Leita í fréttum mbl.is

Laugardagslögin eru hættuleg heilsu minni!

Jesús minn, þvílík sjálfspynting það var í kvöld að hlusta á lögin þrjú í ofannefndum þætti.  Það eru fleiri að gera grín að okkur en Barði (og fá borgað fyrir það) og það með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.  Mikill rosalegur ruslahaugur var þetta.  Auðvitað eru mönnum mislagðar hendur við samningu á músík, en þetta toppaði allt sem ég hef séð lengi.  Ég vil taka fram að ég settist við sjónkann með opnum hug.  Aðeins of opnum því nú er ég með hausverk.

Jón Gnarr bjargaði þessu eins og svo kemur Diddú og hlýtur að  hæfileikajafna, annars súa ég lagahöfundunum, a.m.k. þeim fyrsta og síðasta. 

Er farin að ná mér í magnýl, þetta gengur ekki.

Ruslana hvað?

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er alveg einstaklega illa lukkaðir þættir, er samt að reyna að gefa þessu séns með því að horfa með OPNUM HUGA liggur við að heilinn leki út, eg er svo opin.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.11.2007 kl. 21:11

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Kristófer:  Mér fannst Barði ekki flottur núna, né síðast enda á hann betur heima í öðru músíksamhengi og gerir stólpagrín að öllum ballettinum.

Ásdís passa heilabúið.  Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.11.2007 kl. 21:19

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er hætt að reyna.....

Þetta er vonlaus þáttur!

Hrönn Sigurðardóttir, 3.11.2007 kl. 21:20

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Missti greinilega af miklu ;-) en ég er reyndar eldheitur aðdáandi Barða síðan hann söng Stop in the name of love á svo dauðyflislegan hátt að maður lá í hlátri, en fannst lagið samt nett sjarmerandi í þessum undarlega flutningi. En að hann sé grunaður um að vera að gera at í einhverjum, eru það fréttir? Var ekki Gilzenegger í þessu? Ég verð greinilega að tékka á málinu. Mér finnst ennþá ,,Ég les í lófa þinn" best!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 3.11.2007 kl. 21:20

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ég gleymdi þessu eina ferðina enn. Ég elska tárakallinn hérna efst í færslunni. Ekkert smá miserable and unhappy grey

Jóna Á. Gísladóttir, 3.11.2007 kl. 21:24

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Elsk´ann Barða! Sammála Önnu með Eika-lagið, algjört æði!

Guðríður Haraldsdóttir, 3.11.2007 kl. 21:26

7 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hæ aftur, búin að horfa, þetta er fyndnara en Silvía Nótt (og er ég þó auðmjúkur aðdáandi). Ef þetta sigrar Evrovision (Þorvaldur talar um Eurotrash) þá er bara búið að afhjúpa sýninguna. En alla vega þá er Erpur sammála mér ... það er ágætt.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 3.11.2007 kl. 21:30

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég og fjölskyldan lágum í hlátri vegna Barða sjálfs og svo fannst okkur lagið fyndið! Svo var Gnarr æði.

Jenný og þið hin, það er leikur hjá mér kl. 22.

Edda Agnarsdóttir, 3.11.2007 kl. 21:47

9 identicon

Besta atriðið í þættinum fannst mér Erpur þegar hann líkti viðlaginu hjá Barða við söng dverganna sjö í Mjallhvíti.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 21:51

10 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Sammála nöfnu og skrifa undir flest sem Erpur hafði um málið að segja.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 3.11.2007 kl. 21:53

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Iss við fáum eingin atkvæði þetta er ömurleg lög. Það er ekki hagt að senda þessi lög út.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.11.2007 kl. 21:59

12 identicon

Ég verð nú bara að fá að tjá mig líka..

Barði er bara gúrú...þetta lag mun fara alla leið....loksins kom eitthvað sem ýtir við liðinu......áfram barði gúrú Íslands í lagasmíðum....

hei hei hei hó hó hó  

VVIK (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 22:02

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ok, við erum sammála um að Barði rúlar, en af hverju skyldi það vera?  Jú af því hann kann þá list að vera íslenskur músíkplebbi.  Haha.

Jóna: Hvernig ferður að því að gleyma fjórum þáttum?  Þetta er einbeittur gleymskuvilji.  Hurru Jónsí mín á ég að fá mér Lindubuff?

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.11.2007 kl. 22:16

14 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Ég held að við ættum að gefa lagasmíði upp á bátana  Skemmti mér ágætlega yfir laginu hans Barða en þó að ég sé kona á besta aldri og á ekki einu sinni mann að þá var ég ekki að fíla þessa beru vaxtaræktagaura.

Katrín Ósk Adamsdóttir, 3.11.2007 kl. 22:20

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe algjörlega einbeittur gleymsku- og brotavilji.

meilí meil með dassi af msn

Jóna Á. Gísladóttir, 3.11.2007 kl. 23:14

16 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Barði er einfaldlega snillingur og ljótt af þér Jenfo kúttípútt að uppnefna hann!

Magnús Geir Guðmundsson, 3.11.2007 kl. 23:31

17 Smámynd: Gísli Torfi

Jón Arnar hitti naglann á höfuðið .. var að koma frá fíló .. tónleikar með Gospelkór Reykjavíkur og eh norskum gospelkór líka... Gulli Briem á trommur og Jói Ásmunds á Bassa Sigurður Flosa á saxa og ég veit ekki hvað... mikið er ég feginn að hafa farið..  sé Barða á morgun

Gísli Torfi, 3.11.2007 kl. 23:34

18 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég tek ekki þátt í svona sjálfspyntingu svo ég sleppi því bara að horfa á þessa þætti!  (eða gleymi )

Huld S. Ringsted, 3.11.2007 kl. 23:36

19 identicon

Hvað er að gerast með íslensku lagahöfundana okkar?eigum við ekki nóg af góðu og hæfileikaríkum söngvurum? hvar er verið að troða skrækum negra í þennan þátt, hvar er þjóðernis hyggjan?

villi (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:42

20 identicon

  Hvurslags neikvæðni er í gangi, þetta var alls ekki lakasti þátturinn.  Horfði á þennan með tveim unglingssonum og við skemmtum okkur hið besta.  Þátturinn í þarsíðustu viku var snöktum verri.  Okkur hér á bæ þykir þetta hin besta skemmtun.  Við erum 6 á aldrinum 14-46.  Áfram með smjörið RÚV!!!

Sólveig Margrét Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:56

21 identicon

Barði er snillingur! Kaldhæðnin lak af hverju orði hjá honum og lagið er meiri ádeila en ungfrú Silvía nokkru sinni.


Díta (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:57

22 identicon

Hehehehehe ég gleymdi þessum þætti enn eina ferðina. En ég verð á tónleikum næsta laugardagskvöld í laugardalshöll. Svo ég missi af honum aftur. Þar verður meðal annars söngfólk úr Fíladelfíu.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 00:10

23 Smámynd: Kolgrima

Íslensk dagskrárgerð er yfir höfuð heilsuspillandi - og af hverju er alltaf sama fólkið alls staðar?

Deili ekki feiknarlegum áhuga sumra á blogginu á Agli og enn síður á Kolbrúnu og um hina er ég búin að tala út! 

Kolgrima, 4.11.2007 kl. 01:38

24 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Á ballið á, er greinilega fengið að láni hjá tveim meisturum, þ.e. Geirmundi hinum gasalega hvíta negra og Hallbirni, sem svo eftirminnilega söng Hér á landi á.  Hann fær raunar innblástur frá almættinu sjálfu, sem segir okkur að líta ekki þangað með von um betri tíð í Eurovision.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.11.2007 kl. 20:20

25 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Steinar: N'u hló ég upphátt, Hallbjörn er með merkilega íslenskunotkun og Geirmundur er nákvæmlega hvítur negri, ekkert meira og ekkert minna.

Kommon people hvað?

Kolgríma: Ég er með Egil í gjörgæslu.  Not (eins og krakkarnir segja)

Birna Dís: Veistu þú ert heppin kona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2007 kl. 20:24

26 identicon

Þetta var alveg ferlega leiðinlegt og eiginlega þjóðarskömm að þessu dæmi öllu saman, það viðast allir í fokki þarna, einnig kynnir og dómarar; thats how bad it is

DoctorE (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985830

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband