Leita í fréttum mbl.is

Íslenskt svín?

 c_documents_and_settings_hp_owner_my_documents_my_pictures_22_189417

Ég var að versla í matinn áðan, stofustúlkan og böttlerinn eru á ástarfundi á Þingvöllum. 

Nú, það er ekki í frásögur færandi, maturinn rándýr eins og venjulega, en þeir eru farnir að segja manni ítarlega frá uppruna vörunnar hjá Goða.

Á pakkningunni stendur með stórum rauðum stöfum; 100% íslenskt grísakjöt!!!

Og nú spyr ég eins og hálfviti, hvaða andskotans útlendinga eru þeir búnir að vera að selja mér fram að þessu?

Eða er þetta trix?  Miðinn á pakkningunni flennigulur með eldrauðum stöfum.  Ætli ég hafi átt að grípa þetta, líta ekki á miðann (eins og ég hef sögu um, þangað til núna) og hugsa; ók, þetta kjöt hérna er á tilboði?

Ég ætla að setja mér það sem verkefni á morgun og hringja í Goða og spyrja hvers vegna þurfi að taka fram að kjötið sé af íslensku svíni.

Hvað er búið að vera að gerast í stíunni hjá þeim?

Hm..

Meira ruglið þetta.

Svona í péessi má geta þess að kílóið kostaði 1783.  Hva?  Tertubiti.

ARG í vegg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég hef starfað í kjötiðnaði meira og minna óslitið síðan 1981... smygl á kjöti hefur alltaf verið viðloðandi þennan iðnað og ég úrbeinaði brasilisk svín 1983-4 í kjötmiðstöðinni sálugu ásmt því að umpakka argentínsku nautakjöti og breyta því í íslenska belju..

En ég held að ég geti fullyrt að Goði aka norðlenska er ekki að flytja inn svínakjöt ! pottþétt grís að norðan.

Óskar Þorkelsson, 21.4.2008 kl. 19:08

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jæja Jenný, hvernig bragðaðist ekta íslenski grísinn?  Snilldarfæsrslur hjá þér í dag, allar með tölu.

Þessi Þorbjörg H. Vigfúsdóttir er auðvitað bara rugluð!  Þekki hana ekki neitt en að láta svona út úr sér er hrein vanviða við þetta fólk sem stofnuðu þessi samtök svo og okkur öll hin sem stöndum með þeim þrátt fyrir að við höfum hvorki mætt á fundinn eða skrifað okkur inn í samtökin.  Auðvitað hefði maður átt að gera það en ég bara heyrði ekki um þetta fyrr en í morgun.  Ætti að láta undirskriftalista ganga á meðal fólk, þá kæmi e.t.v. annað hljóð í þessa háttsettu herra þarna við tjarnarbakkann.

Ef vespurnar fara að angra þig í hitabylgjunni og bongó blíunni þá á ég ráð við því.   Hálffylltu glas af bjór og strákykri og þær bara drukkna þar blessaðar.  Dálítið ógeðslegt en svínvirkar.

Látnir tína upp plastpoka!  Hvaða spaugari er kominn á fréttadeildina?       

Ía Jóhannsdóttir, 21.4.2008 kl. 19:37

3 Smámynd: Ólöf Anna

Hvað varð um orðið svínakjöt???

Grísakjöt hljómar eins og mumukjöt eða gobbagobbkjöt

Ólöf Anna , 21.4.2008 kl. 20:30

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég þekki nokkur 100% íslensk svín!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.4.2008 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband