Leita í fréttum mbl.is

Jenný komin heim - Snúra - Úje - Úje

95

Viðkomandi alkóhólisti var að detta inn úr dyrunum, og þar sem ég sit hér í kápunni (djók), með sígó innandyra, eftir að vera búin að reykja úti í kuldanum í 11 daga og komin með króníska lungnabólgu eða þið vitið hvað ég meina (hóst, hóst), er auðvitað það fyrsta sem ég geri að henda mér á bloggið.  Ekki séð sjónvarp, ekki heyrt í útvarpi, ekki litið í blöðin (þrátt fyrir að þau hafi verið í boði) í allan þennan tíma.

Ég er afvötnuð og yndisleg, og á leiðinni í göngudeildarmeðferð 4 kvöld í viku og sollis næstu misserin.

Ójá.

Ég veit ég á ekki að segja það, en það er mannbætandi að hafa komist í meðferð, þó auðvitað sé það ekki á óskalistanum að hrapa í batanum.

Mikið andskoti sem ég er ánægð með mig þótt minn nýráðni afleysingaritstjóri sé hér með rekin úr djobbinu.  Jóna mín ég tek þig á teppið á eftir.

Ég hef svo margt að segja ykkur óþekktarangarnir ykkar, að nú verður bloggað í maníu. (Já Jón Steinar, þakka þér fyrir að klína á mig þessum geðsjúkdómi.  Það er dásamlegt að það skuli vera hægt að greina mann óséðan yfir netheima og það án þess að hafa til þess tiltekna menntun.   Þakka þér kærlega fyrir, en ég held að ég láti lækna um að sinna heilsu minni og sjúkdómsgreina mig í framtíðinni.  Ég er svo höll undir lækna. Ég er líka höll undir rafvirkja þegar það klikkar og hef ofurtrú á pípulagningarmönnum á meðan þær fara ekki í mínar pípur).

Ég hreinlega kemst við, vegna allra fallegu kveðjanna frá ykkur. Það er ekki að ástæðulausu að mér þykir vænt um bloggsamfélagið.  En að láta mig hrapa niður í 20. sæti á vinsældarlistanum er leim, svo ekki sé meira sagt.  Hvar er tryggðin?  Ég rétt brá mér frá.  Búhú. 

Nú verður batinn tekinn traustataki, enda um líf og dauða að tefla.

Ég get ekki bloggað úr kirkjugarðinum.  Tækninni fleygir einfaldlega ekki nógu hratt fram.

Nú ætla ég að anda.  Hringja nokkur símtöl og knúsa og kyssa mitt kæra fólk fram eftir degi.

I´m back and sober like mo-fo.

Úúújeeeee!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga skjol

Velkominn heim hlakka til að fylgjast með þér áfram.

klemm og knús. 

Helga skjol, 26.2.2008 kl. 16:12

2 Smámynd: Hugarfluga

Gott að fá þig aftur, vúman.

Hugarfluga, 26.2.2008 kl. 16:14

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, gott að sjá ykkur aftur ljósin mín.  En ég kemst ekki inn á meilið mitt, er samsæri í gangi gagnvart mér?  Hvar er Jón Steinar?  Þarf að spyrja hann hvort ég sé með paranoju?

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.2.2008 kl. 16:17

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Velkomin heim aftur Jenný mín.  Sorrý með vinsældarhrapið, eitt fylgir öðru sko  Gott að fá þig inn aftur mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2008 kl. 16:21

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Æ, mikið er eitthvað gott að "sjá" þig aftur! Velkomin heim... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 26.2.2008 kl. 16:28

6 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Velkomin, velkomin í vorn bloggheim gott að fá þig aftur

Svala Erlendsdóttir, 26.2.2008 kl. 16:28

7 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

AAAAA(lesist sem gleðióp) velkomin heim....mikið assskoti sem ég hef saknað þín, gott að heyra að þú ert ferskari sem aldrei fyrr. Var ekki annars fínt að fara í endurmenntun....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 26.2.2008 kl. 16:39

8 Smámynd: Signý

Velkomin heim ég mundi stíga trylltan dans þér til heiðurs, ef ég kynni að dansa

Signý, 26.2.2008 kl. 16:39

9 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Velkomin til baka og gangi þér allt í haginn

Sædís Ósk Harðardóttir, 26.2.2008 kl. 16:40

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er svo glöð að þú ert komin aftur

Hrönn Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 16:41

11 Smámynd: Tiger

  Er sko ekkert glaður yfir því að vera skilinn eftir svona í lausu lofti - væri króknaður úr kulda ef allar þínar yndislegu bloggvinkonur væru ekki búnar að hlýja mér pínulítið í fjarveru þinni elskulegust...

  það er svo gott að sjá þig aftur hérna..!

Tiger, 26.2.2008 kl. 16:43

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Velkomin heim, elsku snúlla. Ég kíkti daglega, bara til að halda þér uppi en tókst ekki, sorrí. Ahhh, nú eru bloggheimar orðnir samir, sjúkkittt!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 26.2.2008 kl. 16:45

13 Smámynd: M

Velkomin aftur, nú hefst fjörið á ný

M, 26.2.2008 kl. 16:56

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

 sorry darling. Misskildi greinilega missionið mitt. Fyrir utan það að ég er svo high á hóstamixtúru að ég veit varla hvað ég heiti. Þú verður nú ekki lengi að rífa þig upp listann ef ég þekki þig rétt.

VELKOMIN HEIM

Jóna Á. Gísladóttir, 26.2.2008 kl. 16:56

15 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Velkomin heim, hef saknað þín

Svanhildur Karlsdóttir, 26.2.2008 kl. 16:56

16 Smámynd: Blómið

Frábært að þú ert komin aftur   Batakveðjur til þín, með bjartsýnina og jákvæðnina að vopni

Blómið, 26.2.2008 kl. 17:10

17 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Velkomin

Jónína Dúadóttir, 26.2.2008 kl. 17:36

18 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

velkomin heim nú getur þú farið að, já þú veist ekki veitir af,
                           Knús á þig Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.2.2008 kl. 17:47

19 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Velkomin heim Jenný mín  Þetta er alveg rétt að það að fara í meðferð getur sko verið mannbætandi  Humm.. þetta með að hrapa niður í sæti 20 er allavega ekki mér að kenna,kíkji á hverjum degi skvís

Katrín Ósk Adamsdóttir, 26.2.2008 kl. 17:49

20 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Velkomin aftur í Bloggland

Guðborg Eyjólfsdóttir, 26.2.2008 kl. 17:54

21 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ho ho hó velkomin heim rúsínust! Ertu sæmileg eða spengileg? Þetta var nú ekki svo svakalega langur tími en samt eins og heil öld, vona að prinsinn sé búin að kyssa þig til lífsins mín kæra.

Edda Agnarsdóttir, 26.2.2008 kl. 17:59

22 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Velkomin heim Jenný.  Hvað verður um ,,kórinn" hans Mr. Tyrfingssonar þar sem þú ert hvergi nærri?  Skildist að þú værir aðalpípan í þessum kór og ekki lýgur Jóna eða hvað? 

Ía Jóhannsdóttir, 26.2.2008 kl. 18:30

23 Smámynd: Huld S. Ringsted

Velkomin heim Jenný!!  ég gerði mitt besta við að halda þér á floti á vinsældalistanum, opnaði bloggið þitt á hverjum degi!

Huld S. Ringsted, 26.2.2008 kl. 18:42

24 identicon

Heil og sæl Jenný. Velkomin heim. Upp með prógrammið, skítt með vinsældarlistann, hann skiptir engu máli.

Jú are lökkí vóman!!!!

Einar Örn Einarsson (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 18:47

25 Smámynd: Kolgrima

Ahhh, hvað það er gott að sjá þig aftur Loksins.

Kolgrima, 26.2.2008 kl. 18:53

26 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Velkomin heim Jenný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.2.2008 kl. 19:12

27 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Eins gott að þú ert komin!! Nú vantar tilfinnanlega þvagleggsblogg!! Svona kona...standa sig!

Og já... velkomin heim dúllurassinn minn :)

ps Hvar var Jón Steinar að móðga þig? Þessi elska.... ég sem er laumu-skotin í honum !!

Heiða B. Heiðars, 26.2.2008 kl. 19:20

28 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Velkomin heim og í enn meiri bata ...

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.2.2008 kl. 19:26

29 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Velkomin heim

Bjarndís Helena Mitchell, 26.2.2008 kl. 19:31

30 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Flott Comeback ...þú verður fljót að skjótast aftur upp á (blog)stjörnuhimininn - treysti því bara að þú sért í rauðum kjól eins og  aðal dívurnar á rauðu snúrunni .. nei meina dreglinum   ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.2.2008 kl. 19:43

31 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sæl elskuleg og velkomin í mannheima, mikið hef ég saknað þín en þó ekki nóg til að halda þér í toppsætinu, þú verður snögg uppávið.  Gangi þér allt í haginn og verum vinir ávallt.  Heart Glasses 

Ásdís Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 19:48

32 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Nú gaman gaman er

Velkomin kæra bloggvinkona

Þóra Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 19:53

33 identicon

Welcome back! Humm... öh...en að hætta að reykja...hóst...ég gat það fyrir 10 árum. Loksins. Bara...seeeeji sisoonnnna.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 20:09

34 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Velkomin heim!

Þú gerir þér ekki grein fyrir hversu mikið afrek það er að ná 20. sætinu án þess að blogga nokkuð. Ættir að vera lukkuleg með það, súra snúra  Og verður komin upp allan skala áður en hægt er að segja "þvagleggur"

Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.2.2008 kl. 20:17

35 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Velkomin heim. Gott að sjá skrif frá þér aftur.

Marta B Helgadóttir, 26.2.2008 kl. 20:24

36 Smámynd: halkatla

jei nú verður dansað dátt á ný

halkatla, 26.2.2008 kl. 20:26

37 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Velkomin heim.  Gangi þér allt í haginn.  gaman að fá þig aftur inn í þennan bloggheim.

Einar Vignir Einarsson, 26.2.2008 kl. 20:32

38 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Velkomin til byggða...

Markús frá Djúpalæk, 26.2.2008 kl. 20:43

39 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Velkominn heim elsku Jenný mín,mikið gott er að heyra í þér afturþú ert yndisleg og hlý.Ástarkveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 26.2.2008 kl. 21:16

40 identicon

Velkomin aftur

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 21:40

41 Smámynd: Ragnheiður

Getur maður fengið viðgerð á inngróinni tánögl hjá þessum blogglæknum, ég meina án þess að afhenda tána nokkuð ?

Ég vissiða ég vissiða....búin að reyna að puðast við að halda þér þarna uppi á listanum en .....sprakk á limminu. Vissi sko að þú myndir skamma okkur fyrir það

Velkomin heim elsku Jenný, ég saknaði þín

Ragnheiður , 26.2.2008 kl. 22:17

42 Smámynd: Brynja skordal

Velkomin aftur

Brynja skordal, 26.2.2008 kl. 22:20

43 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Velkomin aftur. Það hefur sannarlega vantað mikið hér á blogginu í þinni fjarveru  og gott að sjá þig hér aftur og mér sýnist á þessari færslu að þú sért hin hressasta og það er frábært !

Hafðu það gott og farðu vel með þig !

Sunna Dóra Möller, 26.2.2008 kl. 22:22

44 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Velkomin heim ...hlakka til að lesa þig áframmmmmm.

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 26.2.2008 kl. 22:37

45 Smámynd: Linda litla

Velkomin heim, það er nú samt alltaf gott að fara inn á Vog og ná sér í bata, en alltaf yndislegra að koma heim eftir dvölina þar.

Gangi þér vel að koma þér að stað aftur í edrú lífinu.

Linda litla, 26.2.2008 kl. 23:12

46 identicon

Velkomin heim

Maddý (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 23:21

47 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

 

Kjartan Pálmarsson, 26.2.2008 kl. 23:23

48 identicon

Velkomin aftur.....

Bergljót Hreinsdóttir (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 23:47

49 identicon

  Ég var orðin svo bloggsvelt að ég var að breytast í vinnualka.  Fegin að fá þig til baka.  

Elisabet R (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 00:22

50 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Vekomin kæri snúru-engill. Gaman að sjá þig aftur.

Svala Jónsdóttir, 27.2.2008 kl. 00:45

51 identicon

Velkomin heim og gangi þér vel í baráttunni.

Annað mál.....hefur þér aldrei dottið í hug að skrifa bók og láta gefa hana út?  Þú ert alveg þrælgóður penni og það er þrælgaman að lesa bloggið þitt.  Ef þú skrifar bók og gefur hana út þá fæ ég mér eintak og það verður á náttborðinu.

Sigga (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 00:52

52 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Velkomin heim Jenný og gangi  þér allt í haginn. Mundu að góðir hlutir gerast hægt. 

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 27.2.2008 kl. 01:01

53 Smámynd: Bara Steini

Það hlýnar loks í bloggheimum. Velkomin aftur.

Bara Steini, 27.2.2008 kl. 01:38

54 Smámynd: Tiger

  Komin heim hvað??? Ég er viss um að þetta var bara upplýsingafulltrúinn að gabba okkur. Hvar eru annars allar færslurnar og reiðilestrarnir...? Farðírassogrófu...

Tiger, 27.2.2008 kl. 02:10

55 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Velkomin til baka. Við söknuðum þín öll (eins og sjá má hér að ofan)

Kristín M. Jóhannsdóttir, 27.2.2008 kl. 06:09

56 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll sömul fyrir kveðjurnar, ég geri mitt besta til að blogga af mér afturendann, en nú er ég on a mission from god (Vogi) í batanum, sem er auðvitað í forgangi en auðvitað mun ég blogga sem aldrei fyrr.  Heiða mín trú mí, þvagleggurinn verður tekinn.  Lúkasinn líka, svo það sé á hreinu.  Og Beta mín, ég verð að láta þig hafa eitthvað að lesa.

Er búin að sofa eins og blásaklaust ungabarn frá því kl. 22, í gærkvöldi, örþreytt.  But now I´m back.

Takk elskurnar.  Smjútsí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.2.2008 kl. 08:08

57 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn flottust, bara að láta vita af mér og hlakka til að lesa frá þér herlegheitin sem ævilega koma frá þér.
                                Knúsý kveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.2.2008 kl. 08:29

58 Smámynd: Adda bloggar

Adda bloggar, 27.2.2008 kl. 11:21

59 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Velkominn heim og á netið og til hamingju með að hafa krónískan sjúkdóm þar sem meðalið er mannrækt:)

Birgitta Jónsdóttir, 27.2.2008 kl. 17:20

60 Smámynd: Ásgerður

Velkomin til baka

Ásgerður , 28.2.2008 kl. 04:58

61 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Wellkomm, my dear.

gerður rósa gunnarsdóttir, 28.2.2008 kl. 09:51

62 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hey hvers eiga múrarar að gjalda, nú eða rafeindavirkjar og tölvunarfræðingar, eins og ég. þetta er hróplegt ósamræmi og bara einelti af verstu gerð!

habbðu það fínt bæðevei

Brjánn Guðjónsson, 28.2.2008 kl. 22:24

63 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Góðan bata.....

Einar Bragi Bragason., 29.2.2008 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985762

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband