Leita í fréttum mbl.is

Rómans í fulkominni stemmingu í Seljahverfinu...

 

..enda veðrið til þess. 

Ég er að elda dýrindissteik með fylgihlutum, eins og ferskum aspas, gulrótum, sveppum og rauðlaukssultu.  Ójá.  Meira fáið þið ekki að vita um það mál.

Svo er ég búin að kveikja á kertum, gera allt 100% fínt, draga gardínur frá svo það sjáist út í vetrarlandið og svo verður djúpsteiktur camenbert í eftirrétt.

Ljúfir tónar verða í spilaranum, að sjálfsögðu.

Ég þarf að fara að vekja húsband í herlegheitin, enda hefur hann ekki nema klukkutíma til að gúffa í sig og rómansast með mér, áður en hann rýkur út í vetrarnóttina til að vinna fyrir heimilinu.

þetta dásamlega lag er ég að spila á meðan ég undirbý. Emiliana

Nananabúbú,

Það verður seint skrifuð rómansfærsla á þessa síðu án bigtæm törnoffs í endann.

Þannig er ég bara.

P.s. Ekki fyrir viðkvæma, ég er að sjálfsögðu á nýja brjóllanum - undir vaðmálssekknumWhistling.

Úje

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Minn valdi sér grjónagraut og verður svo bara heima í kvöld, óheppinn þinn að þurfa að vinna.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.1.2008 kl. 20:24

2 Smámynd: Jens Guð

  Halló,  er eihver búin/n að gleyma deginum?  Það er bóndadagur með tilheyrandi súrmeti,  rófustöppu,  hákarli... 

Jens Guð, 25.1.2008 kl. 21:07

3 identicon

Namm - Öfund  

Annars - Knús

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 21:21

4 Smámynd: Blómið

Kommon Jenný    Hér var brunað á Múlakaffi og keyptur hjónabakki með hrútspungum og tilheyrandi   

Blómið, 25.1.2008 kl. 21:34

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Hér borðaði eiginmaður nýja sviðasultu og rófustöppu.....við unglingarnir átum pizzu ! Eigðu gott kvöld og vona að þið hjónin hafi notið þessa girnilega matar !

Sunna Dóra Möller, 25.1.2008 kl. 21:36

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bóndadagur, smóndadagur, gef nú ekki mikið fyrir sollis.  Frusssssssss

Hallgerður:  Alltaf sexý, alltaf þjóðleg, það er ég upp í topp.

Anna: Þér verður boðið í mat næst og það verður ekkert andskotans úldmeti.

Verði ykkur hinum að góðu bara.  Híhí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.1.2008 kl. 21:55

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki tala mikið um þorramat  Ég er að missa af svo ógeðslega miklu, fékk mér samt súra bringukolla og súran hval áður en ég þurfti að rjúka burtu aftur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2008 kl. 22:07

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Börnin góð, opnið þið verslun með þorramat, þar getið þið gúffað í ykkur ýlduna allan ársins hring

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.1.2008 kl. 22:11

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hér voru viðurstyggilegir kjúklinganaggar í matinn sem Unglingurinn og Gelgjan fúlsuðu við. Ég er í húsmóðurverkfalli þessa dagana.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.1.2008 kl. 23:38

10 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jenny hvar í andsk. fékkst þú nýjan aspas?  Hann fæst ekki hér fyrr en með vorfuglunum?  Tók minn elskulega út í kvöld og fékk einhverja kokkdruslu til að elda ofaní hann.  Verð bara að sjá til hvort hann lifir þetta af. Góða helgi

Ía Jóhannsdóttir, 25.1.2008 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.