Leita í fréttum mbl.is

OFMAT

Viktoría og Davíð hafa fengið umsögnina "ofmetnasta fólk í heimi". Það má vera rétt, svo langt sem það nær. 

Sjálfstæðisflokkurinn, Bubbi Morthens, Þvagleggssýslumaðurinn, Blönduóslögreglan, Íslensk Erfðagreining, Nylon, Þorramatur, kjötbollur og íslenska þjóðkirkjan, eru líka stórlega ofmetin.

Ég, hins vegar, er hneykslanlega vanmetin.

Væmíollðetæm?

Úje


mbl.is Beckhamhjónin eru „ofmetnasta fólk í heimi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég met þig ofar öllu þessu enda er ég smekkmanneskja bæði á mat og mannskap

Laufey Ólafsdóttir, 12.9.2007 kl. 00:05

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hahahaha   Góður húmor Jenný. 

Anna Einarsdóttir, 12.9.2007 kl. 00:07

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú ert sko ekkert vanmetin af mér gamla mín, farðu að sofa eins og ég.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.9.2007 kl. 00:10

4 identicon

Þessi listi varð mér nánast að aldurtila - þú ert heppin að fá ekki á þig kæru fyrir að vera OF fyndin

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 00:41

5 Smámynd: Jens Guð

  Ég kvitta undir þetta ofmat.  Nema að ef vera skildi Íslensk erfðagreining.  Ég hef grun um að það fyrirtæki eigi eftir að sanna sig.

Jens Guð, 12.9.2007 kl. 01:15

6 identicon

Ég er sko sammála þér með vanmatið. Mér finnst að þú ættir líka að fá að að vera svolítið ofmetin, bara oggupoggu. Því þú ert mesta krútt ewer.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 01:30

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm, kvitta fyrir þetta. Grunar þó að þú eigir lengri lista.  Jens er gamall fjölmiðlamaður og máski með einhverjar sposlur frá erfðagreiningunni, svo það má kannski vara sig á að ofmeta álit hans.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.9.2007 kl. 03:34

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð öll alveg bráðskemmtileg að vakna við.  Hvað kona er heppin þó vanmatin sé

Jens: Sumir bíða eftir fjallinu, láttu þér ekki leiðast meðan þú bíður (þú getur hlustað á Bubba)

Jón Steinar: Hvernig er þetta með gagnagrunninn?  Heldurðu að hann fari ekki alveg að slá í gegn?

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.9.2007 kl. 08:34

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Guðrún B, mikið asskoti ertu sæt stelpa. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.9.2007 kl. 08:35

10 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Mmmm, kjötbollur... (ekki úr kjötfarsi þó, bjakk)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.9.2007 kl. 09:45

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér þarna, sennilega hefðir þú mátt hafa Kára Stefánsson sjálfar þarna á meðal.  Það er nefnilega eftirtektarvert, að alltaf þegar ÍE vantar aura, þá finna þeir eitthvað merkilegt upp, sem kemst í fréttirnar, en svo púff... er ekkert meira um að að segja.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.9.2007 kl. 10:21

12 identicon

ÚÚÚ  takk Jennsla mín   Ég er í Marlyn gerfinu mínu þarna..

Guðrún B. (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2985774

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.