Leita í fréttum mbl.is

Davíð ég meina Vilhjálmur hefur talað

Nú vitum við að Vilhjálmur dinglar áfram og að fjölmiðlar eru búnir að vera að gera honum lífið leitt með því að beina athyglinni að því sem er leiðinlegt og honum í óhag.  Formaður Sjálfstæðiflokksins, Davíð, æi ég meina fyrrverandi, vill að Villi verði áfram og þá verður það þannig.  Geir hefur ekki tjáð sig enn.

Við vitum líka að Vilhjálmur er búin að axla ábyrgð.  Hvaða ábyrgð veit ég ekki, en einhverja ábyrgð allavega.

Það er liff í þessu og allir borgarfulltrúarnir voru fjarstaddir, en standa dedd með Villa.

Ég trúi þessu öllu.  Alveg inn að beini, en þið?

Nú getur borgin haldið áfram að vera óstarfhæf og allir geta andað léttar.

Ég er t.a.m. svo róleg að ég er farin að elda bara.

Eitthvað fljótleg svo ég nái fréttunum.

Kannski eru fleiri búnir að axla ábyrgð.

Fló á skinni hvað?

Þetta er sýning ársins.

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hló á skinni... í dag er 112 dagurinn. Er það ekki dagafjöldinn...?? Það er pláss hér á Akureyri á meðan Villi spilar á fiðluna næstu mánuði.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 17:21

2 Smámynd: Tiger

Ég gruna að það sé satt og rétt að Dabbi kóngur dingli eins og mara yfir öllum sem þurfa að taka stórar ákvarðanir í Sjálfstæðisflokknum(eins og ég hef þegar bloggað um).

Gullfiskaminni mitt mun ekki gleypa þetta mál eins og sjálfstæðismenn greinilega vonast eftir. Get ekki annað en brosað af því sem heyrst hefur "sitja af sér orrahríðina og halda fast í sitt". Hvað halda þeir eiginlega? Að við verðum sannarlega búin að gleyma og fyrirgefa að ári liðnu? Halda sjálfstæðismenn að Vilhjálmur geti bara hlammað sér í borgarstjórastól að ári því við höfum gleymt öllu þessu fjaðrafoki? Fjaðrafoki sem er orðið að heilu hænsnabúi vegna leyndarmakks og feluleiks Sjálfstæðismanna síðustu daga... nei, borgarbúinn mun ekki gleyma þessu og mun ekki sætta sig við tilvonandi borgarstjóra að ári liðnu.

Ljótt af þessum framabrölturum að neyða uppá okkur leikrit sem við ekki kærum okkur um að sjá. Það verður forvitnilegt að heyra næstu daga hvernig fríðir riddarar hringborðs Sjálfstæðismanna taka á þessu og hversu mikið þeir eiga eftir að segja "Við" stöndum þétt við bakið á Davíð - eh - já Jenný ég meinti Vilhjálm líkt og þú... Engin þeirra þorir að segja "ég" er á móti eða með - "ég" styð þessa heimsku - "ég" vil að karlinn setjist í borgarstjórastólinn að ári. Allir eiga eftir að segja "við" og þar með losna undan því að æsa einhvern á móti sjálfum sér. Allir eru hræddir um sinn stól og sitt sæti í þessu framapotaleikriti og engin þorir að taka af skarið vegna hræðslu við Landspabba og hræðslu við að rugga sökkvandi bát.

Tiger, 11.2.2008 kl. 18:02

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skömm að þessu öllu.  Veit ekki hvað það mun taka langan tíma fyrir sjálfst.menn að ná til baka því fólki sem hefur gefið skít í það, allavega mundi ég ekki kjósa þá í dag í borginni.  Eins og Gísli B. sagði á blogginu mína að á meðan VIlli dinglar inni þá brennur Róm(Rek) ekki svo galið hjá honum. Verði þér að góðu kvöldmaturinn.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 18:21

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég axla ábyrgð á Hafragrautnum mínum.

Þröstur Unnar, 11.2.2008 kl. 19:37

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.2.2008 kl. 20:54

6 identicon

Aaaarrrrggg! Hvað ég er orðin pirruð á þessari pólitík.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 21:08

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Kannski tekur Dabbi við borginni aftur - hefur engu að tapa kemur inn í staðin fyrir Villa og róar allt niður og svo kemur Hanna Birna inn við næstu kosningar.

Það geta allir sparað sér leikhúsmiða eða að segja brandara í vinnunni, því nú opnar maður útvarpið og heyrir brandara og sjónvarpið til að horfa á leikrit! 

Edda Agnarsdóttir, 11.2.2008 kl. 21:19

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bylting, bylting, bylting.

Tökum ráðhúsið.  Ráðhúsið fyrir fólkið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.2.2008 kl. 21:56

9 identicon

Ég þekki einn ágætan listamann sem er að skrifa revíu fyrir bæjarfélag úti á landi.  Hann prísar sig sælan með að búa ekki í Reykjavík og þurfa að semja revíuna þar því eins og hann sagði: "það er ekki hægt að toppa þetta"

Sigga (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985804

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband