Leita í fréttum mbl.is

Dóttir mín hittir Simon Cowell

(Sorrí Maysa, þessi mynd er of góð, til að fleiri fái ekki að njóta hennar og fyrirgefðu að mamma þín skuli skúbba Cowell dæminu og splattera á bloggið sitt.)

McCartney fjölskyldan er að þvælast fyrir mér og mínum endalaust og botnlaust í einhverri mynd.

Ég get ekki opnað blað, eða netmiðil öðruvísi en að fá ítarlegar fréttir af Paul, Heather, Stellu og Beatrice McCartney.  Paul sem á með réttu að tilheyra gærdeginum (Yesterday) heldur áfram að poppa upp vegna samskiptaörðugleika og almenns hjarðeðlis.

McCartney sást kyssa harðgifta konu í vikunni, hann er nýbúinn að hanga með Reneé Selwegger og þeirri þriðju sem ég man ekki hver er.  Rólegur á neðri helmingnum kallinn minn.

Maysa dóttir mín fór út að borða með Robba sínum (hann var að útskrifast í gær) og Brynju tengdó, á einn af flottari stöðum Lundúnaborgar.  McCartney var ekki með í för.

Maysan var í kjól frá Stellu McCartney, (sagði ég ekki, þessi familía er allsstaðar) þegar hún hitti Simon Cowell sem kynnti hana fyrir einhverjum mönnum sem hann var með og slúðurblaðadrottningunni henni dóttur minni fannst hún hafa dottið í lukkupottinn, af því karlinn er svo skemmtilegur og mikill dúllurass. Ég mun ekki segja frá frekari samskiptum dóttur minnar og fjölskyldu, við þennan fræga mann, nema greiðsla komi til.

Annars sagði Amma-Brynja að Cowellinn hafi blikkað Maríu grimmt á meðan hann talaði við hana, hún sagði hins vegar ekki orð um að McCartney hafi verið á svæðinu.

Ég spyr; Brynja Nordquist, hvar var MYNDAVÉLIN?

Píslofandhappíness!

Úje

 


mbl.is Kossaflens á Paul McCartney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Í alvöru?? og engin mynd, þetta gengur ekki. Var Simon með hneppt frá?? details dear details

Ásdís Sigurðardóttir, 7.11.2007 kl. 23:40

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gleymdi að spyrja Brynju áðan hvort hún hafi verið með myndavélina.  Hehe!

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.11.2007 kl. 23:42

3 identicon

Váááá! Héðan í frá ertu nottla ekkert minna en skávinkona Simons Cowell  En til hamingju með Robba og Maysu. En hvaða útskrift var þetta? (Aðdrepastúrforvitnikarl)

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 23:45

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Robbi var að útskrifast með master í "guðminngóðurégmanekkihvaðþaðheitirkall".  Eitthvað í sambandi við músik.  Man bara ekki nákvæmlega hvað það heitir. 

Brynja mín, settu inn í kommentakerfið ef þú ert ekki farin að lúlla út í Londres

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.11.2007 kl. 23:52

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jesús hvað þið eruð miklar kerlingar!

Jón Steinar Ragnarsson, 8.11.2007 kl. 00:04

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL. þið eruð æðisleg. Öll með tölu. Allt fólkið sem kemur fyrir í þessari færslu, höfundurinn og bloggvinirnir.

Jenný myndin af M er náttúrlega bara gullmoli en hún á eftir að drepa þig. hahahahahahaha

Rólegur á neðri helmingnum kallinn minn.

Jóna Á. Gísladóttir, 8.11.2007 kl. 00:07

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Steinar: Hehe, you said it.

Jóna: Á ekki að fara að klippa?

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 00:12

8 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Haha! Það er eins og hún hafi gleymst á bókasafninu og vaxið upp úr gleraugunum sínum

Auðvitað var Cowell að blikka hana hún er megabeiba

Sendi hamingjuóskir til fjölskyldunnar með útskrift heimilisföðurins!  Frábært!

Laufey Ólafsdóttir, 8.11.2007 kl. 00:19

9 identicon

Jenný Anna, þú ert óborganleg! En ef ég ætti pening, þá myndi ég borga fyrir færslurnar þínar!

Sigrún (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 01:12

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hurrðu öskurnar...? Langaði bara að deila með ykkur þessum frábæra feminíska prósa frá kynsystur ykkar, sem ég hraut um á svamli mínu hér í bloggtjörninni...mátti til.  (Athugasemdirnar eru ekki síðri.)

Smellið hér.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.11.2007 kl. 02:35

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Steinar: Var búin að sjá þessa færslu og mér varð hreinlega óglatt. Ég tók eftir að höfundur vinnur á Hrafnistu.  Hvað gera bændur?

Sigrún: Þú ert í boði hússins, rukka seinna, þegar ég er búin að fá Nóbelinn

Laufey: Þeim er hér með komið til skila, þar sem dóttir mín er tryggur lesandi bloggsins míns.og takk fyrir kveðjuna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 08:15

12 identicon

Hæ aftur... Maya er enn að tala um Simon :.. Hún er í skýjunum eftir að hafa spjallað við hann.. GLÆTAN að ég hefði tekið mynd af honum þarna inni á veitingastaðnum ....Þá hefði sonur minn BRJÁLAST.. ;-)

love u

p.s vorum sofnðuð kl.21.30 í gær allir þreyttir eftir útiveru með SIMON

brynja Nordquist (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 08:52

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið drepið mig þarna í London Brynja.  OMG! Tala við þig á eftir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 08:54

14 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

AAAAAAAAAAA ég er á arginu, Simon Cowell  (og nú á innsoginu) Guð hann er aaalllgjjjörrr dúllurass, plííís, segja meira, við erum nú andlega skyldar Jenný mín svo þú ferð varla að rukka ættingja, ha? Errþanokkuð?

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 8.11.2007 kl. 09:39

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krumma: Þú færð "the dirty details" í hugskeyti frá mér kæra systir.  Hann er dúllurass en gæti nú alveg látið vera að blikka Maysuna, sem gæti verið dóttir hans og svo er hún svo fallega gift.  Grái fiðringurinn hvað?

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985877

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.