Leita í fréttum mbl.is

Nýtt frá Londres

Brynja vinkona mín og hin ammans hans Olivers, er í London og eins og venjulega bætir hún mér upp skort af myndum af barnabarninu mínu, en foreldrar hans eru arfaslakir á myndavélinni.  Þessar myndir eru frá því í dag og í gær, kæra fjölskylda, vinir, kunningar og velunnarar (hérna beygi ég mig með enni að gólfi).

Fallega Londresfjölskyldan!

20080415134755_1

Í dag fór Oliver út að djamma á Pizza Express með ömmu-Brynju!  (Krúttkast)

20080416204319_6

Og svo fór amma-Brynja í heimsókn til Maysunnar í vinnuna hjá Arrogant Cat

20080416204250_5 

og ein að lokum af Maysunni minni og Oliver:

20080415192838_3

Sko, þarna tókst mér að breyta stærð í fyrsta sinn.  Hm.. ég er algjörlega brilljant.

Sé ykkur á morgun í vorinu, fuglasöngnum, gróandanum og í félagsskap gula fíflsins.

Ójá.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sæt fjölskylda Jenný mín, þú ert rík
Góða nótt.  

Marta B Helgadóttir, 16.4.2008 kl. 23:58

2 Smámynd: Hulla Dan

Fallegt fólk  

Hulla Dan, 17.4.2008 kl. 00:05

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Enn og aftur.. hvaðan kemur þessi fegurð

Ji minn hvað Ian væri til í bolinn hans Olivers. Spiderman sko. Það er inn.

Jóna Á. Gísladóttir, 17.4.2008 kl. 00:35

4 Smámynd: Tiger

Það er fátt hægt að segja annað en að þú átt endalaust fallegt fólk í kringum þig glæsilega meyja, meira segja amman hinumegin er líka falleg - svo hvernig má annað vera en að börnin og barnabörnin fái sinn skerf af fegurðargenum frá ykkur ömmunum?

Maysan er mjög falleg stúlka og hún virðist líka vera með fallegt og ljúft viðmót í kringum sig. Vonandi hefur hún líka fengið dásamlega uppátækjasama og litríka skapgerð móður sinnar í vöggugjöf.

Knús á þig ljúfust og eigðu nú góða nótt og ljúfan dag á morgun Jenný mín.

Tiger, 17.4.2008 kl. 00:37

5 Smámynd: Brynja skordal

Mikið eru þetta fallegar myndir af þínu fólki Jenný mín knús inn í nóttina

Brynja skordal, 17.4.2008 kl. 00:50

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Bjútí!

Laufey Ólafsdóttir, 17.4.2008 kl. 05:03

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Falleg fjölskyldan þín og skal engan undra 

Jónína Dúadóttir, 17.4.2008 kl. 07:20

8 Smámynd: Linda litla

Krúttfærsla, ekki spurning, mér finnast fjölskyldumyndir svo yndislegar. Þú átt fallega fjölskyldu Jenný mín.

2 föðm inn í daginn, vonandi verður hann góður hjá þér.

Linda litla, 17.4.2008 kl. 09:10

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jenný, finnst þér ekki dásamlegt þegar myndirnar eru loksins komnar á síðuna ? Ég er alltaf svo lengi að þessu og skil ekki allt þetta tækniundur. En annars, myndin er krúttleg af fjölskyldunni í sófanum og róandi yfirbragð gefur hún. Vonandi fer þessi ró aldrei frá þeim.

Óliver með alla límmiðana sína, ótrúlegt að börn skuli hafa gaman af þessu! Hann er krúttabomba með meiru.

Svo er það amman, ja er hún ekki bara kynbomba? Maysan veit hvernig á að tækla þetta með virðingunni.

Væntumþykjan umlykur krúttin þín.

Jenný ég er heima - ef þú nennir að hringja!

Edda Agnarsdóttir, 17.4.2008 kl. 09:17

10 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Takk Jenný, alltaf gaman að sjá fallegt fólk, þau eru yndisleg öll  og ljómandi uppsetning hjá þér

Eva Benjamínsdóttir, 17.4.2008 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985775

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband