nú Brylli vera næstum því meððetta! þangað til ég kom að Þorrblótskaflanum þá fannst mér e-ð vanta á listann (sbr. komment Zteingríms nokkurs)

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 00:44

12 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Bestu kveðjur til þín elsku Jenný mín og bið ég góða nóttina og megi allir góðir Guðsenglar yfir þér vaka og vernda

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 14.7.2008 kl. 01:19

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Úff...ég hef verið sýktur á öllum nefndum stigum plús að hafa verið með yfirvaraskegg.  Ég er samt að verða hitalaus aftur og gæti kallast recovering plebbi. Það er nokkuð ljóst að þessi krankleiki getur endað með geðveiki eða dauða.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.7.2008 kl. 01:31

14 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

versti altæki plebbasjúkdómurinn er hjarðhegðun, eða hjarðmennska, sem er landlæg hér. Fólk sem stendur í röð á útsölum eða mætir nakið í búð til að fá frían síma t.d. Ömurlegast finnst mér samt Jesúliðið, sem lætur eins og fábjánar á samkomum, babblar og lætur hrinda sér í gólfið og tekur þarn "orminn" eins og breikararnir. Þar erum við að tala um geðveikis og dauðastigið.

Ég er einnig sammála með húsbílana. Ég fæ svakalegan kjánahroll að sjá fólk keyra um í þessu algerlega ómeðvitað um plebbasýkinguna og euphorískt á svip.

Geir Haarde er líka skelfilega plebbalegur og er alger trendsetter fyrir flokkinn sinn. Plebeísmi er því líka smitsjúkdómur. Ég kem ekki nálægt Geir nema með rykgrímu.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.7.2008 kl. 01:38

15 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þá er ég sem sagt ekki plebbi... það er ágætis nesti inn í daginn

Eigðu ljúfan dag mín kæra

Jónína Dúadóttir, 14.7.2008 kl. 06:41

16 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Sjúkkett......ég er ekki plebbi.....samkvæmt ofangreindu

Wów....lucky me....

Bergljót Hreinsdóttir, 14.7.2008 kl. 08:02

17 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 ekki ég heldur....ÍHAH!!! gott vegnanesti fyrir útileguna,nú fer ég af stad med bros á vør...en samt ekki í húsbíl

María Guðmundsdóttir, 14.7.2008 kl. 08:41

18 identicon

Stefni einbeitt að því að verða húsbílaplebbi í framtíðinni, vona að vegirnir batni svolítið áður en markinu er náð.

Dagný (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 08:54

19 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

að líma Bylgju-límmiða í afturrúðuna. elta síðan Bylgju-lestina um landið þvert og endilangt, í þeirri von að komast í einhvern pott, eða vera dreginn úr einhverjum potti til að fá 5000 Kr. inneignarnótu í Bónus!

það er plebbismi.

Brjánn Guðjónsson, 14.7.2008 kl. 09:55

20 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það er svolítið plebbalegt að drekka latte úr glasi (þá er ég ekki að tala um teikavei). Fyndin færsla, takkkkk!

Guðríður Haraldsdóttir, 14.7.2008 kl. 10:08

21 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hahahaha þetta er brilliant

Djöfull er ég sammála með Crocs, flíspeysurnar og Bylgjuna!!

Heiða B. Heiðars, 14.7.2008 kl. 10:15

22 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Ég heiti Hr. Matthildur og ég er plebbi. Plebbaskapur minn birtist til dæmis þegar ég blogga, það er mjög plebbalegt að blogga, sérstaklega þegar ég blogga um mál sem eru mikið í fréttum. 

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 14.7.2008 kl. 10:40

23 identicon

.Húsbílaeigendur eru plebbar.Köflóttarskyrtur,gallabuxur girtar upp að brjóstum,utanyfir,reyrt fast með belti.Gráir strigaskór-líki með frönskum rennilás,Konan í 80´krumpugalla með perm og hálf-hælaskóm.Sigurvegarar plebbamennskunnarOg markmiðið að vera king of the road og allir á 40.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 10:54

24 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Birna Dís: Góð.

Matthildur: Hver hefur sinn djöfsa að draga.

Hvaða lúseraskór eru Crocs.

Gurrí: Hahahaha

Brjánn: Brilljant plebbismi þarna.

Dagný: Góða ferð.

Dúa: Bíð spennt eftir heimkomu þinni aulinn þinn.

Jón Steinar: Góður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.7.2008 kl. 11:05

25 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

crocs flís og bylgjulest....hahaha hámark plebbismans...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.7.2008 kl. 12:10

26 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Þórdís Guðmundsdóttir, 14.7.2008 kl. 12:46

27 identicon

ooo, mig laangar svo í húsbíl..og svo er ég ekki í Crocks...verra, ég er í eftirlíkingu af Crocks...úr  Rúmfatalagernum og flíspeysan er þaðan líka... - allt of stór á mig , svört, karlmannaflíspeysa...

Bestu kveðjur A.K.Æ yfirplebbi...og er stolt af því hahahahaha...

alva (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 13:13

28 Smámynd: Lilja Kjerúlf

plebbalegt að mínu mati er:

  • Að eiga risastóran jeppa og fara aldrei á fjöll.
  • Að eiga risa risa sjónvarp og kvarta svo yfir að eiga ekki peninga.
  • Að eiga stærsta grillið í hverfinu en enga vini.
  • Að versla í Bónus en raða vörunum í poka frá Hagkaup því það má enginn vita að þú verslar hjá Jóhannesi.
  • Að fara í Kringluna eða Smáralind með krakkana þegar það er fjölskyldudagur.
  • Yfirplebbinn er svo gaurinn sem segir að allar tjéllingar kunni ekki að keyra.

Lilja Kjerúlf, 14.7.2008 kl. 13:21

29 identicon

Gerir einver slíkt,???þ.e að versla í Bónus og setja í Hagkaupspoka ,ertu ekki að grínast?.  En þetta með þorrablótið bjargaði mínum plebbaskap:)

Sigurlaug Gísladóttir (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 15:06

30 Smámynd: Lilja Kjerúlf

jájá ég hef séð það.  En auðvitað gæti verið að hann hafi verið að spara sér pokakaupin, en málið er að gaurinn var svo skömmustulegur að ég gat ekki annað en dæmt gjörðir hans á þessa leið.

Lilja Kjerúlf, 14.7.2008 kl. 16:18

31 Smámynd: halkatla

ég er greinilega ekki plebbi en ég er hrikalega mikið snobb!

halkatla, 14.7.2008 kl. 19:14

32 Smámynd: Aron Ingi Ólason

Ég held að það sé nú kannski full gróft í árina tekið að kalla þennan eða hinn plebba enda hljóta landflestir að teljast plebbar enda er orðið komið úr latínu og þýðir almenningur.

Aron Ingi Ólason, 14.7.2008 kl. 20:01

33 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Var parið í "matching" jogging göllum eða ,,matching" norsku peysunum komið á plebbalistann ?  ... afsakið ,,frönskuna" mína ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 14.7.2008 kl. 22:08

34 identicon

Jón Gnarr gaf út Plebbabókina fyrir nokkrum árum.

Nokkrir molar úr henni, byrja allir á "þú ert plebbi"

ef þú ferð með börnin þín á bílakynningar í bifreiðaumboðum.

ef þér finnst Svíþjóð áhugavert og skemmtilegt land.

ef þú drekkur Coke en ekki pepsi eða öfugt.

ef þú blikkar ljóslausa bíla um hábjartan dag.

ef þú leiðréttir afgreiðslufólk í stórmörkuðum sem bjóða góðan dag eftir klukkan 6.

ef þér finnst Bubbi Morthens hafa svikið þig

Barði Barðason (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 22:09

35 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Að horfa á innlit útlit og henda öllu út og fá sér nýtt af því að allir sem koma í innlit útlit þættina eru með sama stílistann.

Að fara í þáttinn allt í drasli og vona að þú fáir stílistana í innlit útlit til að gera heimilið þitt eins og hjá öllum hinum plebbunum, og þá ertu líka búin að hlusta á Möggu og hennar fylgisveina,konur bölva skítnum og ógeðinu heima hjá þér og allir hinir eru búnir að horfa á viðbjóðinn í tannburstaglasinu þínu.

Að sakna þáttana Landsins snjallasti og Santa Barbara.

Að smakka á öllum kynningarvörunum í Hagkaup,líka þeim sem bragðast ekki vel og kaupa svo helling af draslinu.

og margt margt fleira..................

Frábær pistill hjá þér Jenný mín. Meira af þessu takk, það er svo gott að hlægja

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 15.7.2008 kl. 00:04

36 identicon

Allt í drasli var nú fyrst og fremst vafasamt eins og það var gert hérna á Íslandi - það sem ég sá af þessu var fólk í aðstæðum sem.... já átti ekki að nota til að gera sjónvarpsefni.

Barði Barðason (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 00:14

37 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir frábær innlegg öll.

Barði: Þú hefur sem sagt áttað þig á að mér er full alvara með þessari færslu?

Aöl. er ég sammála þér í seinni kommentinu.  Allt í drasli var afskaplega vondur þáttur og til skammar fyrir Skjá I

Ég er annars í kasti yfir plebbadæmunum ykkar.  Þið eruð Brilljant.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.7.2008 kl. 00:42

38 identicon

Jenný já fyrirgefðu að ég fór aðeins útí leiðinlega kommenterann, þetta er bara eitthvað sem ég tók eftir á sínum tíma og hef ekki fengið útrás fyrir hingað til :)

Snilldarþráður

Barði Barðason (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 01:05

39 Smámynd: Jens Guð

  Þegar ég sá myndina af Duran Duran þá ældi ég yfir vaskinn hjá mér.  Og þreif ekki eftir mig (smá pönk stemmning).  Þess í stað fékk ég flogakast og skreið upp í rúm aðframkominn.

Jens Guð, 15.7.2008 kl. 01:50

40 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Barði: Takk.

Jens: Þú drepur mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.7.2008 kl. 08:03

41 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ađ velta ser upp ur svona hlutum er vođalega eitthvaš vinstri graent

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.7.2008 kl. 20:52

42 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég er auðsjáanlega vonabý plebbi  Mig nefnilega langar í húsbíl og keyra um náttúruna áhugalaus um svefnstað eða að þurfa að tjalda í rigningu.

Annars virðist ég bara hafa sloppið nokkuð vel frá þessum stimpli

Sporðdrekinn, 16.7.2008 kl. 03:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband