Leita í fréttum mbl.is

And the Nobel goes to..

1 

..æi what´s his name? 

Ég er svo standandi hlessa á því að Alþingismenn skrifi undir tilnefningu til friðarverðlauna Nóbels, án þess að þekkja haus né sporð á þeim sem tilnefndur er. 

Maður gæti farið að safna tilnefningum fyrir allskonar dúdda, bara sjálfum sér til skemmtunar.

Við Gurrí (www.gurrihar.blog.is) erum voða hrifnar af Marteini frænda heitnum, sem er nýbúinn að kaupa sér íbúð í Breiðholti, en komst samt ekki í fréttirnar en hann gerði það um svipað leyti og Litli-Bónus keypti New-York íbúðirnar og ÞAÐ komst í fréttirnar.  Marteinn frændi er vel að verðlaununum kominn en hann hefur verið að efla samskipti íbúa í neðra-Breiðholti undanfarnar vikur.

 Já, það eru margir kallaðar en fáir útvaldir þegar að friðarverðlaunum Nóbels kemur. 

Það væri svolítið sniðugt að vita deili á fólki sem maður tilnefnir.

 

Bætmí!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: krossgata

Ég er alveg úti á túni.  Er eitthvað sérstakt sem ég hef misst af sem er rótin að þessum skrifum?  Ég er nú alveg þekkt fyrir að vera utan við mig svo það er ekki að marka. 

En Marteinn heitinn.  Hvernig getur hann verið að versla hús og dedúa fleira í Breiðholtinu?  Er það allt gert að handan?

krossgata, 25.9.2007 kl. 20:51

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Afhverju er ég ekki tilnefndur til friðarverðlauna nobels Ég hef aldrei lamið neinn og er mjög friðsamur .. einstaklega kurteis einstaklingur sem svara aldrei með hortugheitum af fyrra bragði.. Ég hvæsi aldrei á fólk nema að það eigi það skilið uuuu að mér finnst... 

friðsamari maður er ekki til..

Brynjar Jóhannsson, 25.9.2007 kl. 21:02

3 identicon

Líst vel á Martein frænda. En sá/sú sem fann upp peace-merkið?

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 21:55

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krossgata mín, þegar það kom í fréttum að Jón Ásgeir hafi keypt íbúð í NY þá bloggaði ég um að Marteinn frændi (sjónsvarpsþáttur frá því í denn) hafi keypt íbúð í Breiðholtinu.  Þegar Gurrí sá myndina fékk hún nostalgiukast.  Þannig að þetta er gamall djókur og ég kalla stundum sprell-lifandi fólk "heitið" af því mér er ekkert heilagt.

Brynjar ég starta undirskriftasöfnun með samma.

Anna: hver var það, tilnefnum hann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.9.2007 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985863

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.