Leita í fréttum mbl.is

Bland

Einhverjir hafa verið að hvetja mig til þess að fara að skrifa heitu bloggin um samfélagsmál, en það verður að segjast, að ég hef algjörlega látið það eiga sig undanfarið. (Sumir fá kikk út úr því að láta aðra þjástW00tvilja sjá mann engjast.)

Ástæða?

Jabb, ég þarf á orkunni minni að halda í sjálfa mig þessa dagana. Þess vegna sneiði ég hjá því sem gerir mig brjálaða úr reiði. 

Þar má nefna þetta t.d.

Ég verð nefnilega í alvörunni reið og langar að fremja eitthvað.

En hvað um það..

Það er líka hægt að verða alveg stjörnuvitlaus af vonsku yfir að 16 ára krakki skuli sitja í hegningarhúsinu.  En... ég tel upp að 10 og tek það seinna.

Að öðrum og skemmtilegri hlutum

Stóra barnabarnið mitt hann Jökull Bjarki (sem er í eðlilegri stærð sko, bara sá elsti af hópnum), er að fara að fermast á pálmasunnudag, í Dómkirkjunni.  Allir velkomnir (djók).  Vá hvað tíminn líður, barnið fæddist á byltingarári ömmu sinnar, einn af fáum ljósum punktum í tilverunni á því herrans ári 1994. Knús Jökli minn.

Hér eru myndir af ungviðinu mínu.

Jenný Una fær bara hrískökur í stað nammis.  Amman kippir því í liðinn fljótlega.Whistling

Hrafn Óli fær ekkert nammi en er alltaf svakalega glaður

Og hann Oliver bjó til þetta fína kort handa ömmu-Brynju þegar hún var í London í síðustu viku.

Hér með er krúttkast dagsins tekið.  Allir í næsta vegg! 

Ég er auðvitað bara góð.

Hóst, hóst og allt það..

..en samt góð.

Síjúgæs!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Dúllukrakkar Jenný mín.  Veit ekki þetta með hrískökurnar en þær eru víst vinsælar í leikskólunum.  En auðvelt að kippa því í lag á ömmu og afa dögum.

Ía Jóhannsdóttir, 4.3.2008 kl. 11:45

2 Smámynd: Dísa Dóra

Já ég bloggaði einmitt um misþyrmingarnar í gær líka og er enn reið (svosem eins og þú verð bara reið við tilhugsunina um slíkt).

Þessi börn eru bara dúllur

Dísa Dóra, 4.3.2008 kl. 12:01

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú ert rík

Jónína Dúadóttir, 4.3.2008 kl. 12:37

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Ljúft.

Lenti á gifsvegg.

Þröstur Unnar, 4.3.2008 kl. 12:48

5 Smámynd: Garún

Sko nýjustu rannsóknir sína að hrískökur eru EKKERT! þannig er nú það bara

Garún, 4.3.2008 kl. 13:01

6 Smámynd: Ragnheiður

Ja..veit ekki með hrískökurnar..veit samt hvað mér finnst um ofbeldið og líka þetta með 16 ára strákinn í fangelsinu..

Hafðu það gott mín kæra og reyndu að reka flensudrusluna burt.

Ragnheiður , 4.3.2008 kl. 13:11

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Yndisleg börn ..  ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.3.2008 kl. 13:18

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Krúttkast

Í sambandi við ofbeldi og handónýta dóma, ég veit ekki hvað er til ráða, nema að við tökum öll höndum saman og gerum hróp að þessum dómum, látum menn finna fyrir því virkilega að þetta er skandall og til skammar.  Ég held að þeir séu ekki ósnertanlegir bara fjarlægir og oftast í felum þessir dómarar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.3.2008 kl. 13:22

9 Smámynd: Sunna Dóra Möller

 Krúttkast.....en enginn veggur nálægur !

Sunna Dóra Möller, 4.3.2008 kl. 13:26

10 identicon

OMTC - er ekkert smá hrifin af honum Hrafni Óla!!   Ekki að krúttstuðullinn hans sé að skyggja á frk. Jenný Unu eða Óliver.  Þau valda honum alveg.

Elisabet R (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 14:02

11 Smámynd: Linda litla

Yndisleg börn

Linda litla, 4.3.2008 kl. 14:07

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Skil þig svo vel Jenný hin flottastaÉg verð líka svona reið, í gær náði ég ekki andanum í orðsins fyllstu, það er ekki gaman svo maður verður að passa sig, en stundum er það fjandi erfitt.
Pálmasunnudagur verður yndislegur hjá ykkur öllum, ég skal segja þér að þú fyllist stolti er þú sérð hann fermast drenginn þinn.
Ég hef nú sagt það áður, ekkert er stórkostlegra en fjölskyldan og þau eru bara æðisleg dúllu krúsin hér að ofan.
                              Farðu vel með þig.
                              Orkukveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.3.2008 kl. 15:33

13 Smámynd: Tiger

  þetta er það eina sem ég hef um dómskerfi Íslands að segja. Skammast mín fyrir kynbræður mína, stundum og suma.

Glæsilegir afleggjarar út frá þér Jenný, líkt og amman sjálf!

Tiger, 4.3.2008 kl. 16:15

14 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Notaðu orkuna sjálf, þótt ég sé sammála þér í gagnrýni þinni, þá get ég bara svo vel unnt þér þess að eiga sjálf þína orku.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 4.3.2008 kl. 18:12

15 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvernig væri að senda inn mótmæli  til ráðherra dómsmála?

Við skrifum öll bréf og mótmælum hver fyrir sig.

Myndirnar af krúttunum þínum eru æði. Gaman að sjá minnsta krílið í nærmynd.

Edda Agnarsdóttir, 4.3.2008 kl. 19:21

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Öll megadúllur ekki spurning.   It's All Good     

Ásdís Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985877

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband