Leita í fréttum mbl.is

ÞVAGLEGGSFRÉTTIR

Samgönguráðherra ætlar að skipa starfshóp til að samræma reglur milli lögregluembætta um sýnatöku hjá ökumönnum sem grunaðir eru um neyslu ólöglegra efna.

Þetta er fallegur dagur.  Nú getur maður kannski farið að kíkja í kaffi til Ásdísar bloggvinkonu eða farið í bíltúr til Þingvalla til að skoða haustlitina.  Ekki misskilja mig ég myndi aldrei keyra undir áhrifum, en líkurnar á því að lenda illa í þvagleggslöggunni, svo ég bara tali ekki um Yfirþvaglegginn sjálfan, sýslan í umdæminu, minnka töluvert ef það verður gert opinbert, að svona nauðungarsýni séu ekki leyfileg vinnubrögð.

Hér hefur viðhorf almennings (bloggara) greinilega haft áhrif því í fréttinni stendur:

"Ástæður þess að starfshópurinn er skipaður má að miklu leyti rekja til mikillar umræðu sem varð eftir að kona kærði lögregluna á Selfossi fyrir valdbeitingu. Settur var upp þvagleggur hjá konunni með valdi í maí síðastliðnum og sköpuðust miklar umræður í þjóðfélaginu í kjölfarið."

Úps, verð að skreppa, er svo mál að pissa.

Kem að vörmu

Úje


mbl.is Reglur um sýnatöku samræmdar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm ég vona að sýsli fái tiltal. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2007 kl. 09:16

2 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

hahaha, síðasta setningin snilld í samhenginu. Nú þarf ég líka að pissa.

En sama segi ég, ég vona virkilega að það verði tekið fyrir þetta.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 14.9.2007 kl. 09:18

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þú drepur mig einhvern daginn kona

Jóna Á. Gísladóttir, 14.9.2007 kl. 09:27

4 identicon

Þú ert ómissandi.

hke (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 10:08

5 Smámynd: Ragnheiður

Ansans..ég þarf líka að pissa !

Ragnheiður , 14.9.2007 kl. 10:15

6 Smámynd: Ragnheiður

Reglur um sýnatöku samræmdar ? Ehhhh það má nú skilja þetta sem svo að þvagleggurinn verði skylda hjá embættunum ......

Ragnheiður , 14.9.2007 kl. 10:17

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragga góður þessi, það skyldi þó aldrei verða að skylduverki að setja upp þvaglegg.  Skammastín.  Vér almenningur munum hafa sigur í þessu máli.  Er farin að pissa meira.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.9.2007 kl. 10:21

8 Smámynd: Hreiðar Eiríksson

Mér sýndist á fréttinni í Blaðinu að Sýslumaðurinn á Selfossi leggði til einn nefndarmanna.  Ég tel því víst að sjónarmið þeirra sem hafa þessa "þvagrásarfrygð" komi til með að koma fram í nefndinni.

Hreiðar Eiríksson, 14.9.2007 kl. 10:23

9 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Ég fagna því að það eigi að samræma sýnatökureglurnar, og finnst að það eigi alls ekki að vera bara í sýnatökumálum. Selfosslögreglan er með eigin verklagsreglur og túlkanir á þeim á fleiri sviðum líka. Er kannski búin að vinna sér inn óvinsældir nú í sumar og er skemmst að minnast hunds, sem eigandi var búinn að leita að hjá lögreglunni (og úti um allt), skildi eftir lýsinguna á honum, nafn, símanúmer og heimilisfang. Daginn eftir lét lögreglan lóga hundinum, frekar en að skila honum. Engin góð ástæða var fyrir þessu. 

Bjarndís Helena Mitchell, 14.9.2007 kl. 10:39

10 Smámynd: krossgata

Þetta er ekki einn af þeim dögum sem ég er í bjartsýniskasti...  Þetta gæti nú farið á hinn veginn.  Fulltrúi þvagleggjara gæti, vopnaður þvaglegg sem hann beinir að gagnauga hinna, neytt þá til að gera þvaglögn að samræmdri almennri aðgerð. 

krossgata, 14.9.2007 kl. 10:54

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Iss´verð að fara að pissa.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.9.2007 kl. 10:56

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

iss piss

Hrönn Sigurðardóttir, 14.9.2007 kl. 10:58

13 identicon

Stelpur. Vitið þið hvernig beygist orðið katheter.? Og hvort er það í kk eða hvk ?  Er það hann katheterinn, eða það katheterið. ?Gömlu læknarnir sögðu ,leggja upp hjá honum,henni katheter.Fyrirmæli læknis.

Margrét Sig (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 11:34

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, Margrét, nú verðum við að fara í læknisfræðina til að vera umræðuhæfar í partýjum.  Ég sem gamall læknaritari veit þetta ekki.  

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.9.2007 kl. 12:54

15 identicon

Haft hefur verið fyrir satt að Íslendingar haldi alltaf með skúrkinum. 

Glúmur Gylfason (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2985774

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband