Leita í fréttum mbl.is

Auðvitað verður sænska leiðin samþykkt!

 Um 70% þjóðarinnar hafa lýst yfir vilja til að gera kaup á vændi refsivert.  Alþingi fer auðvitað ekki að hunsa það, eða?

Þingmenn úr þremur flokkum á Alþingi hafa lagt fram fumvarp um breytingu á almennum hegningarlögum, sem gerir ráð fyrir því að kaup á vændi verði refsiverð.

Kolbrún Halldórsdóttir er flutningsmaður frumvarpsins og með hennir eru fleiri þingmenn úr VG, Samfylkingu og Framsóknarflokki.

Gerir frumvarpið ráð fyrir að viðurlög við kaupum á vændi verði allt að 1 árs fangelsi.

Nú vonast ég til að mistökin frá því í vor, þegar þetta frumvarp rann í gegn í skjóli nætur, rétt fyrir þinglok, verði leiðrétt og það verði gert að glæpsamlegu athæfi að kaupa vændi og nýta sér þannig bága aðstöðu þeirra sem það leggja fyrir sig.

Áfram Kolbrún og félagar.


mbl.is Leggja fram frumvarp um „sænsku leiðina"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það ER glæpsamlegt

Jónína Dúadóttir, 8.11.2007 kl. 16:16

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Vonum það besta þegnunum til heilla.  Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 8.11.2007 kl. 16:18

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vonum það besta.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.11.2007 kl. 16:51

4 identicon

vonum það vændiskvennana vegna að þetta verði ekki að veruleika

gunso (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 18:44

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er sammála þeim öllum.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.11.2007 kl. 19:11

6 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Vændi á einfaldlega að vera ólöglegt, punktur. Og þannig verða konur í neyð sakfelldar fyrir háttsemi sem þær hafa enga stjórn á að fara út í. Og þá verður líka að skilgreina og virkja félagsleg úrræði fyrir þær konur sem þetta á við um vegna þess að þetta er út úr óskaplegri neyð, og við eigum að styðja þær til annars.

Ingi Geir Hreinsson, 8.11.2007 kl. 19:56

7 Smámynd: Ásbjörn Ásmundsson

Ja gott fólk. Það er ekki mikið sem þeir hafa gert rétt þeir kæru stjórnmálamenn Svíaríkis. Og íslenskir slíkir apa eftir heimsku þeirra sem gerir þá íslensku höfðingja ennþá heimskari.

Þegar svíarnir gerðu það refsivert að kaupa vændi fóru þeir illa að ráði sínu. Vændið fór niður í hina dimmustu undirheima.

Þvílík heimska! Það fólk sem stundar vændi hættir ekki að stunda það vegna þessa. Það fer bara úr augsýn sem gerir það stórhættulegt þeim manneskjum sem stunda vændi. Jú að sjálfsögðu sluppu klókir stjórnmálamenn að sjá statistík vændis hækkandi. Það lækkaði jú! Í staðinn svo fóru að birtast lík vændiskvenna, og sjálfsagt karla líka, hingað og þangað. Það breytir vel ekki svo miklu eða hvað? Þetta voru og eru mest stelpur sem hafa verið plataðar hingað frá Rússlandi, Litháen, Úkraínu o.s.f. Við komuna hingað er allt tekið frá þeim og þeim komið fyrir í einhverri íbúð þar sem hrikaleg örlög bíður þeirra. 

Þeir sem vilja gera vændiskaup refsivert ættu að skammast sín.

Ásbjörn Ásmundsson, 8.11.2007 kl. 19:57

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég vil vændiskaup refisverð og skammast mín bara ekki neitt!

Sunna Dóra Möller, 8.11.2007 kl. 20:43

9 identicon

Enda ertu vinstri græn kommunsti, engin furða á því Sunna, feministamafíann og kristna pakkið hagar sér alltaf svona

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 21:16

10 identicon

Sænska leiðin hefur ekkert að gera með það bæta stöðu, réttindi eða líðan vændiskona. Hún er notuð sem afsökun fyrir öfgakristna og platfeminista eins og Jenný til að troða sínu siðferði í lög.

Alvöru feministar berjast fyrir kvenréttindum en ekki fyrir því að koma sínu siðferði í lög og skaða líf kvenna, Pro-sex feministar eru gott dæmi um alvöru feminista.

 Nú get ég búist við hinum vanalegu ad hominem árasa(ég hlýt að vera vændisdólgur,gamall perri sem fær bara konur á Bóhem eða eitthvað álika vegna þess að  ég er ekki sammála Jenny)

Síðan kemur eflaust góður skammti af shoot the messanger(en ef dóttir þín)  taktíum sem einkenna rökþrot 

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 21:36

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Alexander Kristofer: Stundum finnst mér best að þegja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 21:53

12 identicon

Ég skil ekki tilgangin í þessu svari þínu.

Ertu að segja að ég á að þegja? geturðu sagt mér af hverju?  

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 22:08

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það stendur skýrum stöfum Alexander að stundum finnist MÉR best að þegja.  Svo talar þú um ad hominem árásir.  Þetta kalla ég að kasta steinum úr glerhúsi.  Ætla ekki að diskútera þessi máli við þig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 22:40

14 identicon

Já en það eru lítill sæt hulin skilaboð í þeim þar sem þú segir að stundum sé best að þegja og er  því beint til mín.

Þú ert að gefa í skyn að það sem ég sagði sé svo rangt og fáránlegt að mér væri best að segja ekki meir út af skömm

Allavega aftur á topic, ertu með heimildir fyrir því að sænska leiðin virki?

But while the law's advocates congratulate themselves on decreasing prostitution on the streets, critics charge that the legislation has simply pushed it into the shadows and made life worse for the women.

Prostitutes now suffer more perversity and violence on a daily basis, Jonas Flink, the co-author of the Goeteborg study, said.

"Women offering their services on the internet are more exposed and vulnerable than the women on the street, who can discuss the various aspects of their work," Flink said.

"The women try to surpass one another in this form of direct marketing, so they accept things they would never dream of accepting (while soliciting on the street)" and obscenity and sado-masochism become the norm in the "private sessions," Flink said.

Stig Larsson, a professor of social medicine at Lund University and a defender of the 1999 law, disagrees.

Such a theory is "speculative. In reality, the determining factors (for abuse) are the madames and the drugs and neither one nor the other has disappeared," Larsson said.

"Historically, one finds the worst conditions in street prostitution," Larsson said.

The adoption of the 1999 law in Sweden ignited public debate about prostitution.

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 23:15

15 identicon

http://www.sans.nu/engelska/consequences.htm

Hér er síða að gagngrýna handónýttu stefnu Svía í þessum málum reyndar eru flestar stefnur Svíþjóðar yfir höfuð glataðar en það er annað mál 

The law has increased the risks and violence against sexworkers and the law forbidding procuring or pimping makes it impossible for sexworkers to work safely and secure.

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 01:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985786

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband