Leita í fréttum mbl.is

Jólastemming í tali og tónum..

 

eða.. í tónum ef þið kaupið nýja jólalagið frá Baggalút.

Hér í húsi er undirbúningur undir jólin á fullu blasti.  Úje. 

Út um eldhúsgluggann sé ég blokk og þar gefur á að líta eina sundurleitustu jólaskreytingu mannkynssögunnar, þ.e. hvað varðar liti lögun og skreytingaraðferðir.  Mér finnst það lýsa svolítið einstaklingseðli Íslendingsins, að búa með öðrum en gefa fjandann sjálfan í  alla sýmmetriu og skreyta sjálfstætt.  Ekkert samvinnukjaftæði neitt.

Mér finnst þetta krúttlegt, jafnvel þó blokkin, sé á að líta eins og vafasamur samkomustaður fyrir perra sem ferðast til ónefndra Asíulanda í svínslegum tilgangi.Whistling

Á einum stað er búið að skreyta jólatré.  Mér varð svo mikið um að ég hringdi í jólalögregluna og kærði viðkomandi.

Annars er ég að baka, hvað annað, fellur aldrei verk úr hendi í desembermánuði, ég er svo svakalega jóluð á því.

Nú er ég að hlusta á jólalög með Frank Sinatra, búin að kveikja á kertum og ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi.

Falalalalala


mbl.is Baggalútur í jólafíling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Iss bara..þú ert að horfa á mitt gamla heimili, ég gef skít á nágrannana í dag og alla symmetrik. Er sko í einbýli *sný upp á mig* og fann enga útiseríu í dag. Dæs...herfilegt hvað ég á bágt.

Ætlarðu ekki að koma í heimsókn jólasnúðurinn þinn bráðum ? Dúa ratar sko

Ragnheiður , 4.12.2007 kl. 22:07

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sounds like a plan mín kæra, tek Dúuna undir arminn og læt hana koma með uppskriftir (sjá færslu fyrir neðan)

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.12.2007 kl. 22:15

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Elska þessi jólablogg þín !

Takk fyrir mig og góða nótt!

péess...búin að kaupa sko 4 jóladiska með Bó í dag !

Sunna Dóra Möller, 4.12.2007 kl. 22:16

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þú ert aldeilis búin að vera aktív í bloggeríunu í dag - ég opna ekki bloggið öðruvísi en ný færsla er komin frá þér! Ert í fingraleikfimi?

Hafðu það skemmtilegt í jólastússinu - knús á þig!

Edda Agnarsdóttir, 4.12.2007 kl. 22:23

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Edda mín: Í dag hef ég ærna ástæðu til að dreifa huganum.  Dánardagur barnabarnsins míns er í dag, það er vont og ég hef dundað mér við þetta.  Ekki að ég hafi ekki verið manísk á blogginu áður svo sem.

SD: Er í lagi með ykkur þessar ungu konur.? Djók, njóttu diskanna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.12.2007 kl. 22:27

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sendi þér , vona að morgundagurinn verði þér betri en dagurinn í dag. Ég hugsa svo oft þegar vondir dagar koma að það besta sem Guð hefur skapað er nýr dagur! Farðu vel með þig !

Sunna Dóra Möller, 4.12.2007 kl. 22:40

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Hlýjar kveðjur til þín Jenný Anna.

Ég veit ekki hvernig fólk kemst yfir svona atburði.

Þröstur Unnar, 4.12.2007 kl. 22:43

8 identicon

Aftur og nýbúin - Henni féll aldrei verk úr hendi  Þetta orðatiltæki passar greinilega afskaplega vel við þig þessa desemberdaga.

 Að því sögðu: Sendi þér hlýjar kveðjur á þessum degi. Líklega getur enginn sett sig í spor þess sem missir barn eða barnabarn nema sá sem hefur reynt sjálfur. Stórt faðmlag frá mér

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 22:57

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Knús, elsku krútt. Takk fyrir yndislegu jólabloggin þín. Heyri aldrei jólalög, nema í auglýsingum í sjónvarpinu í fjarlægð ... það dugir ekki til að koma mér í jólaskap, þá er bara að kíkja til þín!

Guðríður Haraldsdóttir, 4.12.2007 kl. 22:58

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Veistu, Þröstur...  ég held að maður komist aldrei yfir svona atburði - en maður lærir að lifa með þeim.

Lára Hanna Einarsdóttir, 4.12.2007 kl. 23:08

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jólaknús á þig jólabarnið mitt

Jóna Á. Gísladóttir, 4.12.2007 kl. 23:13

12 Smámynd: Þröstur Unnar

Já Lára Hanna, þannig er það víst.

Þröstur Unnar, 4.12.2007 kl. 23:32

13 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Knús frá mér líka.

Bjarndís Helena Mitchell, 4.12.2007 kl. 23:33

14 identicon

Hehe skemmtileg færsla.  Ég fór meira að segja að leita að gömlu vínel plötunum mínum með öllum gömlu jólalögunum.

Ohh.. svo fann ég þær, en plötuspilarinn er enginn.. og þær eru allt of stórar í geisladrifið

Jólaknús.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 23:51

15 Smámynd: Einar Indriðason

Jólaskap segirðu?  Ég setti jóladisk baggalúts á spilarann.  Það kom mér aðeins í meira jólaskap....

Eitthvað svo jólalegt að hlusta á ... "VIÐ LOKUM EFTIR 10 MÍNUTUR" (The final countdown), sem dæmi

Einar Indriðason, 5.12.2007 kl. 00:18

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.12.2007 kl. 11:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985883

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband