Leita í fréttum mbl.is

Hann meig þar sem hann stóð

 

Erill, ofdrykkjumaður og asnakjálki, meig tólf sinnum þar sem hann stóð, sl. nótt. Það held ég að minnsta kosti, því 12 "háttsemisbrot" voru framin á höfuðborgarsvæðinu.  Erill var þar á ferð og hafði drukkið ótæpilega, ásamt því að vera á þvagræsilyfjum.  Ég vona að háttsemisbrot, þessa dagana, feli ekki í sér að gefa löggunni fokkmerki, því þá munu þeir hafa ærið að gera nú þegar stefnir í jólagleði, hvern dag, næstu tvo mánuði.

Annars eru þessar fréttir af Erli karlinum orðnar þreytandi, þó ég sé óþreytandi við að fylgjast með þeim og splattera á bloggið mitt.

Mér er hlýtt til fíflsins, vegna þess að ég el með mér þá von í brjósti að karlinn sjái að sér og leiti sér meðferðar og hætti að vaða uppi með leiðindi og háttsemislömun.  Jafnframt óska ég honum þess að hann nái sér í einhvern sem þykir vænt um hann þrátt fyrir að hann sé plebbi og nörd.  Í þessi ástandi er Erill og hans sálufélagar, gjörsamlega sneyddir kynþokka.  Ég er að velta fyrir mér hvort þeir viti af því.

Það er zero sexý að míga utan í byggingar, æla í bjórglasið, lemja dyraverði, berja lögreglumenn og konur.  Það er þess vegna sem Erill fer alltaf einn heim, þ.e.a.s. þegar hann fer ekki í steininn til að lúlla.

Erill þú ert einmana, ég veit það.  Hysjaðu upp um þig karlinn og stelpurnar munu hrannast upp í kringum þig, þ.e. eftir að þú hefur leiðrétt tískuslysið sjálfan þig, farið í exstrem makeover og gert aðrar nauðsynlegar leiðréttingar á þessu genaslysi sem ert þúDevil.

Með illyrmiskveðju frá Jenný frænku.

Úje.

 


mbl.is Mikil ölvun og slagsmál á höfuðborgarsvæðinu í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Já hann Erill á nú ansi bátt,og lærir aldrei neitt,hrúar í sig áfengi og öðru.Satt að seigja er ég líka orðinn dauðþreitt á honum.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 4.11.2007 kl. 11:52

2 identicon

Það er gott að búa á Akureyri,  í það minnsta á sunnudögum. Það eru færri á þvagræsilyfjum á laugardagsnótt 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 11:59

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jamm og jæja og svo heitir þetta að fara út að "skemmta sér"

Jónína Dúadóttir, 4.11.2007 kl. 12:33

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég á svo erfitt með að skilja þetta piss út um allt....ekki gerir maður þetta heima hjá sér, mígur bara þar sem manni verður mál þá og þá stundina. Þetta eru sóðar !

Sunna Dóra Möller, 4.11.2007 kl. 12:35

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það versta við hann Eril frænda þinn er að ef hann fer í meðferð, þá bíða allir hinir Erlarnir eftir að fá tækifæri til að taka við af honum.   Frábær færsla hjá þér annars

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.11.2007 kl. 12:41

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð færsla.  Hann Erill er víða, ósköp á hann bágt blessaður og þó, hann getur bara tekið sig á eins og þú segir, hefur sömu möguleika og við.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2007 kl. 13:21

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

skammastín kona. Þú ert búin að persónugera Eril og nú vorkenni ég honum

Snilldarfærsla kona góð

Jóna Á. Gísladóttir, 4.11.2007 kl. 13:35

8 Smámynd: Ragnheiður

Erill (asni) hringdi næstum 1000 sinnum í mig í nótt, stundum góður en stundum með dónaskap og attitjúd. Erill með attitjúd er ekki skemmtilegur viðtals. Erill týndi líka hinu og þessu á ferðum sínum með leigubifreiðum, hann gubbaði í suma og þóttist vera mikill maður í öðrum.

Við vorum öll fegin þegar síðasti Erill fór heim ( þ.e.a.s. fyrir utan þá sem löggan geymdi hjá sér í nótt)

Nú hvílum við okkur í viku og verðum svo standby í næstu Erlasúpu um næstu helgi. Í þetta hef ég eytt 20 árum........

Ragnheiður , 4.11.2007 kl. 16:24

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Elsku Ragga mín og þú enn með fulla fimm eftir Erla heimsins í tuttugu ár, vonum nú samt að þeir verði til friðs fram að næstu helgi.  Þeir verða að vinna þessar elskur til að eiga fyrir skemmtilegheitunum.

Takk kæru athugasemdarar

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2007 kl. 16:40

10 identicon

Erils brandarinn kannski orðinn þreyttur? Bara hugdetta

Siggster (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 16:42

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Siggster: Þegar Erill hættir að bögga okkur þá skal ég hlægja, þangað til er það bara hann sjálfur sem er þreytandi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2007 kl. 19:48

12 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér finnst Erill ansi hress enda er hann uppi allar nætur og virðist aldrei fá nóg! Meira af Erli takk !

Sunna Dóra Möller, 4.11.2007 kl. 20:10

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

SD: Hinn íslenski "gleðimaður" lifandi kominn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2007 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985763

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband