Leita í fréttum mbl.is

Bingó - í borginni

 1

Það er ekki hægt að leggjast til svefns, án þess að skrifa eina smá færslu um nýja meirihlutann.  En í þessari færslu er hann ekki í aðalhlutverki. 

Ég elska bakgrunn.  Þegar ég horfi á bíómyndir, gleymi ég mér oft í að glápa á fólk sem er ekki með í myndinni.  Tékka á hvað það er að gera og svona.  Þess vegna er ég að pæla í eftirfarandi:

Hafið þið velt fyrir ykkur öllu veseninu þegar það er skipt um valdabatterí í ráðuneytum og ráðhúsum?  Ég sá að Villi verður borgarstjóri þangað til á þriðjudag.  Þegar það eru kosningar, þá hefur sitjandi valdhafi haft tíma til að taka til í möppum, taka hálspillurnar, níkótíntyggjóið og tissjúið upp úr skrifborðsskúffunum og svona, en núna gerist þetta hviss-bang,  þannig að ég sé Villa alveg fyrir mér, í aukavinnu að tæma skrifstofuna og gera klárt.  Grey hann.

Og allir ritararnir, nýbúnir að læra á siðina hjá nýja meirihlutanum.  Og ritarar lenda oft í að ná í kaffi (eða einhver annar aðstoðar, been there, seen it, done it) og það þarf að læra á hvernig nýi valdhafinn vil kaffið sitt, hvernig hann vill að svarað sé í símann. Fólk þarf að vita; er viðkomandi líbó, eða stífur, rólegur eða æstur og allt fer upp í loft í fyrirkomulaginu.

Verðirnir í Ráðhúsinu og móttökufólkið þarf að snúa við goggunarröðinni í höfuðnikkunum, þessi sem fékk snubbótt nikk, fær núna djúpt og v.v. 

Það fer sum sé í gang, tryllt umskólun og kúrsar í nýjum siðum.  Er það nema von að það sé ekki kosið nema á fjögurra ára fresti?

Við í bloggnefndinni sendum starfsfólki Ráðhúss Reykjavíkur, baráttu og stuðningskveðjur, með laginu; ekki skamma mig ég er bara að reyna að vinna fyrir minni ómegð, kæri borgarfulltrúiWhistling

Ójá.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Sorrý! Ligg í krampa! Næsta kærumál á dagskrá mun snúast um hálspillur sem Dagur stalst í sem tilheyrðu Vilhjálmi sem ekki fékk tilheyrilegan tíma til að ná þeim úr skúffunni fyrir valdaskipti. Þetta gæti orðið hið ljótasta mál. Starfsfólk að færa fólki vitlaust kaffi hægri og vinstri í þokkabót og allir geðvondir! Þetta er víst dauðadæmt.

Farðasofakona! Étlalíka

Laufey Ólafsdóttir, 12.10.2007 kl. 01:18

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skemmtilegar pælingar hjá þér .  Þetta er ef til vill einmitt aðalmálið hér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.10.2007 kl. 07:55

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Já aumingja bakgrunnsfólkið. Það verður varla búið að læra hvernig Dr. Dagur vill kaffið sitt, þegar nýtt fólk kemur aftur.

Þröstur Unnar, 12.10.2007 kl. 08:38

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég hafði ekki pælt í þessu sjónarhorni......en nú er ég alveg full samúðar með þessu fólki og Villa sem er að ná í kassa í kassagerðinni núna !

Njóttu dagsins !

Sunna Dóra Möller, 12.10.2007 kl. 09:23

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

AAARGHHH

Jóna Á. Gísladóttir, 12.10.2007 kl. 09:37

6 Smámynd: halkatla

þetta er ekki raunverulegt fólk fyrir mér heldur persónur í kvikmynd sem er bara að leika hlutverk. Á bakvið hverja kvikmynd eru óteljandi hlauparar, förðunarfræðingar, settsmiðir osfrv það er fólkið sem vinnur vinnuna. Og ekki má gleyma handritshöfundunum sem stjórna þessu etv mest.

halkatla, 12.10.2007 kl. 09:41

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sætt af þér að hugsa til litla mannsins í þessum farsa. Aukaleikaranna sem verða að brosa og hlaupa eins og toppar dagsins vilja. Annars er þessi nýja borgarstjórn bara strengjabrúður gamalla kalla í fílu, vonandi ná þau samt að framkvæma góða hluti fyrir borgarbúa en missa sig ekki í fjárhættu spili með Orkuveituna. Ertu enn sofandi.?

Ásdís Sigurðardóttir, 12.10.2007 kl. 11:52

8 Smámynd: Rebbý

Villi á örugglega ennþá kassana sem hann bar dótið sitt inn í - hver lætur kassana frá sér þegar hann er í starfi sem þessu ....

Rebbý, 12.10.2007 kl. 12:29

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Beta:  Af skiljanlegum ástæðum þá er villi ekki MEÐ klippara.

Rebbý, þú ert meyja er það ekki.  Þær hugsa svona. 

Ég var uppi á Lannsa stelpur, kommon, ég er SJÚKLINGUR.  Muhahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.10.2007 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband