Leita í fréttum mbl.is

Hálvitahúmor!

Frá því ég sá fréttina um konuna sem lifir eðlilegu lífi þrátt fyrir að vera aðeins með hálfan heila, hef ég beðið þolinmóð á meðan fréttabloggarar hafa sett fram skoðanir sínar á málefninu.

Og það má segja að ég hafi fundið á mér að þessi setning væri of góður biti fyrir "íslenska húmorista" sem finnst þetta brjálæðislega fyndin saga.

Kona með hálfan heila lifir eðlilegu lífi.

Mér datt í hug að ég myndi sjá fyrirsagnir í þessa veruna:

Teljast það fréttir?

Fullt af konum gera þetta!

Alþingismenn gleðjast!

Frjálslyndir flippa út!

og viti menn, nánast hver einasta var þarna og fleiri til.

Fyndið.

Íslenskur húmor í fúnksjón.

Ég hlæ, hahahahahaAngry

GMG - súmí!

Úje!


mbl.is Kona með hálfan heila lifir eðlilegu lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nefnilega!! Ég fylgdist náið með þessu, þar sem ég varð að stilla mig um að taka virkan þátt...............

Hrönn Sigurðardóttir, 19.11.2007 kl. 21:09

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég játa að ef þetta er nottla gullið tækifæri til fíflagangs en farðu ekki með það lengra Hrönnsla mín, bloggheimur má ekki frétta þetta

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.11.2007 kl. 21:12

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hér á að standa "ég játa að þetta er nottla gullið tækifæri". Fljótfær, arg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.11.2007 kl. 21:12

4 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Já þetta var of asnarleg frétt til að sitja á sér..

En þú gefur það upp hérna sjálf að þú hafir þótt þetta fyndið.. Þú vissir að þetta yrði eitthvað sem ala myndi aulahúmor af sér og það segir okkur öllum að þú ert full sjálf að þessum aulahúmor en þorir bara ekki að sýna það, heldur reynir að sparka í þá sem þora...

 En að öllu gamni slepptu þá gladdist ég mjög mikið fyrir hönd læknavísindanna...  

Kveð fyrir hönd allra "hálfvitanna" sem blogguðu um þetta. 

Stefán Þór Steindórsson, 19.11.2007 kl. 21:35

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Auðvitað hefur maður alltaf smá aulahúmor, stundum er maður bara í þannig skapi að maður hlær af næstum öllu.  Afhverju kallarðu þig hálfvita Stefán? hver var að sparka í hvern. Fyrir mér er þessi kona kraftaverk. Gleðjumst með henni.  Idiot 

Ásdís Sigurðardóttir, 19.11.2007 kl. 21:41

6 Smámynd: krossgata

Ég man líka símanúmer og nöfn fyrirhafnarlaust.  Ætli það segi okkur eitthvað?

krossgata, 19.11.2007 kl. 21:44

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Það átti að vera þoka hinu megin í heilanum á henni. Er það þinn helmingur Stefán?

Þröstur Unnar, 19.11.2007 kl. 21:52

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þröstur: Góður.

Krossgata: Er með sama vandamál, one wonders

Ásdís: Lífið er bjútífúl.

Stefán Þór: Ekki nóg með að ég SPARKI í ykkur aulahúmoristana heldur RÍF ég hjartað úr brjósti ykkar líka.  Láttekkisonna maður, af hverju er hlutunum tekið svona alvarlega?

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.11.2007 kl. 21:56

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mér fannst Stefán Þór fremur fyndinn!!! Er hann ekki að grínast? Eruði að segja það?

heheeheheh

Hrönn Sigurðardóttir, 19.11.2007 kl. 22:17

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Damn!....Ég sem ætlaði að blogga: "Ég vissi það!".

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.11.2007 kl. 01:03

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Heppinn að lesa þetta blogg fyrst

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.11.2007 kl. 01:06

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heyrði einhverntíma um barn sem fæddist nánast heilalaust, en svo óx heilin bara þrátt fyrir að það hafi alltaf verið sagt að slíkt gerðist ekki.  Svo við vitum minna um heilann og hvernig hann starfar en margir vilja vera láta.  Ætli einhverjar stöðvar taki ekki bara við því sem heilinn á að gera ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.11.2007 kl. 09:43

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur: Mér finnst þetta þræl merkilegt líka, það veit nefnilega enginn nógu mikið um heilann og starfsemi hans.  Kannski er hægt að taka afleggjara af honum og skella í næsta mann.  Pant fá afleggjara af Einsteins.

Gunnar Th: Gott að þú hafðir gott af.

Hrönn: Stefán Þór er fyndinn, en hvort hann var að grínast? Hm... er ekki viss.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 09:53

14 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Ég er frekar hræddur núna... Veit ekki hvort svarið er rétt.. Var ég að grínast eða ekki?  Getið þið ekki bara svara fyrir mig, ég hreinlega vill ekki láta ykkur halda neitt slæmt um mig.

 Ég ætla bara að gera athugasemd við eitt af þessum svörum sem komu á eftir mínu og það er ætlað Ásdísi  "Afhverju kallarðu þig hálfvita Stefán?"  Var það ekki augljóst þar sem ég hafði verið svo mikill hálviti að blogga um þessa frétt.. En sammála er ég þér að þetta sé kraftaverk.. Ætla bara ekki að segja það að þessi kona sé kraftaverkið.

Stefán Þór Steindórsson, 21.11.2007 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband