Leita í fréttum mbl.is

Klár í bátana!

 

61 Stundum getur maður þakkað almættinu fyrir flensur og aðra óáran.  Ég hef nefnilega verið "gránduð" heima alla helgina með hita og ekki getað hamast um allt eins og ég hafði ætlað mér.  Þess vegna hef ég getað lent og áttað mig. 

Á 500 km. hraða hafa hlutirnir gerst á nýju ári og að vandlega athuguðu máli hafa þeir allir verið til góðs.

Læknirinn minn á Vogi sagði mér að ég væri töffari sem væri sjálfri mér harður húsbóndi og vissulega er það rétt eins og allt annað, sem þeir sem vita í alvörunni betur, hafa gaukað að mér í gegnum tíðina.  Mér hefði verið vísast að hlusta betur, en það er aldrei of seint að byrja.

Nú hef ég verkefni að vinna.  Það fyrsta er að þvo þvott og dúlla í kringum mig.

Svo tekur við skemmtilega erfið vika í göngudeildarmeðferðinni minni.  Þar sem ég þarf að nýta alla mína orku.

Þess vegna þakka ég mínum sæla fyrir kyrrsetninguna.

Ég er enn með hita og hósta.  Kva!  Íslensk kona, tek það með vinstri.

Nú er ég nefnilega klár í bátana.

Ójá og njótið sunnudagsins elskurnar mínar.

Það ætla ég að gera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Góðan bata og gangi þér vel í deildinni í vikunni.

Bjarndís Helena Mitchell, 2.3.2008 kl. 11:54

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi þér allt í haginn Jenný mín.  Þú ert sannarlega hetja, og hefur synt okkur hinum það svo það gleymist aldrei held ég.  Og verður leiðarvísir til framtíðar fyrir mig allavega.  Gott kjaftshögg sem þú gafst okkur elskuleg.  En stundum er það gott og bætir mann að fá svoleiðis. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2008 kl. 12:09

3 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl, þú ert frábær karakter, stendur þig sem hetja.  Ég dáist að hreinskilni þinni og dugnaði  gegn Bakkusi.  Það er stór hópur kvenna sem þykjast ekki drekka úr hófi fram.  Margar fara létt með að stúta tveimur rauðvínsflöskum eða hvítvíni  yfir helgi og vita svo ekkert í sinn haus daginn eftir. Láttu þér batna sem fyrst og gangi þér vel í meðferðinni. Bloggin þín eru nauðsynleg á hverjum degi.

kkv.

Ásgerður Jóna Flosadóttir

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 2.3.2008 kl. 12:11

4 identicon

 gangi tér vel og góðan bata  

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 12:22

5 Smámynd: Kolgrima

Kolgrima, 2.3.2008 kl. 12:46

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gott að þú veiktist

Hrönn Sigurðardóttir, 2.3.2008 kl. 12:47

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hafðu það gott í dag töffari allt hitt er bara spurning um
skipulag              Knúsý kveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.3.2008 kl. 13:30

8 Smámynd: Tiger

  Já, við ættum stundum að hlusta þegar á okkur er yrt. Megum alls ekki láta töffarann í okkur verða skynseminni yfirsterkari þegar heilsan er annars vegar. Teljum okkur oft ráða við allan heiminn og vöðum áfram í þrjósku þess sem hefur unnið hörðum höndum allt lífið og ekki látið smá verk eða flensu leggja okkur í straff. Góður er þinn húsbóndi sem setti þig í útivistabann heima, hlustaðu vel á hann því hann er greinilega með þig, þig og aftur þig í huga og hjarta og vill þér greinilega allt hið besta.

  Hef þig í bænum mínum í vikunni, sem og oftar kæra bloggvinkona. Smá bæn hefur aldrei sakað neinn svo hér er mín til þín - Guð gæti þín kæra og gefi þér styrk á þeirri frábæru braut sem þú hefur lagt á.

Tiger, 2.3.2008 kl. 16:12

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sunnudagsknús.

Guðríður Haraldsdóttir, 2.3.2008 kl. 18:43

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Farðu vel með þig, það er enginn annar til þess

Jónína Dúadóttir, 3.3.2008 kl. 06:09

11 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Farður vel með þig Jenný og gangi þér vel ....

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 3.3.2008 kl. 08:15

12 Smámynd: Þröstur Unnar

Mánudagsknús.

Þröstur Unnar, 3.3.2008 kl. 08:39

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Stattu þig stelpa! Þú veist mér þykir vænt um þig

Hrönn Sigurðardóttir, 3.3.2008 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985877

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband