Leita í fréttum mbl.is

Stormur!

Í tilefni hans hef ég bundið niður grillið á svölunum.

Farið með plasthúsgögnin af sömu svölum niður í kjallara.

Lokað nánast öllum gluggum.

Kveikt á kertum (ekki út af mögulegu rafmagnsleysi, ónei) til að hafa það huggó.

Kaupa upp matarlagerinn í Kringlunni (er að deyja úr neyslusýki).

Endurnýja sjúkrakassa heimilisins.

Og nú bíð ég spennt.

Hvað gerist?

Ha.. var einhver að segja að ég væri drami?

Ég hélt ekki.


mbl.is Stormviðvörun á sunnanverðu landinu í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Elska storm.....þegar ég er inni og hann úti.....

Sunna Dóra Möller, 22.9.2007 kl. 17:38

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Stormurinn elskar skipulagðar konur!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 22.9.2007 kl. 17:59

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Það má ekki anda af vestri þá er allt vitlaust, plasthúsgögn færast úr stað, hárgreiðslan ruglast, sandkorn villist í auga, flóinn gárast, og ég veit ekki hvað.

Æsiveðurfréttamennska........

Þröstur Unnar, 22.9.2007 kl. 18:03

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vonandi verður þessi stormur bara í vatnsglasi.  Þess vegna held ég að ég fái mér bara rauðvínsglas.  Ég er annars boðin í mat í kvöld.  Vona að ég fái babúsas, elska þann rétt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.9.2007 kl. 18:16

5 identicon

Sæl bekkjarsystir. Á meðan þú gengur frá garðhúsgögnunum undirbý ég veiðiferð í gæs í lárétt skítaveður í morgunsárið. Jú það veiðist best þegar þær hamra gegn veðrinu í lágflugi.

Jhonny La. (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 18:54

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hér hreyfir varla vind. Það er alltaf verið að lofa manni einhverju! En ég er samt búin að kveikja á kertum.

Nennti hins vegar ekki í Kringluna. Ég kem bara til þín ef ég verð svöng.

Hrönn Sigurðardóttir, 22.9.2007 kl. 19:48

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

STORMUR ?? hér er logn. Ég hélt að þú værir svona veðurstelpa, elskaðir rok, rigningu og ófærð helst snjókomu líka og skafla upp á 3 metra, þá er sko gaman.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.9.2007 kl. 20:48

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já leiðinda veður um að gera að taka inn húsgögnin.......... Nei Jenný mín þú ert ekki drama.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.9.2007 kl. 21:04

9 Smámynd: Jens Guð

  Það getur verið ástæða til að negla fyrir glugga.  Ef ekkert timbur er fyrir hendi - og búðir lokaðar -  þá er gott ráð að líma límband innan á rúðurnar horn í horn þannig að það myndi stórt X.  Það styrkir rúðurnar í að standast gjóluna. 

Jens Guð, 22.9.2007 kl. 21:30

10 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Stormur hvað???

hjá mér er alltaf logn - fer bara mishratt yfir

Björg K. Sigurðardóttir, 22.9.2007 kl. 21:35

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hér bærist varla hár á höfði ... hef reyndar ekki prófað að fara út á svalir. Tek undir með Þresti, æsiveðurfréttamennska í öllu sínu veldi.

Guðríður Haraldsdóttir, 22.9.2007 kl. 21:39

12 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Og ekki gleyma rafhlöðum í vasaljósið ( ekki út af rafmagnsleysi )

Halldór Sigurðsson, 22.9.2007 kl. 21:48

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það er svo notalegt að liggja undir teppi, með fullt af kertum í kringum sig og hlusta á rokið úti...........................

Huld S. Ringsted, 22.9.2007 kl. 22:09

14 Smámynd: krossgata

Það er ekkert að gerast í þessum stormmálum.    Bara hið ágætasta veður.  Mér sem finnst svo gaman að dútla við sunnudagskrossgátuna með vindinn emjandi á glugganum.

krossgata, 22.9.2007 kl. 22:16

15 Smámynd: Þröstur Unnar

En Huld, kertin taka svo mikið súrefni að maður lendir í andnauð eftir smá stund, svo er ekki hægt að opna glugga því þá slokknar á þeim ef það er almennilegt rok.

Þröstur Unnar, 22.9.2007 kl. 22:20

16 Smámynd: Huld S. Ringsted

Anda bara hægara Þröstur minn þá reddast þetta með súrefnisþurrðina Og hver í an........ opnar glugga í hífandi roki?

Huld S. Ringsted, 22.9.2007 kl. 22:44

17 Smámynd: Þröstur Unnar

Heldurru að hún fari ekki að koma með aðra færslu, þessi veðurfærsla er að verða soldið útþynnt, ekkert veður. Ekki er hún ennþá að skottatst með litlu krússluna sína?

Þröstur Unnar, 22.9.2007 kl. 22:54

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð dásamleg.  Hey, Jenny Una sofnaði 20,30 en ég fór að horfa á sænska bíómynd með frábærum leikkonum.  Það er varla að það bærist hár á höfði.  Veðurstofan hefur svikið mig.  ARG.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.9.2007 kl. 22:59

19 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ekkert að marka þessa veðurfræðinga.

Huld S. Ringsted, 22.9.2007 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband